Frjáls verslun - 01.03.1975, Blaðsíða 29
Ro wntree - Mackintosh:
Selja sælgæti fyrir 200 milljónir
punda á ári
Starfsmenn 30 þúsund í verksmiðjum í 7 löndum
í meir en hálfa öld hafa íslendingar átt þess kost að njóta ljúffengrar framleiðslu sælgætisgerða
Rowntree Mackintosh-samsteypunnar brezku. Þetta fyrirtæki er nú einn stærsti útflutningsframleið-
andi í sælgætisiðnaði, sem um getur í heiminum en sælgætistegundirnar, sem það sefur nú, eru all-
verulega frábrugðnar gotteríinu, sem flutt var til íslands fyrir 50 árum.
Verksmiðjur
Rowntree- Mack-
ingtosh í York
framleiða m. a.
2,5 millj. stykki
af Kit Kat
súkkulaðistöng-
um á hverjum
vinnudegi.
Vélasamstæða
Rowntree-Mack-
intosh í Hali-
fax. Hver vél
framleiðir og
pakkar inn
sælgætimolum,
sem síðan fara
í „Qual'ty
Street" dósirna.r
frægu.
Á fjórða áratugnum komu
nýjar tegundir sælgætis í stað
hinna eldri ,og hafa þær öðlazt
frægð víða um lönd enda kann-
ast flestir við nöfn eins og Kit
Kat, Smarties, Black Magic,
Quality Street og Rolo.
SAMSTEYPA TVEGGJA
FYRIRTÆKJA.
Rowntree Mackintosh-sam-
steypan var stofnuð í maí 1969
við sameiningu fyrirtækjanna
Rowntree & Co Ltd. og John
Mackintosh & Sons Ltd.
Rowntree-fyrirtækið var
stofnað í York árið 1862 og tók
þá við framleiðslu Tuke-fjöl-
skyldunnar, sem stundað hafði
sælgætisgerð síðan á átjándu
öldinni. Vinsældir vörunnar
byggðust fyrst og fremst á
miklum gæðum kakóduftsins og
sérstakri uppskrift að ávaxta-
hlaupi, sem hvort tveggja var
notað í góðgætið. Árið 1897
varð fyrirtækið að hlutafélagi,
skömmu eftir að það flutti á
stórt athafnasvæði í útjaðri
borgarinnar, og þar eru nú
höfuðstöðvar Rowntree-Mack-
intosh og stærsta verksmiðja
þeirra.
Allt frá árunum á milli 1920
og ’30 hafa Rowntree og Mack-
intosh eignazt dótturfyrirtæki á
Bretlandi og í öðrum löndum.
Þau hafa átt mikinn þátt í að
gera samsteypuna jafnöfluga
og raun ber vitni.
BRAUTRYÐJENDASTARF
Fyrsti stjórnarformaður
Rowntree & Company Ltd.
Joseph Rowntree, gerði sér
sérstakt far um að efla vinsam-
leg samskipti fyrirtækisins við
borgarbúa almennt og ekki síð-
ur starfsmenn þess. Hefur
þeirri stefnu hans jafnan verið
fylgt síðan. Fyrirtækið vann
líka visst brautryðjandastarf í
markaðsöflun og auglýsinga-
tækni, sem fáum er kunnugt
um. Með kynningu sinni á teg-
undum eins og Black Magic,
Kit Kat, Smarties og öðrum
velþekktum tegundum sælgætis
upp úr 1930 var ekki aðeins
gripið til auglýsingaaðferða,
sem reyndust vel um stundar-
sakir, heldur áttu þær líka þátt
í að tryggja velgengni síðari
tíma framleiðslti eins og Polo,
After Eight, Jellytots og Match-
makers, sem nýlega er kominn
á markaðinn.
SÚKKULAÐI OG KARA-
MELLUR.
Mackintosh- fyrirtækið var
stofnað í Halifax árið 1880.
Stofnandinn var John Mackin-
tosh en ásamt konu sinni hafði
honum tekizt að finna upp og
endurbætá nýja aðferð við að
búa til karamellur, sem voru
ólíkar því er áður þekktist af
FV 3 1975
29