Frjáls verslun - 01.03.1975, Blaðsíða 82
HFrá
ritstjóm
Otímabærar yfirlýsingar
Dagblaöiö' Tíminn geröi fyrir nokkru
aö umtalsefni í ritstjórnargrein viss um-
mæli um viðskiptaráöherra sem birtust á
þessari síðu í síöasta hefli Frjálsrar verzl-
unar. Þar var bent á, hversu óheppilegt
það sé, aö helztu valdamenn þjóðarinnar
tjái sig á opinberum fundum um þurr-
ausna gjaldeyrissjóöi og þörf róttækra ráö-
stafana án þess aö þeir fylgi ummælum
sínum eftir þegar í stað og grípi til nauð-
synlegra aögerða, miðaö við það ófremdar-
ástand, sem þeir hafa lýst.
í lok janúarmánaðar flutti viöskipta-
ráöherra ræðu á fundi Framsóknarfélag-
anna í Reykjavík og lýsti þar vandanum
í efnahagsmálum eins og hann blasti við
þá, og lél í ljós persónulegar skoðanir á
því, hvernig við honum skyldi brugðizt.
Ráöherrann fór ekki 1 launkofa með þá
skoöun sína, aö alvarlegt hættuástand
hefði skapazt í þjóðarbúskapnum og
almenningur dró að sjálfsögöu af því sínar
álvktanir. Ef ráðherra heföi getaö gripið
í taumana strax og gert þá hluti, sem
hann talaöi um á Framsóknarfundinum,
hefði málið horft dálítið ööruvísi viö. Rík-
isstjórnin hafði hins vegar ekki ákveðiö
viöbrögö sín við beim alvarlegu tíöindum
um gjaldeyrisstööuna í byrjun árs, sem
viöskiptaráöherrann kynnti á umræddum
fundi, og allöng bið varð á endanlegum
niöurstööum í því efni. Þennan biðtíma
notaði almenningur aö sjálfsögöu til aö
ráöstafa peningunum sínum til ýmis kon-
ar fjárfestingar og jók það enn á þensl-
una í peningamálum.
Þaö er vissulega alveg rétt, aö stjórn-
málamönnum ber aö segja þjóöinni satt
um stööu þjóðmálanna hverju sinni. Ekki
skal efazt um, aö Ólafur Jóbiannesson hef-
ur í heilt ár, verið aö segja fólki rétt til
um óhugnanleg vandamál efnahagslífsins
á íslandi. En veröur ekki aö ætlasl til þess,
að ábyrgur ráðherra sé þess umkominn að
ráöast þegar 1 staö til atlögu gegn böl-
valdinum, þegar hann hefur opinbsrlega
verið aö tíunda væntanleg úrræöi og ekki
skortir á þingstyrk ríkisstjórnarinnar,
sem hann á sæti í?
Sjálfsögð fyrirgreiðsla
Flugleiöir hf. hafa fariö fram á ríkis-
ábyrgð á láni aö upphæð 13,5 millj. doll-
ara vegna kaupn á tveim farþegaþotum,
sem LoftleiÖir hafa haft til afnota sam-
kvæmt leigu/kaupsamningi í nokkur ár.
Samanlagt markaösverö þessara véla er
nú um 22 millj. dollara en samkvæmt
samningi hafa Flugleiðir greitt kaupverð-
ið niður um 8,1 millj. dollara. Fyrir leigu
á vélunum eru nú greiddir nærri 150 þús.
dollarar á mánuði en vextir og afborgan-
ir af lánum vegna kaupanna yrð'u félaginu
léttbærari en leigugjöldin. Hér er um háar
lölur að ræða. Til samanburöar má þó
geta þess, aö upphæðin, sem ríkisábyrgð-
ar er nú óskaö fyrir, nemur um 16% af
veltu Flugleiða. AriÖ 1967 var veitt ríkisá-
byrgð vegna þotukaupa Flugfélags Islands,
aö upphæð 5,2 millj. dollara, og var þaö
71,3% af veltu félagsins þá.
íslendingar geta þakkað frjálsu fram-
taki tíðar og öruggar flugsamgöngur inn-
anlands og milli landa. Á alþjóöavettvangi
hefur íslenzkur flugrekstur vakiö athygli
og notið verðskuldaðrar viröingar. Við
stórfelldar fjárfestingar eins og nú eru
fyrirhugaðar, þurfa Alþingi og ríkisvald
að veita sjálfsagða fyrirgreiöslu til að af-
koma þessa mikilvæga samgöngufyrirlæk-
is verði eins góð og viö heima fyrir get-
um mögulega haft hönd 1 bagga með. Þess
er að vænta, að ekki líði langur tími áöur
en fallizt veröur á umsókn Flugleiöa um
ríkisábyrgöina.
82
FV 3 1975