Frjáls verslun - 01.04.1977, Page 45
skýrsluformi, einnig að reikna
út þau gjöld sem af vörunni ber
að greiða. Höfuðnauðsyn er, að
til þessa verks sé vandað.
Reynslan er þó því miður sú,
að yfir 30% af innlögðum
skýrslum fá á sig einihvers kon-
ar athugasemdir. Séu skekkj-
urnar þess eðlis að verulegu
muni í gjöldum eða að vöru sé
beinlínis skotið undan greiðslu,
þá varðar það við lög. Athuga
þarf hvað skekkjunum valdi,
m.a. fá skýringu innflytjanda,
og það er einmitt sú athug-
un sem gerð er í deildinni.
Að þeirri athugun lokinni er
tekin afstaða til framhaldsins,
þar á meðal til þess hvort kært
skuli til sakadóms. Sú ákvörð-
un er tekin af löglærðum
mönnum. Að mínu mati hefur
deildin skilað góðum árangri
þann stutta tíma sem hún hef-
ur starfað, t.d. iauk hún af-
greiðslu 129 mála fyrstu þrjá
mánuði þessa árs, og starfaði
þá aðeins í henni einn maður.
Það er því að mínu áliti frekar
þörf á að efla hana en afnema.
F.V.: — Hvað vill tollurinn
leggja mikla áherzlu á að flýta
afgreiðslu t.d. með hraðaf-
greiðslu á einföldum skjölum
og vörum, sem ekki þurfa
flokkunar við eða þá að menn
fái skýr svör um hvenær toll-
skjöl verði tilbúin?
Tollstjóri: — Við viljum
sannarlega leggja mikla áherslu
á að flýta afgreiðslu, en þó ekki
þannig að komi niður á öryggi
í vinnubrögðum. Það er allt
undir innflytjendum sjálfum
komið hver þróunin verður í
náinni framtíð. Verði villur í
skýrslum þeirra í sama mæli og
nú, að ég ekki tali um fleiri, er
engin von til hraðari afgreiðslu.
F.V.: — Væri ekki hægt að
fækka fólki í vöruskoðun og
gera greininguna einfaldari en
færa fólk yfir í afgreiðsluna?
Það er oft þröng á þingi í afgreiðslu tollsins. Þar fer fram inn-
heimta á 47 mismunandi gjöldum ríkisins.
Tollhúsið í Reykjavík, glæsileg bygging, sem gjörbreytt hefur
allri aðstöðu fyrir starfsemi tollstjóraembættisins.
og innflutningsverslun þarf sér-
þekkingu ýmiskonar, þar á
meðal og ekki síst á tollskrá,
sem er í eðli sínu flókin.Égheld
því, að þetta sé ekki gert flókn-
ara en efni standa til. Ég held
að lausnin á þessu hér á landi
hljóti að verða eins og allsstað-
ar annarsstaðar, það er að
segja, sérfróðir menn, (spedi-
törar) starfi við tollafgreiðslu
vara.
F.V.: — Ef tollgreining reyn-
ist röng eiga menn á hættu að
vera kallaðir fyrir hjá svo-
nefndum „rannsóknardómara11
tollsins, sem þó er ekki lög-
lærður maður. Eru líkur til að
þessu fyrirkomulagi verði
breytt?
Tollstjóri: — Það er rétt að
við embættið starfar rannsókn-
ardeild. Til hennar eru send
mál til frumrannsóknar, þar á
meðal rangar tollflokkanir inn-
flytjenda. Eins og áður er fram
komið er tollflokkun vöru flók-
ið úrlausnarefni. En tollflokk-
unin byggist á því hver varan
er. Enginn veit betur en inn-
flytjandinn hvaða vara er til
tollmeðferðar hverju sinni. Það
ætti því enginn að vera færari
um að lýsa vörunni en hann,
þar á meðal að færa hana til
rétts tollskrárnúmers. Innflytj-
anda ber að lýsa vörunni full-
komlega með tilliti til tegund-
ar„ magns, verðs o.fl., og hon-
um ber að gera það á ákveðnu
FV 4 1977
45