Frjáls verslun - 01.04.1977, Síða 25
að stærri löndin innan þess
skuli freanur taka ákvarðanir í
mikilvægum málum með
Bandaríkjamönnúm og Japön-
um en öðrum ríkjum inman
bandalagsins. Jafnframt því
eru stjórnir Bretlands og
Fraikklands ekki fastar í sessi,
og þótt 'festan sé meiri í. Bonn,
er þingmeirihluti stjórnarinnar
samt ekki mikill.
Það sem ihefur vakið einna
mesta athygli mína í umræðum
um framtíð EFTA e.r það, að
verkalýðsfélögin í aðildarlönd-
unium vilja styðja við bakið á
samtökunum og beina samvinn-
unirnni inn á ný svið, svo sem
að því e,r varðar atvinnuiýð-
ræði og samstarf fyrirtækja.
Það kemur manni því spánskt
fyrir sjónir að ísiensk verka-
lýðsforysta skuli krefjast þess
í kjarasamningum að sett verði
á inmrf'lutningshöft.
Virðist allmikil glámskyggni
að ætla að sú tilhögun gæti
orðið til þess að auka kaupmátt
launa í framtíðinni. Þar sem
allar hendur hafa verk að vinna
yrðu höft á innflutningi til þess
að mannafli flytjist úr útflutn-
ingsframleiðslunni yfir í aðra
framleiðslu, sem ikeppti við inn-
flutning í skjóli haftanna. Er
mér illa brugðið ef hagkvæm-
ara er fyrir okkur að tafca fólk
úr fisfcvinnslu til að framleiða
skó. Auk þess yrðu höftin á-
reiðanlega til þess að verðbólga
yrði mun meiri en ella.
VARÐVEISLA HUGSJÓNA
Þetta leiðir hugann að því að
sennilega er að vaxa úr grasi
ný kynslóð sem ekki þekfcir
leyfisskrifs'tofur og skömmtun-
arseðla. Þess vegna virðist ekki
vanþörf að reynia að kenna ný-
græðingunum undirstöðuatriði
frjállsrar verslunar og rifja upp
með þeim hugsjónir frum-
kvöðla á því sviði.
Roy Jenikins, sem nú er í
fyrirsvari fyrir EBE vék að
svipuðu atriði nýlega er hann
ávarpaði þing bandalagsins.
Hann minnti á að það hefði
ekki síst verið yngri kynslóðin
sem studdi stofnun bandalags-
ins, því að í hinum eldri sátu
enn þá minningar heimsstyrj-
aldar, einnar ef ekki tveggja.
Þeir sem nú væru að komast á
kosningaaldur litu hins vegar
bandalagið oft hornauga. Þeir
hafa fleytt rjómann af þeirri
velmegun sem efnahagssam-
vinnan hefur átt drjúgan þátt í.
Forðast verður að þessi nýja
kynslóð þurfi að reka sig á til
þess að láta sér segjast að efna-
hags'samvinnan er annað og
meira en k-in þrjú, kaþólska,
konservatismi og kapitalismi.
Og efcki sakar að vona að
ísiensk verkalýðsforysta sjái að
sér 'þannig að ek'ki þurfi að
færa nýjar fórnir til þess að
komast að raun um að innflutn-
ingsihöft leysa engan vanda til
framtíðar, heldur yrðu til þess
að rýra almenna velmegun í
landinu.
PV 4 1977
25