Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 53

Frjáls verslun - 01.11.1972, Blaðsíða 53
Hugmyndir um Nordek Eftir dr. Guðmund IVIagnússon, prófessor NORDEK hefur oft verið hugsað, en aldrei orðið til. Segja má, að það sannist um norrænt efnahagssamstarf, að hver sé sjálfum sér næstur, þegar á rcynir. Sannleikurinn er sá, að Norðurlandaþjóðirnar hafa sýnt NORDEK mismun- andi áhuga frá einum tíma til annars og liagað seglum eftir vindi. Nú er svo komið, eftir inngöngu Dana í Efnahags- bandalag Evrópu, að NORDEK verður sennilega aldrei að veru- leika í þeirri mynd, sem fyrir- hugað var. ÞRJÁR MISHEPPNAÐAR TILRAUNIR. Hið formlega efnahagsstarf getur verið með ýmsum hætti. EFTA hefur til dæmis verið tiltölulega laust í reipunum. Það hefur alltaf verið hugsað sem bráðabirgðalausn og tekur einungis til fríverzlunar á iðn- aðarvörum og nokkrum tegund- um sjávarafurða. Þetta hefur gefið góða raun, en fyrirsjáan- legt var, að aldrei yrði hægt að ná verulegum árangri með þeim hætti. Þess vegna hefur NORDEK verið til athugunar og svo hafa að sjálfsögðu mörg lönd sætt lagi að komast inn í Efnahagsbandalagið og önnur að tengjast því með einum eða öðrum hætti. Bretland, írland og Danmörk munu ganga í bandalagið, sem þá telur niu lönd, en önnur EFTA-lönd munu gera viðskiptasamninga við það. Gerðar hafa verið þrjár al- varlegar tilraunir eftir stríð til að mynda norrænt efnahags- bandalag. Árið 1947 var athug- að, hvort ekki væri gerlegt að koma á fót tollabandalagi, en það kafnaði í fæðingunni, ekki sízt fyrir tilstilli Norðmanna, sem óttuðust að iðnaður þeirra gæti ekki staðið iðnaði Svíþjóð- ar og Danmerkur á sporði. Eft- ir að Norðurlandaráð var stofn- að (1952), var sett á laggirnar embættismannanefnd frá öllum Norðurlöndunum, að íslandi undanskildu, sem einungis fylgdist með störfum nefndar- innar. Var unnið að þessu til 1958 og settar fram tillögur um tollprósentur og ýmsar sam- starfsstofnanir, svo sem fjár- festingarbanka og stálsam- steypu. Einnig í þetta sinn var andstaðan sterkust í Noregi og ráðagerðin rann út í sandinn í og með vegna stofnunar EFTA árið 1960. SMÁFYRIRTÆKIN HÖGNUÐUST Á EFTA-AÐILD Athyglisvert er hins vegar, að þeir aðiljar í Noregi, sem mest voru á móti NORDEK á þessum tíma, voru upp til hópa hlynntir inngöngu Nor- egs í EFTA. Á íslandi aftur á móti eru til þeir, sem voru eindregið á móti EFTA, en með NORDEK, samanber núverandi iðnaðarráðherra. En allt er þegar þrennt er. EFTA- samstarfið hafði í för með sér aukna samvinnu milli fyrir- tækja á Norðurlöndum og raunin varð sú, að smáfyrirtæk- in í Noregi, sem annars staðar, nutu hags af aðildinni. Því verður a. m. k. tæplega haldið fram, að kostirnir hafi í heild ekki verið meiri en gallarnir — og það einnig hér á landi. Þetta tók mesta skrekkinn úr mönn- um og ástæða var til að ætla, að iðnaðurinn á Norðurlöndum yrði ekki eins hræddur við enn fastmótaðra efnahagssamstarf og áður. Það, sem ýtti undir, að NORDEK-hugmyndin var sett fram þriðja sinni, var m. a., að Norðurlöndin höfðu myndað eina samningsheild í svoköiluð- um Kennedyviðræðum innan GATT 1966—67 og náð með því umtalsverðum árangri. Sömuleiðis var, eins og áður er sagt, talið, að EFTA væri of laust í reipunum til að efla frekari efnahagssamvinnu. Auk þess vildu margir mynda sam- eiginlega afstöðu og byggja upp samningsheild gagnvart Efna- hagsbandalaginu. Ég held, að tvímælalaust megi segja, að NORDEK hafi aldrei — og muni aldrei geta — komið í stað Efnahagsbandalagsins, heldur orðið Norðurlöndunum til halds og stuðnings, hvort sem öll eða einstök þeirra færu inn í EBE, fyrr eða síðar. Þetta var líka tekið fram í þriðju NORDEK- tillögunni, sem síðar var kennd við Reykjavík. Ein- hver stjórnmálamaður sagði þá reyndar, að tillagan væri frem- ur leiðinleg og laus við alla hugsjón, en margir fundu á sér, að nú voru síðustu forvöð að ákveða sig, áður en einhver Norðurlanda stykkju inn í EBE. ÓLÍK AFSTAÐA TIL NORDEK Norðmenn vildu ekki verða til þess að eyðileggja hugmynd- ina að þessu sinni. Svíar, sem yfirleitt höfðu verið hlynntir NORDEK, voru eindregið með, (en höfðu á tíma sýnt lítinn áhuga, þegar full aðild þeirra að EBE kom til greina). Danir höfðu verið nokkuð Ivístígandi, vegna þess að þeir töldu, að NORDEK væri ekki nógu góð lausn fyrir danskan landbúnað og gæti jafnvel verið hindrun, þegar til samninga við EBE kæmi. Reyndar má segja, að í NORDEK-áætlununum hafi aldrei verið gengið frá tíma- FV 11 1972 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.