Frjáls verslun - 01.03.1975, Blaðsíða 11
Hús verzlunarinnar
Framkvæmdir við 13 hæða
byggingu hefjast i haust
Rís í nýja miðbænum í Reykjavík
Framkvæmdir við Hús verzlunarinnar í nýja miðbænum austan Kringlmnýrarbrautar í Reykjavík
eiga að hefjast í september n.k. Verður hús þetta hið myndarlegasta, alls 13 hæðir, og íriiun þar
verða aðsetur 7 félagssamtaka verzlunar í landinu. Áætlaður byggingarkostnaður er tæpar 600 mill-
jónir en áætlað er, að 1. áfangi hússins verði fullgerður fyrir árslok 1977.
Þannig mun Hús verzlunarinnar líta út í meginatriðum, þegar
það rís af grunni í nýja miðbænum.
Hinn 30. des. sl. var stofnað
hlutafélag um Hús verzlunar-
innar. Tilgangur félagsins er að
byggja í nýja miðbænum í
Reykjavík hús til afnota fyrir
félagssamtök verzlunar í land-
inu og starfsemi þeirra, að ann-
ast rekstur á sameiginlegum
hlutum hússins og allri aðstöðu
þar, sem sameiginleg er talin.
Þá kemur félagið fram fyrir
hönd eignaraðila í öllum sam-
eiginlegum málum varðandi
húsið, byggingu þess, rekstur
og eignarhald, eftir því sem
nánar er ákveðið í samþykktum
félagsins. Stofnfé er 30 milljón-
ir króna.
7 AÐILAR BYGGJA SAMAN
Aðilar að Húsi verzlunarinn-
ar eru sjö talsins. Eignarhlutfall
þeirra og kostnaðarskipting
verður þessi miðað við verðlag
í febrúar 1975, samkvæmt út-
reikningum Hagverks s.f.: Bíl-
greinasambandið 4,48% eignar-
hluti og 20,3 millj. af byggingar-
kostnaði rniðað við húsið full-
gert, Fél. ísl. stórkaupmanna
8,97%, 40,6 millj. og hið sama
gildir um Kaupmannasamtök
íslands. Lífeyrissjóður verzlun-
armanna mun eiga 22,59% og
leggja 144,3 millj. til hússins
en stærstan hlut á Verzlunar-
banki íslands 34,17% og verður
þátttaka hans í áætluðum bygg-
ingarkostnaði 246,4 millj. Verzl-
unarmannafélag Reykjavíkur á
svo 11,85% og greiðir 53,8 millj.
í byggingarkostnað en Verzlun-
arráð Islands á sama hlut og
Fél. ísl. stórkaupmanna og
Kaupmannasamtökin og tekur
jafnmikinn þátt í byggingar-
kostnaði og þau.
FV 3 1975
11