Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.07.1972, Side 39

Frjáls verslun - 01.07.1972, Side 39
FV 6-7 1972 BLAÐAUKI V slitlag en málning, áferðarfall- egt og auðvelt að þrífa. Hrein- lætiskröfur verða miklar í hús- inu. Vatnskranar allir þannig gerðir, að þeir verða ekki snertir með höndunum heldur stjórnað með hnérofum. Þess má líka geta að heitt vatn mun alltaf koma 40 stiga heitt úr krananum. Allt vatn til þvotta og þrifa verður klórblandað og ætlar frystihúsið sjálft að taka að sér allan þvott á hlífðarföt- um starfsfólksins, þannig að það mun fara í hreinan slopp á hverjum morgni. Fatnaður- inn, sem notaður verður við störfin fer því aldrei út úr húsi og sérstök fatageymsla verður til afnota fyrir fólkið. Þá mun það fá sérstakan skó- fatnað til að ganga á og fær ein starfsstúlka það verkefni eitt að sjá um að reglum um hreinlæti sé fylgt. Enginn starfsmaður á að fara inn í pökkunarsal frystihúss- ins án þess að hafa fyrst difið skónum í klórblöndu en hún verður sett í gúmmímottu, sem stigið verður á, áður en geng- ið er í pökkunarsalinn. GANGA LENGRA EN REGLU- GERÐIN SEGIR FYRIR UM. Húsið er allt hannað með það fyrir augum að gera þrif í því auðveld. Hafa eigendur hússins jafnvel gengið enn lengra en reglugerðin banda- ríska ætlast til og hafa t.d. ákveðið að setja hlífar utan um allar vatnskerfis- og hita- lagnarpípur utan á veggjum, svo að komið verði í veg fyrir rykmyndun á þeim. Þá er á- berandi í nýju reglunum, hverjar kröfur eru gerðar til Ijósaútbúnaðar og um ljós- magn. Er útilokað að óþrifin geti falið sig lengur og segja sumir gárungarnir að fiskiðjan verði að flytja inn sólarolíu í tunnum handa stúlkunum, sem framvegis verða baðaðar í ljós- inu við vinnuna. Þeir forstöðumenn fiskiðj- unnar Freyju h.f. telja það mjög auka líkur á hagkvæm- um rekstri þessa nýja frysti- húss, að það er byggt á einum fleti, og að vinnslulínan skuli vera svo bein sem raun ber vitni, þ.e. fiskurinn kemur sem hráefni inn í annan enda húss- ins og fer út unninn um hinn. Tilfærsla efnis er því alltaf í rétta framleiðsluátt, ef svo mætti segja. Páll Friðbertsson, íramkvœmdastjóri íiskiðjunnar Freyju (t. v.); Páll Þórðarson, verkstjóri, í miðið. VAXANDI LÖNDUN í FISKKÖSSUM. Reiknað er með að löndun fisks í kössum fari mjög vax- andi á næstunni. Þegar er einn bátur á Suðureyri kominn með kassa. Er þeim ekið frá bátn- um rétt yfir þvera bryggjuna inn í fiskgeymslur frystihúss- ins, sem eru kældar, þannig að hitastig helzt alltaf stöðugt 0—2 gráður. í fiskgeymslunni rúmast um 2000 tonn. Sá fisk- ur, sem settur er laus í geymsl- una, er látinn í stórar stíur, þar sem ískældur, klórbland- aður sjór umlykur hann. Úr stíunum er fiskinum síðan fleytt að slægingarkerfi og svo áfram í þvott og beint í vinnslu eða kæligeymslu. Allar tegundir fisks nema flatfiskur verða vélflakaðar. Ef einhverjar tafir verða á því, að unnt sé að taka við flökum inni í pökkunarsalnum, verða þau geymd um stund í kældri flakageymslunni. í pökkunar- sal verða 20 snyrtiborð fyrir fiskinn og eiga 3 stúlkur að starfa við hvert þeirra. VÉLAR OG ÁHÖLD EFTIR SIGMUND. Margar vélar og áhöld, sem notuð eru við vinnsluna hefur Sigmund Jóhannsson í Vest- mannaeyjum hannað. Sömu- leiðis hefur hann smíðað bakkaþvottavél, playtkassa- þvottavél og stálkassaþvotta- vél, sem keyptar hafa verið í frystihúsið á Súgandafirði. Færibönd og önnur tæki eru gerð úr ryðfríu stáli, sem ger- ir endingu betri og þrifin auð- veldari. Frystiklefinn hjá Freyju h.f. verður rúmir 300 fermetrar að stærð og þar á að vera hægt að geyma 20 þús. kassa af flökum. Möguleikar eru á að framleiða 3-—4000 tonn af flök- um á ári í húsinu miðað við það hráefni, sem fiskiðjan á kost á. Eru það fimm til sex bátar, sem leggja upp hjá henni. Fiskiðjan Freyja h. f. er hlutafélag 25 aðila. Fram- kvædastjóri er Páll Friðberts- son. Páll Þórðarson er verk- stjóri í frystihúsinu, þar sem 120 manns munu starfa. Landsinis grdður - yðar liróðnr BÚNAMRBANKI ÍSLANDS

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.