Frjáls verslun - 01.05.1973, Blaðsíða 33
Samtiðarmaður
„ Gróðri á fjölförnustu ferðamanna-
stöðum í óbyggðum hætta búin**
— Bæta þarf snyrtiaðstöðuna við fjölförnustu leiðir til muna.
— Rætt við Guðmund Jónasson um ferðamennsku og ýmislegt, er á
daga hans hefur drifið.
mun hafa rennt grun í að upp
risi þetta stóra samgöngufyrir-
tæki, þegar Guðmundur eign-
aðist fyrstu bifreið sína, Ford-
vörubíl, norður á Hvamms-
tanga árið 1930. En með því
að leggja nótt við dag í keyrsl-
unni, flytja salt og fisk á
vörubílum, vinnuflokka í
boddibílum. skólabörn í far-
þegavögnum og geysast um
harðfennið á snjóbílum, ýmist
með heyforða handa sveltandi
búpeningi eða vísindamenn til
jöklarannsókna, hefur Guð-
mundur komið upp heilli sveit
glæsilegra faratækja, þeirra
fullkomnustu og þægilegustu,
sem íáanleg eru til fjölda-
akstuvs með farþega. En samt
er ekki slakað á. Vinnudagur-
inn ei enn iðulega 17-18
klukkustundir hjá þessari
kenrou, sem nú er á 64. aldurs-
árinu.
Guðmundur Jónasson hefur
bækistöð fyrir bíla sína, við-
gerðarverkstæði og skrifstofur
við Lækjarteig í Reykjavík.
þegar tíðindamaður Frjálsar
verzlunar sótti Guðmund heim
eitt kvöldið núna í maí var
honum heitt í hamsi, því að
búið var að loka öllum að-
keyrdum til bækistöðva hans
vegna gatnagerðarfram-
kvæmda á Laugarnesvegi. Var
þessu þó fljótlega kippt í lag
fyrir tilstuðlan embættismanna
borgaiinnar, en Guðmundur
sagði þetta gefa glögga mynd
af þeim vandræðum,, sem oft
kæmu upp í sambandi við rek-
stur á mörgum langferðabílum,
er verða að eiga einhvern
samastað í borginni.
Þegar við höfðum fengið
Með fáum eða engum flutn-
ingafvrirtækjum, sem flytja
farþega landveg hér innan-
lands, hafa jafnmargir ferðazt
og með Guðmundi Jónassymi
h.f. Eru þá að sjálfsögðu und-
anskilin fyrirtæki eins og
Strætisvagnar Reykjavíkur og
Kópavogs og Landleiðir. Guð-
mundur Jónasson hefur nú
um árahil annazt flutninga
fólks og farangurs milli
Reykjavíkur og Keflavíkur-
flugvallar, sem hefur verið
sívaxandi flugstöð. í fyrra
komst ferðafjöldi þarna á
milli í 466 ferðir í júlímánuði,
fyrir íslenzku flugfélögin. Auk
þessa efnir Guðmundur Jónas-
son til hópferða um óbyggðir á
surnrin, sem náð hafa miklum
vánsældum bæði hjá innlendu
og erlendu ferðafólki.
Mjór er mikils vísir og fæsta
Guðmundur Jónasson á hlaðinu við bækistöð sína á Lækjarteigi
í Reykjavík.
FV 5 1973
25