Frjáls verslun - 01.12.1980, Blaðsíða 6
Verður flugráð
sett til hliðar?
Tlllaga um nýtt sklpurlt
Flugráð berst nú mjög
gegn tillögum um nýjar
reglur um stjórn flugmála,
sem fela í sér að flugráð
verði sett til hliðar og verði
ekki lengur stjórnunarnefnd
yfir flugmálastjórn. f stað-
inn á ráðið aðeins að vera
umsagnaraðili fyrir sam-
gönguráðuneytið um tiltek-
in málefni. Þetta er orðanna
hljóðan en í raun eru tillög-
urnar þannig að flugráð
virðist eiga að verða með
öllu óvirkt.
Ýmsir þykjast sjá Agnar
Kotoed-Hansen, flugmála-
stjóra, á bakvið þessar til-
lögur en ef þær ná fram að
ganga verður valdsvið flug-
málastjóra stórum meira.
Segja menn að Magnús H.
Magnússon, fyrrverand
samgönguráðherra hafi
sjálfsagt ekki gert sér grein
fyrir að hann væri að dæma
flugráð til dauða þegar
hann svipti Agnar for-
mennsku þar.
Raunar er ekki nema rétt
að einhver dauðadómur
verði kveðinn upp útaf þeirri
aðgerð Magnúsar því hún
var bæði misráðin og
óverðskulduð, þar sem
Agnar hefur gert meira fyrir
flugmál á íslandi en nokkrir
tíu menn aðrir.
Nú eiga fimm menn sæti í
flugráði og eru varamenn
jafn margir. Þrír flugráðs-
manna eru kosnir hlutfalls-
kosningu í sameinuðu Al-
þingi en tveir skipaðir af
ráðherra og skulu þeir síð-
arnefndu sérfróðir á sviði
flugmála.
f nýju tillögunum er gert
ráð fyrir að aðeins alþingis-
menn geti orðið aðalmenn í
flugráði og hámarksseta í
ráðinu verði átta ár. Þá eiga
samgönguráðneytið og
flugmálastjóri að hafa til-
lögurétt og málfrelsi á
fundum ráðsins.
I samþykkt meirihluta
flugráðs um þessar tillögur
(ósamkomulag er um þessa
samþykkt, innan ráðsins)
segir að með því að tak-
marka setu við alþingis-
menn sé komið í veg fyrir
nauðsynlega sérþekkingu
ráðsmanna og með því að
takmarka setu við átta ár sé
Iðngarða
í Búðardal
í nýútkominni byggðaþró-
unaráætlun Framkvæmda-
stofnunar ríkisins um Dala-
byggð er lagt til að stofnunin
stuðli að byggingu iöngarða
í Búðardal og stuðli þannig
að eflingu atvinnulífs í hér-
aöinu. Telja sérfræðingar
Framkvæmdastofnunar að
iðnaðaruppbygging sé for-
senda fyrir bættri aðstöðu
og áfram haldandi búsetu í
Dalabyggð en slík uppbygg-
ing geti vart orðið án opin-
berrar aðstoðar.
jafnvel glrt fyrir að upp
safnist þekking og reynsla.
Steingrímur Hermanns-
son, samgönguráðherra, er
sagður hlynntur því að flug-
ráð falli frá sem stjórnunar-
aðili og flugmálastjóri hafi
beint samband við sam-
gönguráðuneytið útaf mál-
um sem það þarf að taka
ákvarðanir um. Innan flug-
Telur stofnunin að með
byggingu iðngarða verði
hægt aö hafa áhrif á stað-
setningu iðnfyrirtækja. Þá er
lagt til að Byggðasjóður láni,
til viðbótar fjárfestingarlán-
um, nýjum eða vaxandi fyrir
tækjum, sem talist geta líf-
vænleg og arðbær.
Sérfræðingar Fram-
kvæmdastofnunar leggja til
að heimamenn stofni undir-
búningsfélag um byggingu
iðnaðarhúsnæðis, sem leiti
samvinnu við fjárfestingar-
lánasjóði um fjármögnun og
að gerð verði framkvæmda-
áætlun.
ráðs eru skoðanir skiptar,
eins og áður kom fram.
I nefndinni sem samdi
fyrrnefndar tillögur eiga
sæti: Pétur Einarsson,
varaflugmálastjóri, Garðar
Sigurðsson, alþingismaður
og Birgir Guðjónsson,
deildarstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu.
Settar eru fram hugmynd-
ir um ýmsan smáiðnað, svo
sem fataiðnað, steinefna-
iðju, rafmagnsiðnað og
plastiðnað.
300 vildu
til Kanada
Nýlega auglýsti Hagvang-
ur eftir framkvæmdastjóra
við fiskvinnslufyrirtæki í
Kanada. Virðist sem margir
séu spenntir að komast
burtu því um 300 manns
sóttu um þetta starf.
6