Frjáls verslun - 01.04.1963, Page 15
efna. Lifnaðarhættir rauðátunnar hafa verið rann-
sakaðir ýtarlega og samhengi rauðátu við göngu
síldar. Hefur þetta komið að góðu gagni við síld-
arleit. Með merkingu á síld, þorski, ýsu og skar-
kola höfum við margs orðið vísari uin göngur
þessara fiska og áhrif veiða á þessa fiskstofna. T. d.
hafa á þennan liátt verið sannaðar göngur síldar
milli íslands og Noregs og göngur þorsks milli ís-
lands og Grænlands, einnig fengizt skýr mynd af
göngum skarkola hér við land. Víðtækar rann-
sóknir hafa leitt í Ijós, að hve missterkir árgangar
ráða miklu um árangur veiðanna, t. a. m. hjá
þorski, ýsu og síld. Athuguð hafa verið rækilega
áhrif veiðanna á ýmsa fiskstofna. Náið samhengi
milli heildardánartölunnar í þorskstofninum og
sóknar hverju sinni. Af þessu verðum við mikils
vísari um framtíð þorskveiða hér við land. Að
sjálfsögðu hefur ástand fiskstofnanna fyrir og eftir
friðunina verið rannsakað og hugað að frekari frið-
un smáfisks, t. d. með aukinni möskvastærð í botn-
vörpum. Ný fiskimið hafa fundizt, t. d. karfamiðin
við Austur-Grænland og Nýfundnaland. Fiskideild-
in hafði forgöngu um notkun Asdic-tækja til síld-
arleitar, og hefur það gefið góða raun, sem kunn-
ugt er.
Tvö rit eru gefin út á vegum Fiskideildar: Fjöl-
rit, prentað á íslenzku og lýsir bráðabirgðaniður-
stöðum, hitt nefnist Rit Fiskideildar, sem aðallega
er prentað á ensku. ísland hefur verið aðili að
Alþjóðahafrannsóknaráðinu siðan 1937, sem haft
hcfur mikla þýðingu fyrir hafrannsóknir hér við
land.
ISnaðarrannsóknir
fóru áður fram í Efnarannsóknastofu ríkisins, er
hætti störfum, er Iðnaðardeild Atvinnudeildar tók
til starfa. En vísir að því starfi hófst reyndar 1906
með Efnarannsóknastofunni, sem stofnuð var og
stýrt af Ásgeiri Torfasyni fyrsta lærða efnafræð-
ingi hérlendis.
Iðnaðardeild veitir forstöðu Óskar B. Bjarnason
efnaverkfræðingur, en verkefni hennar eru þessi
hin helztu: 1. Almennar efnarannsóknir. Ýmsar
greiningar á aðsendum sýnishornum af mismun-
andi tæi. 2. Byggingarefnarannsóknir. Prófanir
steypuefna, styrkleikaprófanir steyputeninga, mæl-
ingar á einangrunargildi. 3. Jarðfræði. Bergfræði-
og steinefnarannsóknir. 4. Fóðurefnarannsóknir.
Efnagreiningar á fiskimjöli, fóðurblöndum, grasi og
heyi. 5. Matvælarannsóknir. Þetta starfsvið er í
Aldur Atvinnudeildaa hóskólans miðast við það, er hún fluttist
í þetta hús á hóskólalóðinni fyrir rúmum 25 ádum
endurskipulagningu. Unnið verður að bættri nýt-
ingu mjólkurafurða og annarra afurða landbúnað-
arins, nýtingu grænmetis og framleiðslu úr gróður-
húsum. 6. Feitirannsóknir hafa verið stundaðar öðru
hverju, jafnframt rannsókn á aðsendum sýnishorn-
um af hveiti. 7. Olíurannsóknir. Eftirlit með elds-
neytisolíu, benzíni og smurolíu. 8. Vatnsrannsóknir.
Neyzluvatn, heitar uppsprettur, vatnsrannsóknir
vegna fiskeldis.
Deildarstjórar og þeir sem sjá um sérstök verk-
svið, gera áætlanir fram í tímann. Skýrslur þarf
einnig að gera um unnin störf, bæði bráðabirgða-
og fullnaðarskýrslu. Gefnar hafa verið út ársskýrsl-
ur um rannsóknir Iðnaðardeildar árin 1938—1956,
einnig nokkur smárit. Auk þess hafa sérfræðingar
deildarinnar skrifað um rannsóknir sínar í Tíma-
rit Verkfræðingafélags Islands og erlend tímarit.
Hin margvíslegustu vandamál eru borin undir
sérfræðinga Iðnaðardeildar, , og þótt sú þjónusta
sé í mörgum tilvikum nauðsynleg, tekur þetta
mjög mikinn tíma frá skipulegri rannssóknastörf-
um. Iðnaðardeild framkvæmir efnagreiningar á fóð-
urefnum fyrir Búnaðardeild. Síðan 1945 hafa bygg-
ingarefna- og jarðfræðirannsóknir verið mikill þátt-
FRJÁLS VERZLUN
15