Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 3

Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 3
Menn eru nú öðum að komast i jölaskap og að venju gera fyrirtæki og starfsmenn þeirra sér dagamun með margvíslegum hætti. Breytilegir jölasiðir eru orðnir að áratugalangri hefð hjá mörg\m islenzkum fyrirtækjum, starfsmenn fá einhvern glaðning á jólunum og viða er efnt til jólafagnaðar og gjarnan sérstakra skemmtana fyrir börnin i tilefni af jólum hjá stærstu fyrirtækjunum. Allt skapar þetta vissa tilbreytingu og veitir gleði, sem hæfir vel hátiðarhaldinu. Fjöldi sjálfboðaliða i þjönustuklúbbum og góðgerða- samtökum leggur mikið af mörkum til að gera ungum og öldnum nokkurn dagamun i tilefni jól- anna. Það geta fyrirtæki gert lika. Þannig fóru jólasveinar í boði Flugleiða norður til Alcureyrar fyrir skömmu og skemmtu þar börnum á sjúkrahúsi, vistheimili vangefinna og dagvist- arstofnun. Jólasveinarnir fluttu börnum kveðjur fyrir hönd félagsins gáfu þeim litprentaða mynd af sér og sungu og léku kúnstir sinar fyir smáfðlkið. Akureyri skipar sérstakan sess i samgöngukerfi Flugleiða og það er virðingarvert, að félagið skuli þannig gera út sérstaka sendiherra í gervi jólasveinanna til að gleðja yngstu borg- arana i bænum. Er þetta dæmi um það hvernig fyrirtæki vill leggja áherzlu á að þjónusta þess er hluti af daglegu lífi fólksins i land- inu, það vill nálgast umhverfi sitt á dálitið óvenjulegan hátt ef litið er út frá hinni hefð- bundnu starfsemi, sem það annars stundar. Heim- sókn af þessu tagi verður börnuntun eftirminni- leg, og frásagnir þeirra foreldrum og öðrum vandamönnum til marks um að þetta þjónustufyrir- tæki vill efla góð tengsl sin við hinn almenna borgara og ná sambandi við hann utan sins sér- sviðs. Slikt kemur þægilega á óvart við islensk- ar aðstæður og áskapar viðkomandi fyrirtæki, i þessu tilfelli Flugleiðum, ákveðinn velvilja fólksins, sem tekur eftir slilcum jólakveðjum og kann að meta þær. 3

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.