Frjáls verslun - 01.04.1977, Page 14
Sumarbústaðir
Eftirspurn hundraðföld
á við framboð
Algengasta verð á sumarbústað 5—6 milljónir króna
Nú þegar sumra tekur og sumarfríin eru í nánd eiga margir þess kost að dveljast í sumarbústað um
lengri eða skemmri tíma. Mikill fjöldi sumarbústaða eru á Vesturlandi og Suðurlandi í eigu ein-
staklinga eða félagasamtaka, en auk þess eru sumarbústaðir á Vestfjörðum, Norðurlandi og Aust-
fjörðum. Ef'tir að hin ýmsu félagasamtök s.s. ASÍ og BSRJ3 hafa reist sumarbústaði á skipulögðum
svæðum eins og í Munaðarnesi og Ölfusborgum hefur fjöldi fólks, sem annars hefði ekki átt þess
kost fengið tækifæri til að dveljast um tíma í slíku sumarhúsi.
Frjáls verslun leitaði sér upp-
lýsinga um Ihelstu svæðin, þar
sem sumarbústaðir hafa risið,
auk þess sem lhaft var samband
við fasteignasölur og kannað
framboð og eftirspurn eftir
sumarbústöðum, hvað þeir kost-
uðu og annað í þeim dúr, svo
og var haft samband við fyrir-
tæki, sem framleiða slíka sum-
arbústaði hér á landi.
LÍTIÐ FRAMBOÐ EN MIKIL
EFTIRSPURN EFTIR
SUMARBÚSTÖÐUM A
SUÐURLANDI
Á Suðurlandi eru helstu
sumarbústaðalöndin við Þing-
vallavatn, en þar eru bústað-
irnir allir í einkaeign og ganga
sjaldnast kaupum og sölum,
nema þá á himinháu verði. Bú-
staður í Gjábakkalandi var ný-
lega seldur á 11 milljónir. í
Miðfellslandi í Þingvallasveit
hefur hins vegar verið dálítið
framboð á sumarbústöðum.
í Grímsnesinu og þá aðallega
í Þrastarskógi hefur verið
geysilega mikil eftirspurn eftir
sumarbústöðum eða sumarbú-
staðalöndum, en nær ekkert
framboð. Þar hafa bæði ein-
staklingar og hin einstöku fé-
lög komið sér upp sumarbústöð-
um.
í Laugardalnum og Grafn-
ingnum er einnig mikill fjöldi
sumarbústaða í eigu einstak-
linga og félagasamtaka. Ennþá
nær Reýkjavík eru svæði eins
og Hafravatn og Elliðavatn, þar
sem eru vinsæl sumarbústaða-
lönd.
Alþýðusamband íslands á 36
sumarbústaði, Ölfusborgir, sem
leigðir eru út viku í senn til
meðlima hinna ýmsu félaga
innan ASÍ. í bústöðunum er öll
aðstaða fyrir hendi og eru þeir
leigðir út með sængurfatnaði og
búsá'höldum, auk þess sem ASÍ
hefur fastráðinn umsjónar-
mann, sem annast allt eftirlit
með sumarbústöðunum.
í Einarsstaðalandi á Héraði
hefur Alþýðusamband Austur-
lands komið sér upp bústöðum
fyrir félaga innan þess sam-
bands og sömu sögu er að segja
um Alþýðusamband Norður-
lands, sem á sumarbústaði í
Fnjóskadal. Á Vestfjörðum er
nú hins vegar verið að byrja á
að reisa sumarbústaði, undir
umsjón Alþýðusambands Vest-
fjarða.
VERÐ A LANDI FRÁ 600 ÞÚS.
TIL 1V2 MILLJÓN. VERÐ
Á BÚSTAÐ ALLT UPP í 12
MILLJÓNIR
Undanfarnar vikur hefur
öðru hverju mátt reka augun í
Verð á sumarbústað og iandi á bezta stað getur farið hátt á annan
tug milljóna.
14
FV 4 1977