Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1954, Side 1

Frjáls verslun - 01.04.1954, Side 1
16. ÁRG. 3.-4. HEFTI — 1954. Frelsi fagnað Tíu ór eru liðin, síðan stofnað var sjálfstætt lýð- veldi á Islandi og þjóðin varð á ný frjáls og full- valda. Einn tugur ára er stutt skeið í sögu þjóðar og erfitt úr nánd að fella um það dóm, hvernig farnazt hefur að leysa vandamál líðandi stundar. Hlutverk dómarans bíður komandi kynslóða, sem eiga að skera upp það, sem nú hefur verið sáð til. Þeirri staðreynd verður þó vart haggað, að fólkinu í landinu líður nú yfirleitt vel, svo að fáir munu þeir vera, er deila vildu heldur hlut við aðr- ar þjóðir. Hlutfallslega meiri atvinna og tekjujöfn- un mun vera hér á landi en annars staðar, gnægt- ir matvæla og fatnaðar eru fyrir hendi, en naum- astur er húsakosturinn, og munum við þó ekki verr settir í þeim efnum en aðrar þjóðir. Að veru- legu leyti er velgengnin afrakstur síðustu tíu ár- anna, fengins frelsis og vaxandi áræðis, þótt eldri þræðir og yngri örlög eigi þar og hlut að máli. Efnaleg velmegun skiptir miklu, en það er fleira, sem ræður hamingju þjóðar, og ber þá fyrst að nefna frelsið sjálft, frelsi út á við gagnvart öðrum þjóðum, frelsi inn á við til athafna, andlegt frelsi og efnalegt. Minningarhátíð hvers áfanga í sögu hins sjálf- stæða, íslenzka lýðveldis á því fyrst og fremst að vera helguð frelsinu. Við eigum að minnast eigin frelsisbaráttu og muna eftir þeim meðbræðrum okkar í öðrum þjóðlöndum, sem hnepptir í fjötra svartra veggja kaldrar kúgunar, þrá frelsið af öllu hjarta. Það ætti ekki að þurfa að brýna fyrir ís- lendingum gildi frelsisins, því svo mjög er frelsis- þráin hverjum einstaklingi í blóð borin, að kalla má hana lífsþörf þjóðarinnar. Þó er það ekki að bera í bakkafullan lækinn, að á það sé minnzt, að frelsið er ekki einungis frelsi frá kúgun, ofbeldi, örbirgð og ofstjórn, heldur fyrst og fremst jákvæð hugsjón, sem gerir kröfu til þess, að við af frjáls- um vilja játumst undir vissar kvaðir samfélagsins, svo að tryggt sé jafnrétti annarra þegna til þess að njóta einnig síns frelsis. Það þarf þrek til þess að heyja frelsisbaráttu, en það þarf þroska til þess að njóta frelsisins. Gengnir ættliðir höfðu til að bera þreklundina, okkar er að sýna þroskann. Við þurfum að læra að meta frelsið, efla viljann til þess að varðveita það og sýna kunnáttu í að tryggja það. Tíu ára frelsishátíð íslenzka lýðveldisins verður bezt helg- uð því hugarfari allrar þjóðarinnar, að hver og einn geri sér ljóst, að aðeins með sjálfsaga, virð- ingu fyrir samfélaginu og góðvild til náungans byggjum við bjarta framtíð í farsælu, frjálsu, full- valda þjóðfélagi.

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.