Frjáls verslun - 01.08.1977, Síða 57
ur að sjálfsögðu lengst vegna
þessarar auknu sölu.
F.V.: — Hvað myndi dags-
framleiðslan vera mikil miðað
við þessar algengustu ,umbúðir
í 250 gramma pokum?
Hjörtur: — Hún mun vera
um 16 þús. pokar af þeirri
stærð á dag en þess ber að geta,
að nokkuð af framleiðslunni er
sett í stærri pakkningar.
F.V.: — Er eitthvað sérstakt
á döfinni hjá öðrum fyrirtækj-
um iðnaðardeildarinnar, eins og
t'.d. Hetti í Borgarnesi og
Dyngju á Egilsstöðum?
Hjörtur: — Höttur hefur vax-
ið talsvert mikið á þessu ári og
framleiðslan stóraukizt. Nú er
hún fyrst og fremst skinnkáp-
ur en áður var þetta húfugerð.
Húfur og vettlingar er aðeins
framleitt í hléum nú orðið. Við
ætlum okkur eindregið að full-
vinna íslenzku mokkaskinnin í
fatnað hér heima og erum að
leita fyrir okkur með markað
fyrir hann um alla Evrópu.
Hjá Dyngju á Egilsstöðum
hefur vélakosturinn verið auk-
inn með það fyrir augum að
geta tvöfaldað afköstin svo að
rekstrargrundvöllur fyrirtækis-
ins batni.
F.V.: — Hvernig er yfirstjóm
iðnaðardeildarinnar og verk-
smiðjanna háttað?
Hjörtur: — Yfir hverri verk-
smiðju er verksmiðjustjóri, sem
hefur umsjón með daglegum
rekstri. Iðnaðardeildin sem hef-
ur aðalstöðvar sínar á Akur-
eyri annast yfirumsjón með
Hjörtur Eiríksson, framkvæmdastjóri og Bergþór Konráðsson, að-
stoðarframkvæmdastjóri iðnaðardeildarinnar.
færingu sem hann þarf á að
halda til að geta þróazt eðli-
lega.
Ég tel að með iðnkynningar-
ári hafi skilningur manna á ís-
lenzkum iðnaði aukizt og það
muni verða honum til góðs. En
sem sagt trú mín er að þetta
erfiðleikatímabil standi ekki
lengi.
Alvarlegasta vandamálið hjá
iðnaðinum er fjármagnsskortur-
inn. Verðbólgan gerir það að
verkum að alltaf þarf fleiri og
fleiri krónur til rekstursins,
krónur, sem ekki eru fyrir
hendi. Þess vegna er oft ekki
hægt að vinna eins skipulega
og hagkvæmt og nauðsynlegt
eða æskilegt væri. Þetta er al-
varlegt mál, því að svo virðist
sem erlendir keppniautar hafi
aðgang að nægjanlegu fjár-
magni.
Það er líka meginmál fyrir
útflutningsiðnaðinn í landinu
að fá uppsafnaðan söluskatt
endurgreiddan. Þetta er að
minu mati sanngirniskrafa
vegna þess að þarna er um að
ræða skatt, sem lögum sam-
kvæmt á ekki að borga. Því
skyldum við ekki fá hann end-
urgreiddan, úr því að réttir
aðilar vita um hann og aldrei
hefur þörfin verið meiri en á
jafnmiklum erfiðleikatímum og
nú?
allri starfseminni og sér um
fjármál, verðlagsmál, sölumál
og annað, sem máli skiptir út á
við. Iðnaðardeildin hefur einn-
ig skrifstofu í Reykjavík og sú
skrifstofa annast daglega um-
sjón með rekstri þeirra fyrir-
tækja sem starfa syðra.
F.V.: — Nú er iðnkynningar-
ár og margt heíur verið spak-
lega mælt um stöðu og framtíð
íslenzks iðnaðar af því tilefni.
Hvert er framlag 'þitt í stuttu
máli til þcirrar umræðu?
Hjörtur: — Þar sem iðnaðui
er undirstöðuatvinnuvegux', sem
á að verulegu leyti að taka á
móti auknu vinnuafli í fram-
tíðinni verður hann að fá þá lag-
Plast-
einangrun
stundaði
áður fram-
leiðslu á
einangrun-
arplasti
einvörð-
ungu.
Nú er þar
meiri
fjölbreytni
í starfsem-
innit
FV 8 1977
57