Frjáls verslun - 01.05.1980, Blaðsíða 68
„Sjáið tindinn, þarna fór ég”!
Háifoss í
„ ... að eiginlega er ekkert
bratt, aðeins mismunandi flatt,“
segir Tómas Guðmundsson í Ijóði
sínu Fjallganga, sem segja má að
sé nokkurskonar „mottó“ fjalla-
fara.
island er hálent land. Fjöllin eru
að vísu fæst erfið viðureignar
samanborið við . fellingafjöll
Evrópu og Asíu svo dæmi sé tek-
ið. í flestum tilfellum er hægt að
komast á toppinn án þess að nota
neins konar hjálpartæki önnur en
„hesta postulanna". Erlendis
burðast menn með alls kyns
græjur, fleyga, spotta, lása og
fleira en nöfnum tjáir að nefna.
Þessu getum við islendingar yfir-
leitt sleppt.
Það sem menn þurfa þó að hafa
í huga, ef farið er á fjall sem hærra
er en ca 500 metrar, er að vera
sérstaklega vel búnir til fótanna.
Þýðingarlaust er að vera í annars
konar skóm en með frekar stífum
sóla, líkt og á kuldaskóm eða það-
an af stífari. Ástæðan er sú að
stórgrýti, möl og fleira getur gert
menn mjög sárfætta, auk þess er
auðveldara og öruggara að fóta
sig á skóm meö stífum sóla.
Skórnir verða einnig að vera upp-
háir, að gefa svolítinn stuðning við
ökklann.
Sem skemmtileg fjöll á suðvest-
urhorninu má nefna Esjuna,
gengið er upp á Kerhólakamb sem
er fyrir ofan Mógilsá í á að giska
700 metra hæð. Nefna má Vífilfeli,
655 metra hátt fjall austan megin í
Bláfjallagarðinum. Gönguleiðin er
auðveldust upp úr Jósefsdal.
Annar hæsti foss landsins er
Háifoss í Þjórsárdal um 122 metr-
ar á hæð, aðeins Glymur í Botnsá í
Hvalfirði er hærri, rúmir 200 metr-
ar á hæð.
í raun og veru heitir dalur sá
sem Háifoss er í Fossárdalur eftir
samnefndri á sem einnig leggur til
meginhluta vatnsmagnsins í
Hjálparfoss.
Án efa er Háifoss meö sérkenni-
legustu og jafnframt hrikalegustu
fossum landsins. Hann fellur ofan
af hásléttu niður í djúpt og þröngt
gljúfur. Meginhluti vatnsmagnsins
myndar Háafoss en hluti þess
kvíslast frá og myntfar Granna,
sem erinnarí gljúfrinu.
Að Háafoss er nokkuö langur
gangur frá akfærri slóó sem liggur
norður frá Stöng í Þjórsárdal. Ef
rösklega er gengið tekur það um
klukkutíma að komast að foss-
inum. Önnur leið er að Háafossi og
er þá farið frá veginum við Sandfell
fyrir ofan Bjarnarlón, sem er uppi-
stöðulón fyrir Búrfellsvirkjun.
Jeppatroðningur er nokkuð áleiðis
þá leið og því eflaust styttri
gangur.
64