Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 29

Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 29
frá Skotlandi til íslands 03 Icecan frá íslandi til Kanada, er hann var lagður. Þetta á líka við um Kefla- vikurflugvöll. Þar gildir sér- stakur samningur, sem ég gerði fyrir 17—18 árum um að íslendingar stjórnuðu þar allri flugumferð en í staðinn fengjum við greiðslur frá Bandaríkjamönnum. Það er rétt, að í öryggismál- unum nutum við ótrúlega mik- illar erlendrar aðstoðar, bæði frá ICAO og flugmálastjórn Bandaríkjanna og njótum enn, þótt mikið sé nú úr henni dreg- ið vegna erfiðra fjárhagsað- stæðna vina okkar. Hér var á árunum 1951—53 starfandi fjölmenn tækninefnd fra ICAO, sem aðstoðaði okkur við gagngerar endurbætur á örygg- iskerfi innanlandsflugsins. Formaður þeirrar nefndar var Bandaríkjamaðurinn Glen Goudie, sem flugmálastjórn Bandaríkjanna hafði lánað ICAO vegna þessa verkefnis. Nefndin vann frábært starf undir hans stjórn og Glen Goudie tók ástfóstri við ísland og við urðum góðir vinir. Við unnum síðan saman að því í meir en 5 ár að koma 1 kring stórfelldri tækniaðstoð frá bandarísku flugmálastjórn- inni en slík „prógröm“ voru þá í gangi víða um heim. Okk- ur fannst báðum slíkt vera réttlætanlegt vegna dvalar varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli, — það hlyti að vera báðum í hag. Þetta varð í stuttu máli ævintýraleg aðstoð, sem gjör- breytti allri aðstöðu til flugs á íslandi og bjargaði áreiðan- lega fjölda mannslífa. Þessi aðstoð heldur jafnvel áfram ennþá og fjallaði síðasti viðbótarsamningur um dýran og vandaðan tækniútbúnað 1 flugvél flugmálastjórnarinnar, sem gerir okkur kleift að halda uppi flugprófunum á öryggistækjum á jörðu niðri. Við flugprófum sömuleiðis flestöll tæki fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli og er sú þjónusta greidd af flugmála- stjórn Bandaríkjanna sam- kvæmt sérstökum samningi. — Hvernig gekk svo öflun fjárins til þverbrautarinnar á Keflavíkurflugvelli? — Varðandi lengingu þver- brautarinnar á Keflavíkurflug- velli tókst að fá 5,8 milljónir dollara frá Bandaríkjastjórn til þeirrar framkvæmdar en núverandi utanríkisráðherra beitti sér fyrir því, að ríkis- sjóður veitti 35 millj. til að koma upp nýjum öryggistækj- um á vellinum. Þegar þau eru komin í gagnið mun þörfin fyrir varaflugvöll norðanlands, eins og oft hefur verið rætt um, ekki eins brýn. Það gekk illa í tið fyrrver- andi utanríkisráðherra að fá bandarísku fjárveitinguna til flugbrautarlengingarinnar en ég held að það hafi ráðið miklu um hvernig til tókst, að við áttum hauk í horni, þar sem var formaður hermálanefndar bandaríska þingsins, Mendel Rivers. Þegar málið var komið í strand hér heima fór ég með samþykki þáverandi sam göngumálaráðherra og fjár- málaráðherra til Washington og ræadi við þennan gamla kunningja minn. Hann beitti sér í málinu og fékk þessa upphæð tekna inn á fjárlög Bandaríkjanna. Ég efast ekki um að ýmsir aðrir hafi einnig beitt sér í þessu máli en af- staða Mendel Rivers réði úr- slitum. Svo hörmulega vildi til að hann lézt skömmu seinna. Eftir að stjórnarskiptin urð\3 síðast hjá okkur mun nokk- urn ugg hafa sett að þing- mönnum í nefndinni, sem batt þessar framkvæmdir því skil- yrði, að varnarliðið yrði hér áfram. Svo unnu ýmsir að því að losa þessa fjárveitingu und- an ákvæðinu, þar á meðal starfsbróðir minn vestra, sem ræddi málið við hermálaráð- herrann Laird. Þá held ég að heimsókn Hannibals Valde- marssonar, samgönguráðher ra, til Bandaríkjanna og samtöl hans við ráðamenn þar, hafi ráðið mestu um, að Banda- ríkjamenn gerðu sér ljóst, að þetta var ekki skynsamlegt ákvæði. Okkar hlutskipti í þessum málum hefur sem sagt verið gott og þessi aðstoð erlendis frá hefur verið ótrúleg bæði að magni og gæðum. Starfs- bróðir minn frá Bandaríkjun- um, sem nýtekinn var við em- bætti flugmálastjóra vestan hafs sagði, þegar hann kom hingað einu sinni og sá fjöldan allan af nýjum tækjum fra bandarísku flugmálastjórninni hérna í turninum: — Jæja, Agnar. Næst læt ég leita á þér, þegar þú ferð heim frá Washington! — Eru líkur á að fjárfram- lag ICAO til flugstjórnarinnar hér verði fellt niður á næst- unni? — Þau mál verða rædd á fundi í París í marz. Með tilkomu nýjunga í fjarskipta- tækni, eins og gervihnatta, hafa ýmsir haldið því fram, að þjónustan frá íslandi væri ónauðsynleg Atlantshafsflug- inu. í París verður áreiðanlega reynt að koma málum svo fyr- ir, að það verði flugfélögin sjálf en ekki flugmálayfirvöld hvers ríkis. sem greiði kostn aðinn aí þessari þjónustu, og þá miðað við tíðni ferða um flugstjórnarsvæðið. Að sumu leyti stöndum við betur að vígi nú í þessu máli en t.d fyrir níu árum, þegar það var ofarlega á baugi að leggja þjónustuna á íslandi niður. Umferðin hefur auk- izt verulega um íslenzka flug- stjórnarsvæðið, þannig að hér fara um liðlega 32 þúsund flugvélar á þessu ári. Stafar þetta meðal annars af því, að beinum ferðum milli vestur- strandai Ameríku og Evrópu, yfir heimskautasvæðin, fjölgar. — Viðræður fara nú fram milli íslenzku flugfélaganna um samstarf eða sameiningu og hömlur á heirri sa.mkeppni, sem þau hafa háð í fluginu til Norðurlandanna. Hver er hugs- anleg lausn þess máls? — Það er augljóst, að sam- keppni milli tveggja íslenzkra aðila, jafngrimm og hún virð- ist vera þarna, er ekki eðlileg. Ég trúi því, að félögin leysi sjálf þessi vandamál. Afskipti ríkisvaldsins eru óheppileg, því að hér er um að ræða tvö einkafélög, sem greitt hafa sína skatta og stað- ið við skyldur sínar gagnvart ríkinu auk þess sem lands- menn hafa notið ágætrar þjónustu þeirra. Samvinna þeirra væri hinsvegar mjög heppileg, En að segja Flugfé- lagi íslands og Loftleiðum að sameinast er líkt og að skipa Reykjavíkurapóteki og Lauga- vegsapóteki að ganga í eina sæng. Félögin verða sjálf að gera sér ljósa þörfina fyrir samvinnu eða sameiningu. Bæði félögin eiga mikinn sögulegan rétt til Norðurlanda- flugsins, en vitað er að afkoma millilandaflugs Flugfél. íslands byggist að mjög verulegu leyti á fluginu til Kaupmanna- hafnar og Osló. Loftleiðir hafa FV 11 1972 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.