Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1972, Síða 82

Frjáls verslun - 01.11.1972, Síða 82
Frá ritstfórn HUGLR ALÞINGIS TIL VERZLUIMARIININIAR Fyrir Alþingi liggur nú athyglisverð til- laga til þingsályktunar um fjárhagslegan stuöning við upplýsinga- og rannsóknar- stofnun verzlunarinnar. Það eru þrír þing- menn Sjálfstæðisflokksins, sem tillögu þessa flytja, en 1 henni er gert ráð fyrir. að ríkisstjórnin hlutist til um að ríkis- sjóður veiti sérstakri upplýsinga- og rann- sóknarstofnun verzlunarinnar hliðstæöa fjármagnsfyrirgreiðslu og aðrar höfuðat- vinnugreinar í landinu eru þegar aðnjót- andi. í greinargerð með tillögunni er rakið. hvernig sjávarútvegur, landbúnaður og iðnaður hafa með stuðningi ríkissjóðs ráð- izt í umfangsmikla upplýsingasöfnun og gagnavinnslu auk þess sem reknar séu sérstakar rannsóknarstofnanir í þágu þess- ara atvinnugreina. Flutningsmenn benda réttilega á, að' verzlunin sé mjög afskipt í þessum efnum, en þar sem um eina af aðalatvinnugrein- um landsmanna sé að ræða, — mjög margþætta grein bæði að því er varðar mismunandi verzlunarstig, verzlunarform og tegund vöru og þjónustu — beri að leggja höfuðáherzlu á ítarlega könnun á afkomu og öðrum helztu rekstrarstærðum verzlunarinnar, hinum ýmsu starfsþáttum hennar og skipulagsuppbyggingu, svo og framlagi verzlunarinnar til þjóðarbúskap- arins og ööru, sem yrði til að auka almenna þekkingu á verzluninni í land- inu og mikilvægu hlutverki hennar. Þessi þingsályktunartillaga er endurflutt frá síðasta þingi, þar sem hún náði ekki að hljóta afgreiðslu. Tillagan fékk sem sagt engar undirtektir þingheims og var svo reyndar um fleiri mál, er snertu verzl- unina beint. Samtök verzlunarinnar og forystumenn þeirra einkanlega hljóta aö líta þróun þessara mála mjög alvarlegum augum sem eðlilegt er. Af hverju virðist verzlunin eiga málsvara fáa á Alþingi íslendinga? Er þaö ekki einfaldlega vegna þess að hún hefur látið aðrar atvinnugreinar ná algjöru for- skoti í kröfupólitík og þrýstiaðgerðum gagnvart löggjafarsamkundunni? Væri vel, ef forystumenn verzlunarinnar tækju sig saman í andlitinu og reyndu af alefli að beita áhrifum sínum sameiginlega og hver í sínu lagi til þess að tillagan um upplýsinga- og rannsóknarstofnun verzl- unarinnar næði fram að ganga á því Al- þingi, sem nú situr. Þar meö væri unn- ið ákveðið prófmál í þessum efnum og eftirleikurinn yrði vonandi sá, aö verzlun- in fengi aö sitja viö sama borð og aörar höfuögreinar í íslenzku atvinnu- og at- hafnalífi. En í þessu sambandi er líka rétt að hug- leiða, hvort samtök verzlunarinnar hafi treyst um of á ákveðin öfl á þingi, sem í reynd hafa sýnt engu minni skeyting- arleysi um hagi verzlunarinnar en allii' hinir. Hvað um fyrrverandi viðskipta ■ málaráðherra þessa lands? Ekki var óeðli- legt, að kaupsýslu- og verzlunarmenn hefðu talið, að sá aðili, sem lengst hef- ur gegnt þessu embætti hér á landi og oftast kynnt sig á opinberum vettvangi sem málsvara verzlunarinnar, myndi þegar á reyndi vera þeim ekki síður innan hand- ar en aörir forystumenn í íslenzkum stjórnmálum. Sú von hefur gjörsamlega brugðizt. Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptaráðherra íslands í 12 ár, réði nefnilega úrslitum um, aö tillaga um jafnsjálfsagöan hlut og skipan þing- nefnda til að fjalla um verzlunar- og við- skiptamál var felld á síðasta Alþingi. 82 FV 11 1972
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.