Frjáls verslun - 01.04.1980, Blaðsíða 44
Sjórinn og sveitin
Þá skulum við snúa okkur að
skemmtisnekkjunum. Mótun í
Hafnarfirði framleiðir íslenska
skemmtibáta, eins og þann sem
happdrætti DAS auglýsir nú hvað
mest (mundiröu eftir að endur-
nýja?) en sá bátur er sleginn á 18
milljónir. Báturinn er reyndar
lúxustýpa í búnaði en venjulegir
slíkir bátar kosta um 15 milljónir.
Þá er Mótun einnig með minni báta
(7 fet), sem ganga fyrir bensínvél,
á um 7 milljónir króna. Innfluttur 5
metra bátur frá Banco kostar tæp-
ar 3 milljónir en 5 með vél. Og þar
að auki getur fyrirtækiö útvegað
snekkjur (10 m) að verðmæti allt
að 40 milljónir króna. Af utan-
borðsmótorum frá Vélum og tækj-
um var þaö að frétta aö 140 hest-
afla mótor kostaði 1690 þúsund og
er eflaust hægt aö skemmta sér vel
með slíkan grip í bátnum.
Af sjónum höldum við upp á
þurrt, upp í sumarbústaðinn.
Húsasmiðjan framleiðir sumarhús
í fjórum stærðum. Sá stærsti
þeirra er49 m2og kostarfullbúinn,
án húsgagna, 9.2 milljónir króna.
Númer tvö í rööinni er 43 m hús á
8.2 milljónir. Gísli Jónsson & Co
flytur inn erlenda bústaði og kosta
þeir á bilinu 6—9 milljónir.
Flottheit í húsið
Og það er best að halda inn á
gólf og athuga hvað kostar að fá
sér eitt stykki sófasett ef peninga-
vandamálið fylgir ekki sögunni.
Hjá KM-húsgögnum fundum við
fallegt, útskorið barrokksófasett,
sem var á verðinu 2.3 milljónir, og
var það ítalskrar ættar. Casa þauö
aftur á móti upp á listilega gerö
nýtízku sófasett frá rúmri milljón
og upp úr. Við spurðum hvað langt
upp eftir og markiö var nefnt,
svona lauslega áætlað, um 10
milljónir.
Og leiðin liggur inn í eldhús.
Eldhúsinnréttingar frá Fífu geta
farið upp í 3—4 milljónir, sé um
verulegar sérkröfur að ræða.
Kalmar sem er ættað frá Svíaríki
nefndi aftur á móti töluna 3 mill-
jónir, sem hámark.
4t(