Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.1973, Síða 60

Frjáls verslun - 01.10.1973, Síða 60
ekki bara endurspeglun af því, sem er að gerast erlendis, heldur á sínar forsendur í því kerfi, sem við íslendingar búum við. Ég nefndi þess- ar tölur frá 1972, því að þar álít ég að farið hafi verið á móti tímans straumi, ef mið er tekið af þróun í nágrannalöndunum að minnsta kosti. Þar hefur sú stefna verið ríkjandi að auka óbeina skatta að tiltölu. Hér snýst þetta aftur á móti við og ég held að það mótist að sumu leyti af stjórnarskiptunum, en í grund- vallaratriðum af viðhorfum verkalýðsfélaganna. Það hefur verið trúaratriði hjá þeim, að óbeinir skattar kæmu tiltölulega þyngra niður á laun- þegunum en beinir. Ég held að þetta sé vafa- samt af tveimur ástæðum. í fyrsta lagi er skatt- heimtukerfið ekki fullkomið og talsverður hóp- ur getur svo að segja ráðið, hvað hann telur fram. Því lendir tiltölulega meira á þeim, sem sýna einhverjar tekjur, ef innheimta á ákveðna upphæð til ríkissjóðs. Væri þetta fært yfir í óbeina skatta þyrftu allir að borga skatt, á nán- ast öllu, sem þeir keyptu. Sömuleiðis held ég, að þetta sé arfleifð frá bví. að kringum aldamótin var ekki hægt að innheimta annað en beina skatta, af því að svo lítið af vörum fór á markaðinn. Það var verzlað í fríðu. En viðhorfin eru svo breytt núna, að verkalýðsfélögin ættu að fara að átta sig á þessu. .Tón: Eitt viðbótaratriði er kannski rétt að nefna í þessu sambandi, sem sé. hvernig þessi heildarskattlagning lendir á fólki með mismun- andi tekjur. Tekiuskattsstiginn hjá okkur rís miög brattur. Menn eru á tiltölulega mjög þröngu tekjubili komnir með aðaltekjur sínar upr> í hæsta skatt, sem er rúmlega 55%. Þeg- ar bessari skattlaeningu sleppir, sem er stig- hækkandi. bá er kannski öll önnur tekiuöflun ríkisins stiglækkandi miðað við tekjur. Það er full ást.æða til að ætla. að skattlaening eins og söluskattur og tollar af svokölluðum munaðar- vörum, séu raunverulega hærra hluífall af tekj- um lágtekiumanna en hátekiumanna. Þegar Jón .Tónsson. verkamaður, kaupir sér ísskáp, borgar hann svo stóran hlut af tekium sínum í toll og söluskatt. að bað vegur mikiu meira en hjá manni, sem hefur hærri tekjur. Brvnjólfur: Nevzluvenjur manna hljóta þó að mótast af fyrirkomulaeinu, sem ríkir. Sé eng- inn beinn skattur og aðeins óbeinn skattur eins og söluskattur er verið að skattleggja þann, sem efnameiri er, því að hann kaupir þá dýrari ís- skáp. Jón: Almennt séð held ég að bessi skattlagn- ing sé stiglækkandi. Útvarpsgjaldið er eitt og hið sama burtséð frá tekjum manna og sama er að segja um svo mörg önnur gjöld, sem menn borga. Ouðmundur: Lágtekjumaður evðir yfirleitt tiltölulega stærri hluta af sínum tekjum í vör- ur og þiónustu. En það eru vfirleitt þeir, sem hærri tekjur hafa, sem tök hafa á að spara. Með varanlegum skatti af þessu tagi lendir sparnað- urinn þó fvrr eða síðar í skatti líka. Til frekari skvringar þá skulum við taka dæmi um lág- tekiumann, sem evðir öllum sínum tekjum í ísskáp og nauðsynlegar vörur og bjónustu, og hinn efnameiri eyðir tiltölulega minna af sín- um tekjum, hvort sem það er skattur eða ekki, en sparar. Spamaðurinn sleppur í bili við skatta, en ef við segjum að tilgangurinn sé að auka neyzluna síðar, þá lendir sparnaðurinn fyrr eða síðar í skatta. Það er að vísu hugsan- leg útkoma, að skattheimtan lendi þyngra á lág- tekjumanninum. Ekki er unnt að tala um meiri eða minni skattbyrði, nema í samanburði við aðra tegund skatts. Þannig er óhagstæðara fyrir þann, sem engan tekjuskatt borgar, hvort eð er, að söluskattur sé tekinn upp í stað tekjuskatts. En ég hef þá trú, að það verði miðtekjuhópur- inn, sem er svo fjölmennur hérlendis, sem mundi fá léttari skattbyrði með aukningu óbeinna skatta að tiltölu við hina. Hjörtur: í neyzluþjóðfélagi eins og hjá okkur er viss hluti neyzlunnar hliðstæður hjá öllum, þ. e. a. s. að fullnægja ákveðnum þörfum. Þeg- ar komið er upp fyrir það tekur eyðsla tekju- hærri mannsins við. Það er að vísu rétt, að hann eyðir ekki í sama hlutfalli og á þarfa- stiginu, því að hann er að veita sér eitthvað fram yfir það. Engu að síður er öll umfram- neyzla viðbótarskattlagning. Og eins og Guð- mundur benti réttilega á, gufa þessir peningar ekki upp. Þeir koma einhvers staðar fram, ann- að hvort í eyðslu bess. sem aflar þeirra eða sparnaði. Há bein skattlagning hvetur ekki að sama skapi til ráðdeildar. Brynjólfur: Hér hlýtur líka að koma inn þjóð- hagslegt mikilvæei verðmætasköpunar og nýt- ing framleiðsluþátta. Of háir beinir skattar draga úr vilja manna til að vinna. FV: Hverjtr eru helztu annmarkar á obeinum sköttum ? A5 hve miklu leyti telja menn eðlilegt, að hið opinbera afli tekna sinna með þeim ? Jón: Ég held að erfitt sé að tala um alla óbeinu skattana sem heild í þessu sambandi. Ef við tökum söluskattinn eins og hann er, verð- ur að viðurkennast, að hann hefur mikla inn- byggða vankanta, einkum eftir að hann er orð- inn svo hár sem hann er núna. Uppsöfnunar- áhrifin geta verið mjög neikvæð fyrir ýmsan atvinnurekstur og leitt í raun og veru til tví- sköttunar á sömu vörunni eða þjónustunni og valdið því, að hlutur söluskattsins í hinni end- anlegu seldu vöru eða þjónustu verði mismun- andi mikill. Þetta eru vandkvæði, er virðisauka- skattkerfið siglir hjá. Til nánari skilgreiningar á uppsöfnunaráhrifum nefni ég, að fyrirtæki þarf að borga söluskatt af rafmagni, sem það notar á vélarnar og síðan leggst söluskattur að nýju á vöruna, sem það selur. Þannig er meiri söluskattur í vörunni, þegar hún er seld en svarar beim 11% plús 2%, sem lagt er á loka- framleiðsluna. Brynjólfur: Það verður áreiðanlega að gera ráð fyrir einhverjum takmörkum á hæð sölu- skatts sem óbeinum skatti. Að öðrum kosti hvet- ur of há söluskattsprósenta til undanþága og fiO FV 10 1973
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.