Frjáls verslun - 01.06.1974, Page 55
ísland er eitt auðugasta land heims af náttúruauðæfum, fallegu landslagi og
óspilltu umhverfi. Búast má við að fjöldi manna noti bví sumarleyfi sitt, til
þess að skoða landið og aka nýja hringveginn. Þess vegna fer Frjáls verzlun
í hringferð um landið með lesendur sína og fjallar um aðstæður á hótelum
utan Reykjavíkur, samkvæmt upplýsingum forstöðumanna beirra.
Hótel Akranes,
Bárugötu, sími 93-2020.
Gisting: 12, eins, tveggja og þriggja manna
herbergi eru á hótelinu, en einnig er hægt að
fá leigð herbergi í bænum á vegum hótelsins.
Verð á eins manns herbergi er kr. 1.090,- fyrir
nóttina, en verð á tveggja manna herbergi er
kr. 1.570.- og þriggja manna herbergi kostar
kr. 2.320.- Bað er á hverjum gangi. Morgun-
verðurinn er á kr. 300.-, hádegisverðurinn frá
kr. 300.-—400.- og verð á kvöldverði er frá
400.—800.- (samkvæmt matseðli). Hótel Akra-
nes hefur opið allt árið.
Dægrastytting: Á hótelinu er setustofa og
vinbar. Sundlaug er í bænum og einnig byggða-
safn, sem margir hafa áhuga á að skoða. Frá
Akranesi er stutt í Borgarfjörð, á Mýrar og í
Skorradal og marga aðra staði. Akraborgin
siglir þrisvar á dag milli Reykjavíkur og A'kra-
ness en einnig fara áætlunarbílar oft í viku
milli Akraness og Reykjavíkur.
Hótelstjóri; Gunnar Guðjónsson.
Hótel Borgarnes,
Borgarnesi, sími 93-7119 og 71219.
Gisting: Hótel Borgarnes hefur yfir að ráða
19 herbergjum á hóteiinu, sem eru eins, tveggja
og þriggja manna og 6 herbergjum í bænum.
Verð á eins manns herbergi er kr. 1090.-. Verð
á tveggja manna herbergjum er þrískipt: Litið
herbergi kr. 1.570,- stórt herbergi, þar sem
hægt er að koma inn tveimur aukarúmum
fyrir börn kr. 1.780,- og hjónaherbergi með
baði á kr. 2.480.-. Verð á þriggja manna her-
bergi er kr. 2.520.- og verð á aukarúmi er kr.
540,-
Morgunverðaiihlaðborðið kostar kr. 330.-, há-
degisverðurinn er frá kr. 500,- (kjötmáltið) og
kvöldverðurinn frá kr. 600.- (kjötmáltíð). Fisk-
máltíð er nokkru ódýrari en kjötmáltíð. Hótel
Borgarnes selur heitan mat allan daginn. Opið
er allt árið um kring.
Dægrastytting: Á hótelinu er setustofa með
sjónvarpi og sömuleiðis eru seldar þar vinveit-
ingar. Það er ákjósanlegur áningarstaður fyrir
þá er vilja sjá sig um í Borgarfirði og á Snæ-
fellsnesi. Hægt er að útvega veiðileyfi í nær-
iiggjandi ám og vötnum. Áhugamenn um
gó'lfíþróttina geta spilað golf á 9 holu golfvelli
í Hamarslandi fyrir ofan Borgarnes. Áætlunar-
ferðir eyu til og frá Reykjavík á 2ja-3ja daga
fresti. Á hótelinu er góð aðstaða fyrir 50
manna fundarhöld.
Hótelstjóri: Geir Björnsson.
Hótel Bifröst,
Borgarfirði.
Gisting: Á hótel Bifröst eru 29 herbergi, en
svefnpokapláss er ekki fyrir hendi. Opið er frá
7. júní — 1. september. Verð á eins manns
hei'berei er kr. 1.340.-, tveggja manna herbergi
kr. 1.950.- og tveggja manna herbergi með baði
kostar kr. 2.620.-. Moi'gunverðurinn er á kr.
325.-, hádegisverðurinn frá kr. 550.- — 790,- og
kvöldverðurinn frá kr. 770,- — 1.150,-
Dægrastytting: Hótelið hefur vínveitinga-
leyfi. Þar er einnig setustofa. Salai'kynni eru
stór og rúmgóð og unnt er að taka á móti allt
að 200 gestum í mat í einu. Sundlaugin að
Vai'malandi er í nokkurra km. fjarlægð frá hó-
telinu. Á Bifröst er hægt að iðka borðtennis,
badminton og ennfx-emur er þar golfvöllur.
Unnt er að útvega hesta með dags fyrirvara.
Loks má geta þess, að á staðnum er gufubað.
Hótelstjóri: Jónína Pétursdóttir.
FV 5-6 1974
55