Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 9

Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 9
í siutlu máli > * § Island og Italía Það virðist sameiginlegt með ís- landi og ítalíu um þessar mundir, að efnahagsvandræði blasa við. Bæði löndin hafa innleitt innborgunar- skyldu á allan innflutning. Innborg- unarhlutfallið er hér 25% en 50% á ítalíu. Skal látið liggja á milli hluta hvort hlutföllin endurspegla stærðar- gráðu efnahagsvandans í löndunum. Bæði löndin hafa orðið að verja að- gerðir sínar gagnvart samherjum; Efnahagsbandalagið hefur yfirheyrt ítali og EFTA íslendinga. * # Island og einræðisríkin Það vekur nokkra athygli að verð- bólga skuli vera mest á Evrópuvísu á ísland og í Grikklandi og Portúgal. Ætla mætti, að auðveldara væri að halda verðlagi í skefjum í einræðis- ríkjum en raun ber vitni. Getur verið, að hér komi til misheppnuð afskipti af markaðskerfinu og að árangurinn verði meiri verðbólga í stað minni? Ættu stjórnvöld hérlendis aö íhuga þetta. 0 Citroen og Peugot sameinasl Tilkynnt hefur verið í París, aö þessi tvö bílaver muni sameinast. Þær tvær ástæöur munu einkum vera fyr- ir sameiningunni, að yfirvöld hafa þjarmað að ágóðahluta fyrirtækjanna og olíuhækkanirnar hafa dregið úr sölu á bílum í Frakklandi og víða annars staðar. 0 Óttast Araba Mikið er nú rætt í Noregi og Bret- landi um ráöstafanir til aö vernda ol- íusvæðin nýju 1 Norðursjó fyrir hugs- anlegum skemmdarverkum Araba, en heyrzt hefur, að þau væru í undir- búningi til að tefja vinnslu olíu á þessum slóðum. Vinnslan liggur vel við höggi, þar sem stefnt hefur veriö að því, að taka olíuna í land á sem fæstum stöðum til að forðast meng- un. Einnig kom berlega í ljós fyrir nokkru, að litlar varnir voru fyrir hendi, þegar rússneskur togari sigldi óhindraður upp að olíuleitarprömm- um. 0 Viðskipti Bandaríkjanna og Rússa ganga á afturfótunum Flestum mun í fersku minni, að Nixon og Kissinger gerðu viðskipta- samning við Breshnev í marz 1972. Bandaríkjamenn ætlviðn að veita Rúss- mn tækniupplýsingar, selja þeim ýms- ar þróaðar iðnaðarvörur og korn. Rúss- ar tóku hins vegar vel í að selja Banda- ríkjamönnum gas 1‘rá Síberíu, en fram- kvæmdaféð átti að vera bandarískt og framkvæmdirnar að vera í höndum bandarísks fyrirtækis. Eitt aðalatriði ramninganna var, að háðir aðilar skyldu veita hinum „beztu kjarameö- ferð“, þ. e. veita hinum sömu kjör og bezt voru veitl öðrum viðskiptaþjóð- um. Ctflutningur Bandaríkjanna til Rúss- lands áttfaldaðist frá 1971 lil 1973. Mest var um kornvörur að ræða, sem seldar voru á hagstæðum lánum. Inn- tlutningur frá Rússlandi til Bandaríkj- anna tvöfaldaðist, en var þó tæplega íimmíungur litflutnings Bandaríkjanna til Rússlands 1973. Nú er komið babb i bátinn. Eftir að styrjöldin skall á í Miðausturlöndum og farið var að deila á Bandaríkjamenn fyrir að veita Rússum hagstæðari lán en öðrum þjóðum, jafnframt því sem ýmsir heima fyrir voru rciðir yfir stefnu Rússa gagnvart útflytjendum og marga óaði við því að láta 2500 millj. dollara í gasleiðslu, sem Rússar gætu skrúfað fyrir með einu liandtaki, hófst gagnrýni á stel'nu Nixons á Bandaríkja- þingi. Virðist nú sem frekari viðskipti inuni annaðhvort dragast verulega sam- an eða jafnvel fara alveg í vaskinn.

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.