Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1975, Síða 29

Frjáls verslun - 01.03.1975, Síða 29
Ro wntree - Mackintosh: Selja sælgæti fyrir 200 milljónir punda á ári Starfsmenn 30 þúsund í verksmiðjum í 7 löndum í meir en hálfa öld hafa íslendingar átt þess kost að njóta ljúffengrar framleiðslu sælgætisgerða Rowntree Mackintosh-samsteypunnar brezku. Þetta fyrirtæki er nú einn stærsti útflutningsframleið- andi í sælgætisiðnaði, sem um getur í heiminum en sælgætistegundirnar, sem það sefur nú, eru all- verulega frábrugðnar gotteríinu, sem flutt var til íslands fyrir 50 árum. Verksmiðjur Rowntree- Mack- ingtosh í York framleiða m. a. 2,5 millj. stykki af Kit Kat súkkulaðistöng- um á hverjum vinnudegi. Vélasamstæða Rowntree-Mack- intosh í Hali- fax. Hver vél framleiðir og pakkar inn sælgætimolum, sem síðan fara í „Qual'ty Street" dósirna.r frægu. Á fjórða áratugnum komu nýjar tegundir sælgætis í stað hinna eldri ,og hafa þær öðlazt frægð víða um lönd enda kann- ast flestir við nöfn eins og Kit Kat, Smarties, Black Magic, Quality Street og Rolo. SAMSTEYPA TVEGGJA FYRIRTÆKJA. Rowntree Mackintosh-sam- steypan var stofnuð í maí 1969 við sameiningu fyrirtækjanna Rowntree & Co Ltd. og John Mackintosh & Sons Ltd. Rowntree-fyrirtækið var stofnað í York árið 1862 og tók þá við framleiðslu Tuke-fjöl- skyldunnar, sem stundað hafði sælgætisgerð síðan á átjándu öldinni. Vinsældir vörunnar byggðust fyrst og fremst á miklum gæðum kakóduftsins og sérstakri uppskrift að ávaxta- hlaupi, sem hvort tveggja var notað í góðgætið. Árið 1897 varð fyrirtækið að hlutafélagi, skömmu eftir að það flutti á stórt athafnasvæði í útjaðri borgarinnar, og þar eru nú höfuðstöðvar Rowntree-Mack- intosh og stærsta verksmiðja þeirra. Allt frá árunum á milli 1920 og ’30 hafa Rowntree og Mack- intosh eignazt dótturfyrirtæki á Bretlandi og í öðrum löndum. Þau hafa átt mikinn þátt í að gera samsteypuna jafnöfluga og raun ber vitni. BRAUTRYÐJENDASTARF Fyrsti stjórnarformaður Rowntree & Company Ltd. Joseph Rowntree, gerði sér sérstakt far um að efla vinsam- leg samskipti fyrirtækisins við borgarbúa almennt og ekki síð- ur starfsmenn þess. Hefur þeirri stefnu hans jafnan verið fylgt síðan. Fyrirtækið vann líka visst brautryðjandastarf í markaðsöflun og auglýsinga- tækni, sem fáum er kunnugt um. Með kynningu sinni á teg- undum eins og Black Magic, Kit Kat, Smarties og öðrum velþekktum tegundum sælgætis upp úr 1930 var ekki aðeins gripið til auglýsingaaðferða, sem reyndust vel um stundar- sakir, heldur áttu þær líka þátt í að tryggja velgengni síðari tíma framleiðslti eins og Polo, After Eight, Jellytots og Match- makers, sem nýlega er kominn á markaðinn. SÚKKULAÐI OG KARA- MELLUR. Mackintosh- fyrirtækið var stofnað í Halifax árið 1880. Stofnandinn var John Mackin- tosh en ásamt konu sinni hafði honum tekizt að finna upp og endurbætá nýja aðferð við að búa til karamellur, sem voru ólíkar því er áður þekktist af FV 3 1975 29
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.