Frjáls verslun - 01.10.1971, Blaðsíða 53
hluthafi megi fara með meira
en 1/20 hluta atkvæða á fé-
lagsfundum.
Fyrsti formaður félagsstjórn-
ar var Þráinn Jónsson veitinga-
maður, en núverandi formaður
stjórnar er Erling Garðar Jón-
asson tæknifræðingur og raf-
veitustjóri á Egilsstöðum.
Ögmundur Einarsson tækni-
fræðingur var ráðinn fyrsti
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins í nóvember 1969, og gegndi
því starfi til mánaðamótanna
febrúar/marz s.L, að hann lét
af störfum.
Við brottför Ögmundar var
Halldór Hróarr Sigurðsson
ráðinn viðskiptalegur fram-
kvæmdastjóri, en hann er 23
ára að aldri og lauk prófi frá
Samvinnuskólanum vorið 1970.
Sigurður Magnússon, er verið
hafði verkstjóri í skógerðinni
frá byrjun, var hins vegar ráð-
inn verksmiðjustjóri. Hann er
32 ára og kvnnti sér um skeið
skógerð í Hollandi. Báðir eru
þeir bændasynir af Héraði.
ÞAÐ VORU EKKI ALLIR
JAFNVISSIR UM AÐ ÞETTA
HEPPNAÐIST
Við erum seztir inn í skrif-
stofu Skóverksmiðjunnar, sem
er í hinum myndarlega iðngarði
austast í Egilsstaðakauptúni,
spyrillinn og fyrrgreindir ráða-
menn þessa unga fyrirtækis.
— Hvað leiddi eiginlega til
þess, að hér var ráðist í skó-
gerð?
Halldór: Ég hygg, að það séu
nokkur samtengd atriði. Fólki
þykir gott að búa hér á þess-
um stað. Hér er margt af
ungum hjónum. Sjáanlegt
var, að iðnaðurinn yrði heppi-
legasti atvinnuvegurinn. Eðli-
lega leituðu menn að nýjum
at vinnugr einum.
Sigurður: Og þá buðust okkur
skógerðarvélar Nýju skó-
verksmiðjunnar í Reykjavík,
sem hætt var störfum.
Halldór: Nú, síðan var hlutafé-
lagið stofnaðogframkvæmda-
stjóri ráðinn.
— En fljótt á litið virðist
það allmargbrotið verk að fram-
leiða skó?
Sigurður: Já, það er það líka,
og efasemdirnar fylgdu okk-
ur úr hlaði. Það voru ekki
allir jafnvissir um, að þetta
heppnaðist. En við vorum
hennnir. Fyrir milligöngu
heildverzlunar H. Sveinsson
h.f. í Reykjavík tókst félag-
inu að ná sambandi, er leiddi
til samvinnu við hollenska
skógerðarfyrirtækið Roosen
De Bekker í Oisterwijk. Hef-
ur hollenska fyrirtækið ver-
ið okkur mjög innanhandar,
m. a. um starfsmannabiálfun.
Vorum við Ögmundur Einars-
son um skeið ytra á vegum
þess og kynntum okkur þar
skóiðnað. Nutum við hinnar
beztu fyrirgreiðslu í h.ví-
vetna. Einnig má geta þess,
að í gegnum þessi samþönd
tókst okkur að ná samstarfi
við hollenskan modelteikn-
ara, sem fylgist vel með
tízkunni, og teiknar alla skó,
sem við framleiðum. Það er
að sjálfsögðu mikill stuðn-
ingur.
— Og einn góðan veðurdag
tóku vélarnar að snúast?
Sigurður: Já, fyrstu skórnir
voru smíðaðir hér í maímán-
uði 1970. Þá var allt starfs-
fólkið óvant skógerð nema
einn skógerðarmaður úr
Reykjavík, sem til okkar réð-
ist, og þar að auki stúlka,
sem fengist hafði við skó-
sauma.
í ágústmánuði hófst salan.
Annars fór árið að mestu í
þjálfun starfsfólksins. Fram-
leiðslan frá í maí til ára-
móta nam samtals 4366 pör-
um.
Halldór: Ég vil undirstrika
það sem Sigurður sagði, að
þetta ár var tilraunatímabil.
Framleiðslan nú í ár verður
væntanlega 100-200% meiri.
Hin fjárhagslega rekstrarút-
koma s.l. árs bar eðlilega
keim af byrjunarstarfi, og
rekstrarhalli ársins var nokk-
ur.
— Þið eruð aðallega í barna-
skóm?
Sigurður: Jú, við erum það.
Ágætt samstarf hefur tekizt
við Iðunni á Akureyri, m. a.
á því sviði, að við framleið-
um ekki sams konar tegund-
ir. T. d. erum við ekkert í
framleiðslu á karlmanna-
skóm.
FORMAR FÓTINN, EN
AFLAGAR EKKI
— Eru ROS barnaskórnir frá
ykkur?
Við sauma. Gengið frá skóm.
FV 10 1971
53