Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1971, Side 47

Frjáls verslun - 01.10.1971, Side 47
Blóm Jarðhitinn, veðráttan og lega landsins eru góður grundvöllur að blómaútflutningi En vi5 erum á eftir tæknilega, orj framleiðslan alltof lítil enn sem komið er „Segðu það með blómum“ er alþekM setning og víst er það, að mikið er um að fólk reyni að tjá hug sinn með þeim. Sjúkiingum eru færð blóm, stúdentar fá nellikkur og ung- ar stúlkur fá gjarnan rósir frá þeim útvalda. Biómabúðir blasa viða við og auglýsingar frá þeim heyrast oft: „Gleðjið eigin- konuna með blómum á konu- daginn“. Munið blómin á sum- ardaginn fyrsta“. „Mikið úrval af blómum handa unnustunni", o.s.frv. Blómin eru sannarlega vinsæl og auðvelt að gripa til þeirra þegar manni dettur ekk- ert annað í hug til að gefa á afmælum. Allir vita hvernig rós lítur út; mjög margir þekkja nellikkur og páskaliljur og sumir þekkja jafnvel fleiri tegundir. En hjá mörgum hrekkur þekkingin skammt. Hvaðan koma þessi afskornu blóm sem blómabúðirnar selja. Koma þau ef til vill frá útlönd- um? Hvernig er hægt að fá blóm yfir hávetur? Til eru þeir menn hér sem vita svör við þessum spurningum og nokkr- um til og því var einfaldast að snúa sér til þeirra. Til þess að forvitnast urn blómasölu, blómaframleiðslu og möguleika á inn- og útflutn- ingi blóma hittum við að máli tvo sérfræðinga á þessu sviði, þá Jón H. Björnsson magister og Magnús Guðmundsson skreytingafræðing. RÆTT VIÐ JÓN H. BJÖRNSSON Jón er magister í plöntuupp- eldi og skrúðgarðaskipulagi og hefur rekið gróðurhúsin Alaska um árabil. Það var árið 1953 sem hann hóf rekstur Alaska, og ræktaði hann til að byrja með eingöngu trjáplöntur þar. Jón: „Við gœtum ílutt út blóm, ef við tœkjum upp nýjustu tœkni við rcektun." Síðar fór hann að rækta blóm í gróðurhúsinu og selja þau af- skorin. FV: Þar sem þú ert jafn kunnugur blómaframleiðslunni og sölu þeirra langar okkur til að biðja þig að rekja í stórum dráttum hvernig þetta gengur fyrir sig. JHB: Blómaframleiðslusvæð- in eru aðallega þrjú hér álandi. Þ.e.a.s. í Hveragerði, Mosfells- sveit og Biskupstungum. Á þess- um svæðum eru margir bænd- ur, sem lifa á þessari fram- leiðslugrein. Blómaframleiðslan er heilsársstarf og verða bænd- urnir að miða framleiðsluna hverju sinni við þær aðstæður sem hér eru. Bændur þessir hafa með sér sölusamtök og hver einstök samtök hafa ráð- inn starfsmann, sem hefur það hlutverk að koma blómunum á markaðinn. Heimsækja starfs- mennirnir blómaverzlanirnar einu sinni eða tvisvar á dag og selja blómasölunum blómin, sem síðan fara til viðskiptavina þeirra. FV: Er blómaúrval á mark- aðnum hér sambærilegt við það sem gerist á hinum Norð- urlöndunum og hvaða tegundir eru það sem mest eru fram- leiddar. JHB; Úrvalið er sambærilegt yfir sumartímann en í skamm- deginu höíum við færri tegund- ir upp á að bjóða. Yfir sumar- tímann er hægt að fá rósir, neilikkur, Chrysanthemum, lilj- ur og' amareliis, en yfir vetur- inn eru það eingöngu laukjurt- ir, svo sem túlipanar, páskalilj- ur og iris. Að svo mæltu vék Jón að því að blómasalar hefðu stund- um flutt inn blóm að vetrinum, þar sem það væri leiðigjarnt að hafa ekkert annað en lauk- jurtir á boðstólum mánuðum saman. Blómainnflutningurinn hefur gefizt vel og verðið verð- ur sambærilegt við innlenda framleiðslu. Hinn mikli hraði gerir inn- flutning þennan framkvæman- legan, sagði Jón. Sem dæmi um hann pantaði ég eitt sinn nell- ikkur og rósir frá Ítalíu. Pönt- unin fór frá Ítalíu kl. 2 að nóttu, kl. 8 um morguninn var hún komin á flugvöllinn í Osló, þar sem Loftleiðavél tók við vörunni. Kl. 3 lenti vélin í Keflavík og klukkan 4 síðdegis var ég farinn að selja vöruna. Þessi ítölsku blóm voru því ekkert eldri en þau sem eru flutt frá nágrannasveitunum til Reykjavíkur. Hins vegar er það mín skoðun að íslenzkir blóma- FV 10 1971 47

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.