Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1951, Qupperneq 1

Frjáls verslun - 01.06.1951, Qupperneq 1
• 9 /va/j 13. ÁRG. - 5.-6. HEFTI - 1951. Aukið verzlunarfrelsi ílytur utanrikisverzlunina að nýju i eðlilega farvegi. Kaupin bein- ast þangað, sem verð og gœði varanna eru hagkvœmust. — Að undanförnu hefur verulegur hluti af utanríkisverzlun landsmanna verið bundinn samkvœmt svonefndum klíringsamnigum eða farið fram í beinum vöruskiptum. Á þennan hótt tókst að selja nokk- uð af sjáfarafurðum, aðallega frystum fiski, til landanna handan járntjaldsins. En mark- aðir þessir voru keyptir dýru verði, því í stað hinna útfluttu vara urðum við að kaupa vöru við mjög óhagstœðu verði og oft rýrar að gœðum. Nú horfir sem betur fer svo, að við munum geta selt flestar afurðir okkar við sœmilegu verði til annarra landa. Innflytjendur og raunar allir neytendur hljóta að vera þess mjög hvetjandi að losað verði um klíringviðskiptin eftir föngum svo slœm, sem reynslan af þeim viðskiptum hefur verið. Bœði hafa vörumar frá nefndum löndum verið dýrar, oft lélegar og auk þess hefur komið fram óorðheldni hjá seljendum varðandi afgreiðslutíma, sem oft hefur valdið tjóni; að því ógleymdu að nú virðist innflutningsumboðum fyrir vörur frá þessum löndum ráðstafað samkvœmt pólitískum sjónarmiðum. Undir öllum kringumstœðum œttu ísl. stjórnarvöld því að sjá svo um, að ekki verði seldar vörur til þessara landa fyr- ir hœrri upphœðir, en við getum keypt þaðan vörur fyrir, sem samkeppnishœfar eru á heims- markaðinum. Eitt klíringlandanna, Spánn, hefur nokkra sérstöðu. Viðskipti milli íslendinga og Spán- verja eru gamalgróin. Spánverjar geta keypt af okkur mikið magn af saltfiski við afar hag- kvœmu verði. Spánverjar hafa margar góðar útflutningsvörur að láta í móti, en sá hœng- ur er á að fyrir utan ávexti, vín og nokkrar iðnaðarvörur, eru það aðallega hráefni, sem við höfum ekki not fyrir. Það virðist því nokkuð augljóst, að á meðan gjaldeyrisafkoma Spán- verja er þannig, að þeir þurfa að byggja verzlunarsamninga sína á jafnvirðiskaupum, þá geta viðskipti milli íslands og Spánar ekki orðið umfangsmikil, nema reynt sé að koma þeim fyrir í formi „þríhliða-klírings", þ. e. a. s. þriðja land sé fengið til þess að yfirtaka innstœðu okkar á Spáni og selja okkur í staðinn vörur, sem Spánverjar geta ekki boðið, en okkur vanhagar um. Hér er mikið verkefni, sem ísl. stjórnarvöld verða með góðvild annarra þjóða að reyna að leysa.

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.