Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 22

Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 22
Sterling Airways hefur samið um kaup á þremur risaþotum af gerðinni Air Bus, sem taka munu 345 farþega hver. Aero Chef nú mat fyrir tíu flugfélög, en starfsmenn eru 180 og mánaðarveltan er ein milljón danskra króna. Til þess að framleiða allan þennan mat, kaupir Aero Chef árlega 30.000 lestir af fleski, 15.000 lestir af reyktu svínakjöti, 30.000 lestir af nautakjöti og 20.000 lestir af lifrakæfu, svo nokkuð sé nefnt. Þá notar félagið 750.000 stk. af litlum smjörstykkjum; 326.000 pk. af rúgbrauði; 7 lestir af kaffi og 858.000 danskar möndlukökur í flugvélunum árlega fyrir far- þega. Um borð í vélunum kaupa farþegar árlega 140 milljón sígarettur, 275.000 1. af sterk- um vínum og 103.000 1. af létt- um vínum; auk þess 300.000 kg. af súkkulaði og 950.000 ilmvatnsglös. Ekki nóg með það, heldur drekka farþegarn- ir árlega á ferðum sínum 1.4 millj. flöskur af öli og 1 millj. glasa af sterkum vínum. HJÁLPARFLUG VÍÐA UM HEIM. Árið 1968 urðu umsvif fé- lagsins enn meiri en nokkru sinni fyrr. Nítjándu hverja mínútu, allt árið um kring voru flugvélar Sterling annað hvort að taka sig á loft, eða lenda í einhverri af þeim 187 borgum í 58 löndum, sem fé- lagið flýgur til. Heildarfar- Séra Eilif Kroager, sem stofn- aði Tjcereborgar-ferðaskrifstof- una og síðar Sterling Airways. þegaflutningar urðu 900.000 á árinu. Fyrir utan flutninga á ferðafólki, byrjaði Sterling Airways að fljúga með gæzlu- sveitir Sameinuðu þjóðanna til Egyptalands og Kýpur og nýr kafli hófst í sögu félagsins, það er þátttaka í hjálparflugi víða um heim, fyrir kirkju- félög og Rauða krossinn. Frá þeim tíma hafa Sterling-vélar flogið hjálparflug í Júgóslavíu, Pakistan, Jórdaníu, Indlandi og síðast til Biafra í Nígeríu. Á tveimur árum flugu tíu leiguflugfélög 60.000 lestum af hjálpargögnum til Biafra, og þar á meðal var íslenzka flug- félagið Flughjálp. Árið 1969 náði farþegafjöld- inn 1,3 millj. farþegum. í flug- flotann bættust tvær Fokker- Friendship flugvélar, sem not- aðar voru til farþega- og vöru- flutninga á styttri leiðum. Sama ár var gerður samning- ur um að flytja starfsmenn olíufélags frá Stavanger 1 Noregi til Agadír í Morokkó á 10 aaga fresti, allt árið um kring. VÖRUFLUTNINGAFÉLAG STOFNSETT. Þegar árið 1970 gekk í garð, var nýtt dótturfyrirtæki stofn- sett í Danmörku, sem heitir Sterling Forwarders, en það er vöruflutningafélag. Sama ár, var dótturfyrirtæki einnig stofnað í Svíþjóð, og það eign- aðist þegar í stað 3 flugvélar til leiguflugs innan Svíþjóðar. Nú starfa 100 manns hjá Sterling Airways AB í Svíþjóð og 30% af farþegum Sterling- félagsins eru Svíar. RÚMAR 2 MILLJÓNIR FARÞEGA. Farþegatalan óx enn, og náði 1,6 milljón á öllu árinu 1970. Ári síðar, eða 1971, var farþegafjöldinn orðinn 2.09 millj. manna og loks fékkst leyfi til leiguflugs milli Evrópu og Bandaríkjanna eftir margra ára baráttu. Farþega- fjöldinn til og frá þremur borgum N.-Ameriku varð 10.000 fyrsta árið. í fyrra festi félagið kaup á 13 notuðum Caravelle VI-R frá bandaríska flugfélaginu United Air Lines. Af þessum flota var ein þota leigð hollenzka félaginu Transavia, og tvær seldar til Filipian Or- ient Airways. Hinar eru allar í þjónustu Sterling, og eru mest notaðar á leiðinni Kaup- mannahöfn—Mallorka. Allar bera þoturnar nöfn ýmissa höfuðborga Evrópu, og þar á meðal ber ein þeirra nafnið: „City of Reykjavík“. Flugflotinn saman stendur nú af: 7 Super Star Caravelle, 9 Super Caravelle, 13 City Cara- velle, 2 DC-6B, 2 Fokker Friendship og 2 Piper Cher- okee. Þá hefur félagið samið um kaup á þremur Boeing 727-200 A og auk þess samið um kaup á þremur risaþotum af gerðinni Air Bus, sem flytja 345 farþega í ferð. Air Bus þoturnar verða afhentar félag- inu á árunum 1975—76. Þessi flugvélategund er framleidd sameiginlega af brezkum, frönskum, hollenzkum, v.- þýzkum og spönskum flugvéla- framleiðendum, og kostar hver þota 55 millj. dollara. í lok tíunda starfsárs síns verður Sterling Airways — hið undraverða flugfélag danska prestsins — búið að flytja 8,8 millj. farþega á sam- tals 350.000 flugstundum. Hvaða met Sterling Airways kann að setja á næsta ári, er ómögulegt að spá um á þessu ári. 22 FV 11 1972
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.