Frjáls verslun - 01.06.1978, Blaðsíða 74
17. júinf í Parfs
Einar Benediktsson, sendiherra, ræðir vlð Regis Boyer, sem var sendikennari vlð Háskóla fslands, en er
nú prófessor í norrænum fræðum vlð Sorbonne-háskóla. Hann hefur þýtt íslenzkar bókmenntir á
frönsku, m.a. fslandsklukkuna.
Ragnar Guðmundsson og kona hans Elína Benta Hallgrímsson ásamt
Helgu Björnsson. Ragnar og Elína hafa búlð í Thallandi, þar sem
Ragnar starfaði á vegum UNESCO en hann vinnur nú í aðalstöðvum
stofnunarlnnar í París. Helga er dóttlr Henriks Sv. Björnssonar, fyrrv.
sendiherra í Frakklandi og núverandi ráðuneytisstjóra. Hún er tízku-
hönnuður.
Sendiherrahjónin, Einar Benediktsson og kona hans
Elsa Pétursdóttir buðu íslendingum í París til fagnaðar í
tilefni af þjóðhátíðardegi íslendinga. Boðið var haldið á
heimili sendiherrahjónanna við Avenue Foch en það er
hið glæsilegasta, vítt til veggja og hátt til lofts í fagurlega
skreyttum stofum. Þarna voru saman komnir íslenzkir
námsmenn, íslendingar, sem búið hafa um árabil í París,
nokkrir franskir íslandsvinir og íslendingar, sem voru í
borginni til skemmri dvalar. Þessi hópur hittist ekki oft en
greinilegt að góður kunningsskapur hefur tekizt í íslend-
ingahópnum í París. Sendiherrabústaðurinn hefur verið í
þessum húsakynnum við Avenue Foch síðan 1969 og
fyrsta móttakan, sem þar var haldin, var einmitt fyrir ís-
lendinga, á 25 ára afmæli lýðveldisins.
Viðar Víkingsson og Einar Már Jónsson.
Viðar er við nám í kvlkmyndaleikstjórn en
Einar er lektor við Sorbonne-háskóla.