Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1940, Side 8

Frjáls verslun - 01.12.1940, Side 8
„Stýrimannshúsinu gamla“ (á horni Aðalstræt- is og Hafnarstrætis). Þá verzlun stofnaði norskt verzlunarfélag og var Sigfús Eymunds- son aðalumboðsmaður þess hér. En sú verzlun vildi ekki þrífast. Loks keypti Norðmaðurinn Mathias Johannessen húsin og allar vöruleifar og hóf þar sjálfur verzlun, sem hann mun hafa rekið til dauðadags (f 1900). Mikil varð sú verzlun aldrei, en réttskriftni eigandans var viðbrugðið. Johannesen átti íslenzka konu. Þá er að minnast á innlendu verzlanirnar hér í bæ á þessu tímabili. Elztur hinna alíslenzku kaupmanna hér í bæ var biskupssonurinn frá Laugarnesi, Hannes Steingrímsson Johnsen, og um leið elztur allra kaupmanna hér í bæ á þessu tímabili. Hann var stúdent og hafði einnig um hríð verið við nám í Khöfn, en án þess að ljúka sér af ytra. Eftir 1830 gerðist hann kaupmaður (í húsi Guðnýjar Möller, er seinna nefndist svo), en nál. 1846 hafði hann eignast „Randersmanna-húsin“ svo- nefndu á horninu á Veltusundi og Hafnarstræti og flutt verzlun sína þangað. Mikil var verzlun hans aldrei, en eigandinn allt að einu einn af vinsælustu borgurum bæjarins, sem allir þekktu og alla þekkti. Hann hafði í fjölda ára átt sæti í bæjarstjórn og í fullan mannsaldur verið ann- ar sáttasemjari bæjarins, maður margfróður mjög (svo að það var máltæki hér í bæ, er um einhvern fróðleik var að ræða, „Hannes John- sen sagði mér) og manna ættfróðastur, ekki að- eins að því er snerti menn, heldur og hesta! Þegar hann gerðist aldraður seldi hann verzl- un sína í hendur Símoni syni sínum Johnsen, sem rak hana nokkur ár, en andaðist á undan föður sínum á bezta aldri (hálffertugur) 1884, en Hannes dó 1885, 76 ára. Meðal afgreiðslu- manna (þó aðeins að sumrinu til) í búð Hann- esar Johnsen minnist ég sérstaklega eins manns frá æskuárunum. Sá hét Finnur Jónsson, síðar frægur lærdómsmaður, prófessor við Khafnar- háskóla, doktor og heiðursdoktor við ýmsa há- skóla, heiðursborgari Akureyrarbæjar o. fl. o. fl. Næst fyrir austan Hannes Johnsen verzlaði Hans Robb, maður enskur í föður en íslenzkur í móðurætt. Hann hafði áður verzlað í húsum Jóns Markússonar við Grófina, sem Robb fyrst- ur gaf nafnið „Liverpool“, en seinna eignast verzlunarhús bróður síns í Hafnarstræti: Carls Ola Robbs látins. En Hans Robb gjörðist ó- reglumaður mikill, fór á höfuðið um 1875 og fluttist síðan með fjölskyldu til Vesturheims. En síðan verzlaði í húsum Robbs Þorfinnur Laupmaður og stúdent Jónatansson, unz Bjarni (6 á Esjubergi keypti húsin handa tengdasyni sín- um, Þorl. 0. Johnson, er þar byrjaði sinn að mörgu leyti merkilega kaupmannsferil. Að vísu var Þorlákur aldrei neinn „stórkaupmaður“, en með honum heldur þó að sumu leyti „nýi tím- inn“ innför sína í verzlunarlíf Reykjavíkur. Þorlákur verður fyrstur allra kaupmanna hér til þess að „auglýsa" vörur sínar. Gerði hann það bæði í blöðum og með „plakötum“, sem fest voru upp á götuhornum, þar sem tekið var eftir þeim eða send inn í hús bæjarmanna (stundum í ljóðum). í Liverpoolshúsunum byrjaði verzlun 1873 Magnús Jónsson frá Bráóræói, bróðir þeirra merku Stóra Ármóts bræðra, Jóns bæjarf. í Ála- borg og Þorsteins kancelliráðs, og engan veginn þeirra síztur talinn að gáfum og andans atgerfi, þótt ekki væri til mennta settur eins og þeir (hann hafði þó verið 2 vetur í heimaskóla hjá Steingrími prófasti í Odda). Verzlun Magriúsar og Sigurðar sonar hans er lét rífa gömlu Liver- pool og byggja hina nýju, sem Th. Thorsteins- son eignaðist síðar og verzlaði, var aldrei rekin í stórum stíl, enda högnuðust þeir lítt á henni. — Um og eftir 1878 rak Eggert Gunnarsson einhverja verzlun í Glasgov/, sem Gunnlaugur Briem veitti forstöðu. En sú verzlun stóð að- eins nokkur ár, unz Eggert hvarf af sjónar- sviðinu. Einnig rak Jón Guðnason (frá Litla Seli) smáverzlun um líkt leyti í norðurenda hússins. En þar fyrir vestan var engin verzl- un rekin fyr en Geir Zoéga haustið 1880 byrj- aði verzlun sína, sem nú er orðin 60 ára og hefir ávalt verið rekin með forsjálni hins gjör- hyggna stofnanda og þrifist vel. Enn er ónefnd verzlun Óji P. Möllers í Hafn- arstæti (nr. 16, sem nú er). Möller þessi (t 1878) var fæddur og uppalinn hér í bæ af dönskum foreldrum (bróðir frú Finsen, móður Finsens póstmeistara og þeirra merku syst- kina). Hann var piparsveinn, þótti nokkuð sér- lundaður, en einstakt valmenni; barst lítið á og sást sjaldan á götum úti. Var jafnvel sagt um hann, að honum væri ljúfara að liggja í bókum, en vasast í búðinni, enda sást hann þar sjaldan. Verzlun hans þreifst þó vel, en mikii var hún aldrei. Eftir lát Möllers keypti M. Smith verzlunarhús þessi og breytti aðalhúsinu í gistihús („Hotel Alexandra“). Magnús Torfa- son nefnist sá, er var aðalstoð og stytta Möll- ers við verzlunina, maður trúr eins og gull. En á kveldin var Magnús veitingaþjónn hjá bróður húsbónda síns, Kristjáni Möller (fyrr kaup- manni, föður Jóhanns kaupmanns á Blönduósi og þeirra systkina), sem nú hélt gildaskála fyrir Framh. á bls. 31. FRJÁLc: VERZLUN

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.