Frjáls verslun - 01.04.1977, Qupperneq 69
Hvolsvöllur
Áherzla lögð á að rýmka
atvinnumöguleika á staðnum
Rætt við Ólaf Sigfússon, oddvita
Á ferð Frjálsrar verslunar
um Suðurland var staldrað við
á Hvolsvelli og oddviti Hvols-
hrepps, Ólafur Sigfússon, beð-
inn að segja frá helstu verkefn-
um síns sveitarfélags.
ALMENN VERKEFNI
— Við erum náttúrlega alltaf
að vinna að þessum almennu
verkefnum eins og gatnagerð
og vatnsveitu og þess háttar.
sagði Ólafur. Vatnsveitan er
nokkuð mikið fyrirtæki hjá
okkur eins og er, en við erum
að leggja nýja stofnlögn að
lindum upp með Rangá, sjö
kílómetra leið frá Hvolsvelli.
Þaðan fáum við nóg sjálfrenn-
andi vatn, en með aukinni notk-
un verðum við að dæla vatninu.
í gatnagerð eigum við ólokið
framkvæmdum frá síðasta
sumri og verður þeim lokið á
næsta sumri. Það er óljóst
hvort um nokkrar nýbyggingar
verður að ræða, en við erum
að endurbyggja allt holræsa-
kerfið, sem er mikið átak. Þá
er hreppurinn með 6 leiguíbúð-
ir í byggingu og á þeim öllum
að verða lokið fyrir 1. júní í
sumar.
ÍBÚÐIR FYRIR
ALDRAÐA
Það er ætlunin að hreppur-
inn fari af stað með byggingu
íbúða fyrir aldraða. Teikningar
fáum við frá Húsnæðismála-
stjórn og á að hefjast handa á
þessu vori. Til að byrja með
verða byggðar 8 50 fermetra
íbúðir. Þetta er hugsað þannig,
að í byrjun verði nokkur hús
reist og síðar verði komið upp
aðstöðu til félagslegrar þjón-
ustu fyrir þá sem þurfa. Þessi
hús verða nálægt væntanlegri
heilsugæslustöð, sem verið er
að undirbúa smíði á. Hér hef-
ur ekki verið neitt heimili fyr-
ir aldraða og völdum við þessa
lausn á málinu vegna þess að
okkur sýnist þetta vera stefnan
í dag.
SKÓLABYGGINGAR
Síðasta haust var byrjað
lítillega á sökklum nýrrar
barnaskólabyggingar, sem á að
standa við hliðina á gagnfræða-
skólanum. Á að koma því húsi
upp fokheldu í haust. Þarna
er um að ræða 1000 fermetra
hús, sem að hluta verður einn-
ig notað af gagnfræðaskólan-
um, þ. e. a. s. stjórnunarað-
staða og mötuneyti. Auk Hvols-
hrepps eru það Fljótshlíðin og
Austur- og Vestur-Landeyja-
hreppar, sem standa að bygg-
ingunni, og er þeirra hlutur
44 % af kostnaði. Ríkið ber 50%
Ólafur Sigfússon, oddviti.
af kostnaði við almennan hluta
skólans, en greiðir að fullu að-
stöðu vegna heimanaksturs
nemenda.
BJALLAPLAST
Hvolshreppur á helming
Plastverksmiðjunnar Bjalla-
plasts á móti Jóhannesi Páls-
syni. Hreppurinn sér um fjár-
mál og framkvæmdastjóm, en
Jóhannes sér um hönnun fram-
leiðslunnar og daglegan rekst-
ur. Verksmiðjan framleiðir ým-
is konar raflagnaefni eins og
rör, múffur og tengi og er
ætlunin að fara að framleiða
dósir eftir norsku einkaleyfi.
Þá hefur Jóhannes verið að
finna upp og hanna ýmsar nýj-
ungar, sem á að framleiða síð-
ar. Má t. d. nefna lyfjadósir,
sem börn geta ekki opnað, bíla-
lampa, sérstakar loftadósir og
klemmur í bílarafgeyma. Fram-
leiðsluvörur verksmiðjunnar
eru í litlum mæli framleiddar
af öðrum innlendum aðilum,
þannig að ekki er verið að
keppa við annan innlendan iðn-
að. Svona rekstri er erfitt að
koma af stað, því varla er hægt
að fá nein lán fyrr en fyrir-
tækið er orðið að raunveru-
leika. Svolítil fyrirgreiðsla hef-
ur fengist úr Iðnlánasjóði
og Byggðasjóði. Verksmiðjan er
í húsnæði, sem hreppurinn átti
fyrir, en í vélunum liggja
miklar fjárfestingar. Verk-
smiðjunni var komið á fót til
að auka atvinnu á staðnum og
vinna nú 9 manns þar. Verður
áfram unnið að því á vegum
sveitarfélagsins að rýmka at-
vinnumöguleikana og auka fjöl-
breytnina.
FV 4 1977
69