Frjáls verslun - 01.06.1978, Blaðsíða 38
Þyrlusmíði mjög vaxandi
í Frakklandi
Aerospatiale hefur
selt 4500 þyrlur til 90
landa. Annar mesti
þyrluframleiðandi í
heimi
Franski flugvélaíðnaðurinn er
geysiþýðingarmikill fyrir efnahag
Frakklands og eru Frakkar í þriðja
sæti í heiminum hvað flugvéia-
framleiðslu og smíði geimvís-
indatækja snertir. Þeir flytja út um
helming allrar framleiðslu sinnar
á þessu sviði til meira en 100
landa.
Tæknirannsóknir og tilraunir
með nýjungar eru mjög áberandi
hjá frönskum flugvélaframleiö-
endum og hefur gert þeim kleift að
smíða mjög nýstárleg tæki svo
sem hljóðfráu farþegaþotuna
Concorde, breiðþotuna Airbus,
sem ætluð er fyrir millivegalengdir,
AS 350 Ecureull
alls kyns hernaðarflugvélar og
flugskeyti, þyrlur og einkaflugvél-
ar, stjórntæki og flugleiðsögutæki.
Franski flugvélaiðnaðurinn er
fyrst og fremst kunnur fyrir
„stjörnur" eins og Concorde og
Airbus eða orrustuflugvélar á borð
við Mirage. Flugvélaframleiðsla
hja' verksmiöjum GIFAS-sam-
steypunnar hefur tekið góðum
framförum í Frakklandi á undan-
förnum árum og þótt ekki sé hún
jafnáberandi og smíði þessara
þriggja flugvéla, sem nefndar hafa
verið. Sala á ýmsum öðrum gerð-
um hefur mikla þýöingu fyrir
Frakka.
Flugvélar til margs konar nota
Efnahagsörðugleikarnir í Evr-
ópu hafa hægt á þessari þróun en
talsmenn franskra flugvélaverk-
smiðja vona aö hér sé aðeins um
tímabilsbundið ástand að ræða og
að vaxtar fari að gæta á nýjan leik
innan skamms eins og reynslan
hefur verið í Bandaríkjunum á síð-
ustu mánuöum. Tegundirnar, sem
falla undir hina almennu flugvéla-
smíði, eru notaðartil kennsluflugs,
æfingaflugs, flugíþrótta, flutninga
og einkaflugs. Smáþotan
Mystére-Falcon frá Dassault, sem í
38