Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1942, Page 1

Frjáls verslun - 01.12.1942, Page 1
1 1,— 12. TBL 4. ÁRG. 19 4 2 IVERZLUNARMANNAFELAG REYKJAViKUR VERZLIIN Eins og oft áður er nú mikið vopnabrak og- vígalæti í stjórnmálun- um íslenzku. Flokkarnir deila og- finna engin ráð, sem allir geti sætt sig við. Stjórnmálamönnunum er Ijós sú hætta, sem yfir vofir, ef ekki er hægt að halda friðinn. En samt koma þeir sér ekki saman. Þessu valda óheilindi. Sumir stjórnmálaflokkanna miða allar að- gerðir sínar og stefnu við atkvæðaveiðar og ekkert annað. Landshagur lýtur þar l'lokkshag. Allt er þetta gömul saga, en þó er hún enn hörmulegri nú en nokkru sinni fyrr. Þjóðin á nú meira undir því en áður að stjórnmálamennirnir geri skyldu sína og vinni landi sínu af fullu viti og fullri einurð í öll- um málum. I þeim flokkadeilum og flokkafundum, sem átt hafa sér stað undan- farnar vikur, hefir verzlunin verið eitt bitbeinið, sem flokkarnir liafa kastað á milli sín. Uppástungur hafa komið fram frá hinurn rauðu flokkum um að leggja alla frjálsa inn- og útflutningsverzlun niður, en setja í hennar stað landsverzlunarbákn með öllu því sleifarlagi, slóðaskap og spillingu, sem vant er að fylgja áþekkum stofnunum hérlendis, og þó í minni stíl séu. Hver niðurstaðan verður, 'er ekki vitað, þegar þetta er ritað. En verzlunarmenn ættu að fylgjast vel með því, sem nú er að gerast, og vera þess minnugir, að til eru margmennir flokkar, sem kjósa einok- anir í stað frelsis, og spillingu í stað heiðarlegra viðskipta.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.