Frjáls verslun - 01.04.1974, Blaðsíða 61
Þjórfé
Mjög lítið eru um að þjórfé sé gefið í Osló.
Þjónustugjald er innifalið í hótelreikningnum,
en aðeins burðarmönnum er gefið þjórfé. Ekki
er ástæða til að gefa starfsfólki hótelsins
þjórfé, nema það hafi innt af hendi sérstaka
þjónustu.
Skemmtanir
Þeir kaupsýslumenn, sem kjósa að sækja næt-
urklúbba komast að raun um að fáir nætur-
klúbbar eru starfræktir í Osló. En nokkrir
þeirra eru þó opnir allan ársins hring.
5 leikhús eru starfandi í Osló. Stærst þeirra
er þjóðleikhúsið. Yfirleitt eru sýnd í einhverju
þeirra leikrit eftir Ibsen, Bjþrnson eða Holberg,
svo og ýmis ný og gömul verk. Leikhúsin eru
opin frá 10. ágúst til 15. júní.
Viðskipti
Verzlanir eru opnar á mánudögum, þriðju-
dögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl.
8.30-17.00, en á fimmtudögum er opið til kl.
19.00. Verzlanir hafa yfirleitt opið á laugar-
dögum frá kl. 8.30-14.00.
Að komast leiðar sinnar
Engum vandkvæðum er bundið að komast
um í Osló. Almenningsvagnar aka um borg-
ina þvera og endilanga frá morgni til kvölds,
þá eru einnig lestir í ferðum allan daginn.
Sömuleiðis geta menn tekið bifreið á leigu eða
ekið með leiguibifreiðum.
Edinborg
Til Edinborgar, höfuðborgar Skotlands hafa
margir íslendingar lagt leið sina í viðskipta-
erindum. Borgin er íslendingum góðkunn, og
leggja margir íslenzkir námsmenn stund á nám
í háskólanum þar. Enginn veit með vissu, hve
gömul borgin er, en talið er, að elzta bygging-
in í borginni sem enn stendur sé frá érinu
1076.
Hótel
í Edinborg eru fjölmörg hótel í mismunandi
gæðaflokkum. North Britisih hótelið er eitt
þeirra, sem er í fyrsta gæðaflokki, og stendur
það við Waverley Station. Roxburghe Hotel,
Charlotte Square, Royal British Hotel, 20 Prin-
ces Street og Charlton hótelið, North Bridge
eru meðal nokkurra hótela í öðrum flokki. .
Veitingahús
Margir Skotar lifa á fiskveiðum og eru
sjávarréttir því vinsælir á borðum veitingahús-
anna í Edinborg. Á veitingahúsum og hótelum
er morgunverður venjulega borinn fram milli
kl. 7.30-9.00. Hádegisverður er seldur frá kl.
12.00-14.00.
Veitingahús og hótel selja flest bjór og aðra
áfenga drykki, enda er þetta land vískísins.
Café Royal, 17 West Register Street, Epicure
veitingahúsið, 19 Shandwiek Place og The
Beehive Inn, 18-20 Grassmarket eru meðal vin-
sælla veitingahúsa í borginni, sem hafa ljúf-
fenga rétti á boðstólum.
Þjórfé
Leigubílstjórum í Edinborg er yfirleitt gef-
ið 10% af akstursverði, burðarmenn fá venju-
lega 5 pence fyrir hverja ferðatösku. Á veit-
ingahúsum, þar sem þjónustufé er ekki inni-
falið í reikningnum er alltaf gefið þjórfé, en
barþjóninum er gefið sérstaklega. Þó er það
aldrei gert á krám (pubs). Salernisvörðum er
yfirleitt alltaf gefið 2% pence — 5 pence. Á
hótelum, þar sem þjónustugjald er ekki inni-
falið í reikningnum, þá er herbergisþernu
venjulega gefið þjórfé og sömuleiðis burðai’-
mönnum.
Skemmtanir
í Edinborg eru fjölmörg leikhús, sem sýna
verk eftir Shakespeare m. a. og fjölda annarra
leikritahöfunda, bæði sorgar- og gleðileiki jafnt
sem söngleiki og kabarettsýningar. í boi'ginni
er einnig fjöldi kvikmyndahúsa, og er yfirleitt
mjög ódýrt að fara á kvikmyndasýningar.
Viðskipti
Flestar verzlanir í Edinborg eru opnar frá
kl. 9.00-18.00. Á fimmtudögum er þó ooið til kl.
20.00. Skrifstofur og viðskiptamiðstöðvar eru
opnar frá kl. 9.00-17.00. Bankar hafa opið, sem
hér segir: Mánudaga-miðvikudaga frá kl. 9.30-
12.30 og 13.30-15.30. Á fimmtudögum er opið
á sama tíma með klukkutíma matarhléi, en
opnað er aftur kl. 16.30-18.00. Á föstudögum
er opið frá kl. 9.30-15.30 án matarhlés. Lokað
laugardaga.
Að komast leiðar sinnar
Um borgina er hægt að fara með lestum,
sem einnig fara til ýmissa borga í Bretlandi
svo sem Lundúna. Almenningsvagnar aka um
borgina frá morgni til kvölds sömuleiðis ieigu-
bílar. Þá er ennfremur hægt að leigja bíl til
eigin afnota í borginni.
Glasgow
Glasgow er mesta iðnaðar- og verzlunarborg
í Skotlandi og þangað hafa fjölmargir fslend-
ingar átt viðskiptaerindi. Mikill meii’ihluti
borgarbúa iifir á iðnaði.
Hótel
Fjölmörg hótel eru víða um borgina. Royal
Stuart hótelið í Clyde Street og Jamaica Street
og St. Enoch hótelið á St. Enoch Square eru
meðal úrvals hótela í fyrsta gæðaflokki. f öðr-
um flokki eru m. a. Buckingham, 31 Bucking-
ham Terrace og Green’s hótel, 22-24 Woodland
Terrace. Ingram-hótel hefur orðið vinsælt hjá
Íslendingum í seinni tíð.
FV 4 1974
61