Frjáls verslun - 01.05.1973, Blaðsíða 6
IMokkrir sýnendur:
Vörumarkaðurinn hf.
Vörumarkaðurinn h. f. hefur 75 m2 sýningar-
svœði til umráða á sýningunni „Heimilið ’73“ og
þar sýnir fyrirtækið húsbúnað og rafmagnsvör-
ur. Vörumarkaðurinn hefur áður telcið þátf í
sýningu sem þessari og tjáði Ebenezer Ás-
geirsson forstjóri okkur að greinileg aukning
hefði orðið í sölu eftir þá sýningu og taldi hann
sýningar sem þessar alveg bráðnau&synlegar öðru
hvoru.
Hann er mjög bjartsýnn varðandi þessa sýn-
ingu og horfir ekki í þá hálfu milljón sem hann
taldi líklegan kostnað við bás fyrirtækisins. Það
er Agla Marta Marteinsdóttir, sem teiknað hefur
básinn, og aðstoðaði hún við uppfærslu muna á
sýningunni.
SKÁPAHURÐIR í KÚREKASTÍL.
Vörumarkaðurinn sýnir núna Elektrolux-
eldhústæki, þ. e. eldavélar, ísskápa og upp-
þvottavélar í litum, sem tiltölulega nýlega er far-
ið að flytja inn, þó að verzlunin hafi haft um-
boð fyrir vörur þessa sænska fyrirtækis frá upp-
hafi. Einnig eru þarna Rowenta-glóðarsteik-
ingarofnar og djúpsteikingarpottar auk ýmissa
annarra minniháttar rafmagnstækja frá því fyr-
irtæki. Þá eru þar til sýnis hurðir fyrir eld-
hússkápa, sem Vörumarkaðurinn hyggst hefja
innflutning á. Eru þetta furu-hurðir í kúrekastíl
framleiddar í Bandarikjunum en verða keyptar
frá Svíþjóð og eru þær ,,bæsaðar“ brúnar og
grænar.
Borð, stólar og skápar í ,,Bonanza“ stíl eru
þarna til sýnis og eru þessi húsgögn framleidd
hér á landi utan stólarnir en þeir eru innfluttir
frá Rúmeníu. Sænsk borðstofuhúsgögn úr birki
eru þarna, svo og einfaldir og léttir millivegg-
ir úr tré og máluð tréhúsgögn ætluð unglingum.
Einnig má þarna sjá íslenzk járnrúm, bæði ein-
staklings- og hjónarúm.
Þó að matvara sé stærsti söluvarningur Vöru-
markaðarins er hún ekki sýnd þarna að þessu
sinni. Að því er Ebenezer tjáði okkur eýkst
velta fyrirtækisins jafnt og þétt og hefur gert
um árabil. Til dæmis sagði hann, að á þessu ári
væri þegar sjáanleg 70% aukning í öllum deild-
um fyrirtækisins. Húsnæðið sagði hann löngu
vera orðið of lítið og hamlaði fjármagnsskortur
því, að ekki hefði verið hafizt handa við bygg-
ingu 1400 fermetra húss á baklóð fyrirtækisins
í Armúla, sem leyfi er fyrir, og þegar hefur verið
teiknað og samþykkt.
Friðtik Bertelsen hf.
Það er mjúkt undir fót á þeim 136 fer-
metrum sem Friðrik Bertelsen hefur til umráða
á heimilissýningunni í Laugardalnum því allir
eru þeir lagðir dúnmjúku Ijósu teppi með
röggva-vefnaði, utan eitt hornið þar sem sett
var upp eldhúsinnrétting og er sá flöt-
ur lagður teppi frá Barwick í Englandi en teppið
er sérstaklega œtlað til notkunar í eldhúsi.
Þetta eru mynstruð, litsterk teppi með þykk-
um svampbotni og eiga að þola svo til allt en
þau eru hreinsuð þannig að blettir eru stroknir
af með deigum klút og síðan er ryksugað.
Friðrik Bertelsen forstjóri tjáði okkur að hann
hefði nú um nokkurt skeið flutt þessi teppi inn
en hingað til hefði hann ekki auglýst þau og
mætti því segja að hann væri að kynna þessi
eldhústeppi á sýningunni. Að öðru leyti sýn-
ir Friðrik eingöngu þarna teppi af fjöl-
mörgum gerðum, sem hann flytur inn frá Bret-
landi, en þau eru í mörgum verðflokkum allt
frá því um 850 krónur fermetrinn upp í um
3.200 krónur fermetrinn. Dýrustu teppin eru úr
blöndu sem er 80% ull og 20% nylon en þau
ódýrari eru yfirleitt 40% ull, 40% Evlan og
20% nylon en af þeim sagðist Friðrik selja mest.
TEPPl SELD AF LAGER.
Helztu fyrirtækin sem Friðrik skiptir við í
Bretlandi eru BMK og Bond Worth. Hann hefur
áður tekið þátt í sýningum sem þessari og telur
að af þeim sé mikið gagn en þær megi þó ekki
vera oftar en einu sinni á ári m. a. vegna kostn-
aðar sem hann sagði alltaf töluverðan. Eins og
áður sagði, sýnir hann eingöngu þarna teppi, þó
aðeins um helmingur veltu fyrirtækisins sé teppa-
sala. Um tvö ár eru síðan Friðrik fór að selja
teppi af lager, en áður pantaði hann sérstaklega
fyrir viðskiptavini sína. Sagði hann að við þessa
breytingu hefði salan aukizt gifurlega. Hann
sagðist yfirleitt hafa selt ofin teppi með
Wilton eða Axminster vefnaði. í bás Friðriks
Bertelsen eru húsgögn frá Húsgagnaverzlun-
inni Dúnu í Glæsibæ.