Frjáls verslun - 01.02.1950, Blaðsíða 35
Úr vib skiptah eimin um
íslctnd.
Vöruskiptajöf'nuður ársins 1949
varð óhagstæður um 134,8 millj. kr.
á móti 61 millj. kr. halla á árinu
1948. VerSmæti innfluttrar vöru
nam á árinu 1949 424 millj. kr., en
útfluttrar vöru 289,2 millj. kr. Ár-
iS 1948 nam verSmæti innflutnings-
ins 457 millj. kr., en útflutningsins
396 millj. kr.
VöruskiptajöfnuSurinn í des. s.l.
varS óhagstæSur um 48,4 millj. kr.
VerSmæti innfluttrar vöru nam 70,8
millj. kr., en útfluttrar vöru 22,4
millj. kr.
Danmörk.
Danir hafa nýveriS komiS á fót
nefnd manna, er á aS hafa umsjón
meS innflutningi þeirra vara, sem
þeir lelja, aS þjóSin geti sjálf fram-
leitt innanlands. Nefndin, sem á sér-
staklega aS hafa auga meS innflutn-
ingi á málmvörum, er ætlaS aS koma
í veg fyrir atvinnuleysi í Danmörku,
sem stafar af innflutningi vara, sem
hægt er aS framleiSa í landinu
sjálfu.
Danska stjórnin hefur ákveðiS aS
leyfa innflutning á bifreiSahlutum
fyrir 10 millj. kr., svo aS hægt verSi
aS opna aftur bifreiSasamsetninga-
verksmiðjur þær, er nú hafa verið
lokaSar um skeiS. Ekki kemst þó
framleiSslan í fullt horf vegna þess-
arar leyfisupphæðar, en undirbún-
ingur undir frekari aukningu iSnaS-
arins verSur gerSur, enda húist við’
frekari innflutningsleyfum síðar.
I
Danir munu fá 2 millj. tonn af
kolum og koksi frá Pólverjum, skv.
nýgerðum viðskiptasamningi milli
landanna. VerSmæti kolanna er 140
millj. kr., en auk þess munu Danir
fá ýmsar aSrar vörur frá Póllandi
aS verSmæti 30 millj. kr., þar á
meSal vélar, svínaflesk og sáSkorn.
Um 25% af kolainnflutningnum frá
Póllandi verSur sem afborgun af
láni, sem Pólverjar fengu hjá Dön-
um 1946, sem andvirSi innfluttra
hesta.
Sextán þjóðir hai'a tilkynnt þátt-
töku sína í „Forum“ vörusýningunni,
er opnuS verSur í Kaupmannahöfn
17. marz n.k. Tvær þjóðir, Tékkar
og Ungverjar, hafa tilkynnt sýning-
arnefndinni, aS þær vilji ekki sýna
undir sama þaki, þ. e. í einum alls-
herjar skála, og aSrar þjóSir, og
segjast heldur vilja fá sýningar-
svæSi fyrir utan sýningarhöllina.
Svíþjóð.
Otflutningur landsins til Brett-
lands og sterlingssvæSisins á þessu
ári er áætlaSur 850 millj. kr. (58,6
millj. £), í samanburSi viS 750
millj. kr. á s.l. ári. Innflutningurinn
frá sömu aSilum er áætlaSur 1,300
millj. kr. (£ 90 millj.), á móti 950
millj. kr. á árinu 1949.
Svíar hafa fallizt á aS gefa frjáls-
an um 60% af innflulningi landsins
frá þeim þjóSum, sem eru þátttak-
endur í efnahagssamvinnu Evrópu-
landanna. Munu Svíar gefa frjálsan
matvælainnflutning fyrir 92 millj.
kr., hráefni og eldsneyti fyrir 515
millj. kr., svo og tilbúnar vörur fyr-
ir 925 millj. kr., en af þeirri upp-
hæS eru 250 millj. kr. fyrir vefnaS-
arvörur og vélar og tæki fyrir 120
millj. kr.
Bretland.
Brezkir útl'lytjendur sýna nú mik-
inn áhuga fyrir alþjóð’avörusýning-
unni, er haldin verSur í Chicago
7.—19. ágúst n.k. Munu Bretar sér-
staklega leggja áherzlu á aS sýna
nýjar brezkar framleiSsluvörur, er
þeir telja markaS fyrir í Bandaríkj-
unum.
Árangur gengisfellingar sterlings-
pundsins fyrir útflutning brezkra
vara til Bandaríkjanna hefur fariS
fram úr vonum bjartsýnustu við-
skiptasérfræSinga. Utflutningurinn í
nóvember til Bandaríkjanna nam
aS verSmæti yfir 20 millj. dollara
(£ 7.321.400). Er þetta næstum
þrisvar sinnum meira en var í liverj-
um einstökum mánuði á tímahilinu
apríl—ágúst. Síðustu fréttir herma,
aS sala hrezkra vara þangaS aukist
stöð’ugt.
Utflutningur brezka bifreiðaiSn-
aSarins í nóvember er sá mesti í
sögu landsins fram aS þessu. Alls
voru fluttar út um 28 þús. bifreiS-
ar í mánuðinum, er námu aS verð-
mæti 12,2 millj. sterlingspundum.
Til Banda’''k;anna fóru 1^-00 hif-
reið’ar, 11.250 til Ástralíu, 4.250 til
Kanada og 1600 til Belgíu.
Brezkir bifreiSaframleiSendur á-
ætla, að framleiSslan á árinu 1950
muni nema um 440 þús. bifreiðum,
en samkv. gildandi samningi við
FRJÁLSVERZLUN
35