Frjáls verslun - 01.01.1974, Blaðsíða 57
Hafskip h.f.
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
sími 21160.
Framkvæmdastjóri:
Magnús Gunnarsson.
Stiórnarformaður;
Magnús Magnússon.
Skip 1 eigu Hafskips hf. eru
M.s. Selá, Rangá og Langá.
Selá er 1056 brúttó tonn,
Rangá 975 brúttó tonn og
Langá 1401 brúttó tonn.
Leiguskip félagsins eru tvö,
M.s. Laxá og M.s. Vestri.
Félagið siglir reglulega á 10
daga fresti til Hamborgar og
Antwerpen. Hafa skipin reglu-
lega viðkomu í Reykjavík, á
Akureyri og Húsavik. Einnig
hafa reglubundnar siglingar
til norðurlands gefizt mjög
vel, að sögn Magnúsar Gunn-
arssonar, framkvæmdastjóra.
Skip félagsins sigla á 2ja
vikna fresti til Kaupmanna-
hafnar, Gautaborgar og Fred-
riksstad. Á 4ra til 5 vikna
fresti er siglt til Gdynia og
Gdansk í Póllandi, Þránd-
'heims í Noregi og Goole í
Englandi.
Flutningsgeta Selár er 1170
ir:íir, Rangár 1670 lestir, og
Largár 2230 lestir.
Starfsmenn fyrirtækisins eru
um 80 manns og er fyritæk-
inu skipt í megin dráttum í
fjármáladeild, flutningsdeild
og vöruafgreiðslu. Skip Haf-
skips eru eingöngu flutninga-
skip og taka ekki farþega.
Öll starfsemi Hafskips h.f.
er nú í góðu gengi og hefur
félagið, sem kunnugt er tekið
upp samvinnu við flugfélagið
Iscargo h.f.
Vörugeymslur Hafskips h.f.,
eru staðsettar á 3 stöðum í
Reykjavík, á Eiðsgranda, í
Örfirsey og í gamla Tivolí.
Fyrirtækið reynir að veita öll-
um landshlutum sem mesta
þjónustu, og er nú verið að
reyna að finna hentug skip
fyrir Hafskip h.f. um þessar
mundir.
Að sögn Magnúsar Gunnars-
sonar er verið að endurskoða
starfsemi Hafskips h.f. og taldi
hann ekki tímabært að skýra
frá þeim nýjungum, sem fyrir-
tækið hyggst hrinda í fram-
kvæmd nú. Að lokum sagði
Magnús, að Hafskip h.f. ætti
í sömu erfiðleikum við að fá
olíu erlendis og öll önnur
skipafélög.
Skipaútgerð
ríkisins
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
sími 17650.
Forstjóri:
Guðjón Pétursson.
Fjöldi skipa í eigu Skipaút-
gerðar ríkisins er þrjú strand-
ferðaskip, og eru það M.s. Hekla,
M.s. Herjólfur og M.s. Esja. Fé-
lagið rekur siglingar við strend-
ur landsins og fara Hekla og
Esja í reglubundnar hringferðir
um landið með viðkomu í öll-
um helztu höfnum. Tíðni ferða
hvers skips er ein ferð á 11-14
daga fresti. Ganga skipin hvert
á móti öðru, þannig að annað
fer í hringferð vestur um land,
en hitt austur um land.
M.s. Herjólfur fer að jafnaði
tvær ferðir á viku frá Reykja-
vík til Vestmannaeyja. Skipaút-
gerðin hefur enlgin leiguskip.
Skipin eru um 700 brúttó-
tonn og er farmgeta þeirra á-
líka mikil. Farmrými er um 67
þúsund rúmfet (sekkjahleðslu-
rúmmál) í Heklu og Esju, þar af
er frystilest skipanna 8600 rúm-
fet. Frystilestin er í tvennu lagi,
þannig að unnt er að hafa frost
í annarri, en ekki hinni. Er það
sérlega hagstætt t. d. í beitu-
flutningum.
M.s. Herjólfur er 500 brúttó-
lestir og hefur skipið 200 tonna
burðargetu. Lestarrými er 9208
rúmfet, þar af er kælilest til
mjólkurflutninga 1617 rúmfet.
M.s. Herjólfur hefur 5 tonna
lyftigetu, en Hekla og Esja hafa
20 tonna lyftigetu hver um sig.
Svefnrými er fyrir 12 farþega
í Heklu og Esju og sæti í sal
fyrir milli 30 og 40 manns.
Fastasvefnrými í Herjólfi er
fyrir 21 farþega og varasvefn-
rými fyrir 12. Skipið hefur
leyfi til að flytja 60-80 farþega
að jafnaði.
Skipin stunda aðallega vöru-
flutninga. Hekla og Esja til
flestra hafna landsins og Her-
FV 1 1974
57