Frjáls verslun - 01.04.1974, Blaðsíða 36
Ráðgjafaþjónusta
dr. Kjarfans
Jóhannssonar
Dr. Kjartan Jóhannsson,
rekstrarverkfraeðingnr rekur
ráðgjafaþjónustu á sviði skipu-
lagningar og áætlanagerðar.
Starfsmenn auk hans eru þrír
viðskiptafræðingar og skrif-
stofustúlka. Ráðgjafaþjónustan
er til húsa að Óðinsgötu 4,
Reykjavík.
Helztu verkefni fyrirtækis-
ins hafa verið á sviði áætlana-
gerðar og rekstrarskipulags.
Rekstraráætlanir og arðsemis-
mat hefur verið framkvæmt
í sambandi við verkefni eða
fyrirtæki á vegum einkaaðila
og hins opinbera.
Þá hefur ráðgjafaþjónustan
samið framkvæmdaáætlanir
fyrir sveitarstjórnir og opin-
bera aðila. Ennfremur unnið
að skipulags- og þróunarat-
hugunum, þar á meðal á sviði
heilbrigðismála.
Gerðar hafa veriði á-
ætlanir stofnana með tilliti til
þjónustu og húsrýmis og for-
sagnir fyrir nýbyggingar
samdar. Þá tekur þjónustan
einnig að sér að gera skipu-
lags- og rekstrarúttektir á all-
flóknum stofnunum og fyrir-
irtæ-kjum og unnið hefur verið
að slíkum verkefnum.
Hjá ráðgjafaþjónustunni er
einnig unnið að greininu
framleiðslu-, og birgðahalds-
og innkaupakerfa og stjórnun-
arreglur mótaðar, svo og hef-
ur fyrirtækið unnið að grein-
ingu dreifikerfa og athugun á
flutningskostnaði.
VINSÆLAR ORLOFSFERÐIR
í sumar og haust til Möltu — sólskinseyjar Miðjarðarhafsins.
Brottför: 15. júní, 6. júlí, 3., 17. og 31. ágúst og 14. september.
MALTA ER PARADÍS FERÐAMANNSINS
Malta hefur upp á margt að bjóða fyrir ferðamanninn:
Milt og þœgilegt loftslag - góð hótel, þjónustu og víðkunna gestrisni - gœði í mat og drykk - bað-
strendur lausar við alla mengun - glaðvœrð og skemmtanir við allra hœfi - hagstœtt verðlag.
Til Agadir í Suður-Marokkó á vesturströnd Afríku.
Önnur hópferð okkar d þessar vinsœlu ferðamannaslóðir Afríku, þar
sem sumar ríkir allt árið, verður farin 6. október.
Skipuleggjium ferðir um allan heim fyrir hópa jafnt sem
einstaklinga.
Ferðamiðstöðin hf.
Aðalstræti 9 — Símar 11255 og 12940.
36
FV 4 1974