Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 8

Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 8
0 rTTT^TJM) Greinar Eykons íbók Nokkrir ungir Sjálfstæðis- menn með Pétur Rafnsson í fararbroddi undirbúa nú út- gáfu á greinum og ræðum Eyjólfs Konráðs Jónssonar um efnahagsmál. Eyjóflfur hefur verið skeleggur tals- maður frjálslyndisstefnu i efnahagsmálum. Er skemmst aö minnast greina hans i Morgunblaðinu í fyrra þar sem hann mælti með því að reynt yrði að slá verð- bólguna niður í einu höggi og kveikti þannig leiftur- sóknarblossann í Sjálf- stæðismönnum Aðstand- endur greinasafnsins von- ast til þess að útgáfa þessi verði undanfari nýrrar efna- hagsmálaumræðu innan Sjálfstæðisflokksins. Nýr fram- kvæmdastjóri Dráttarvéla Gunnar Gunnarsson, að- stoðar framkvæmdarstjóri Véladeildar S.I.S. hefur verið ráðinn framkvæmda- stjóri Dráttarvéla h.f. frá 1. janúar 1981, í stað Arnórs Valgeirssonar, sem sagt hefur upp starfi sínu hjá fyr- irtækinu. Gunnar Gunnarsson er fæddur í Reykjavík 3. september 1939, og eru for- eldrar hans þau Gunnar Árnason, búfræðikandidat og kona hans Olga Árna- son Að loknu búfræðinámi í Noregi á árunum 1956-—- 1958, hóf Gunnar nám við framhaldsdeild Bændaskól- ans á Hvanneyri og lauk þaðan prófi sem búfræði- kandidat árið 1961. Að loknu námi, réðst Gunnar til Vélardeildar S.Í.S. sem sölufulltrúi i Bú- véladeild Véladeildar. Árið 1966 tók Gunnar við starfi deildarstjóra Búvéladeildar og gengdi því til ársins 1978, er hann varð aðstoðarfram- kvæmdastjóri Véladeildar S.Í.S. Gunnar er kvæntur Elínu Jónu Jónsdóttur og eiga þau tvö börn. „Okkur er óskað til hamingju“ Þaö hefur sjálfsagt ekki farið framhjá mörgum að Hagkaup í Skeifunni er farið að selja bækur. Deildarstjóri bókadeildar er Guðjón Guðmundsson, 26 ára gamall og bókbindari að mennt. ,,Ég fór í lönskólann eftir námskeið í Versló og lauk þarnámi íbókbandi. Við það vann ég til 1978 að ég keypti pökkunarvélar, til að pakka inn bókum, blöðum, hljóm- plötum og þessháttar. Þeirri starfsemi hætti ég í fyrra og í júlí í sumar byrjaði ég, laus- ráðinn, hjá Hagkaupi að undirbúa bókadeildina. Hún er nú loks orðin að veruleika, en það eru þrjú ár síðan fyrst var sótt um bók- söluleyfi. Það er greinilegt að fólk er mjög ánægt með að við skulum hafa haft þetta í gegn, þvi það eru margir sem óska okkur til hamingju." ,,Nú selur Hagkaup yfir- leitt vörur á lægra verði en. . ." ,.Já, við ætluðum líka aö gera það með bækurnar. En nú höfum við samið vopna- hlé við bóksala, í bili. Þar til samkeppnisnefnd hefurfellt úrskurð sinn verðum við að selja á sama verði og aðrir. En vonandi verður úrskurð- urinn á þann veg að við get- um lækkað verðið." Ástæðulaus hræðsla? Arnarflug gefur út dálítið blað, þar sem fjallað er um ýmsa þætti flugmála. i nýj- asta blaðinu er meðal ann- ars grein eftir Arngrím Jó- hannsson, yfirflugstjóra fé- lagsins. Greinin heitir: Flug- hræðsla, og yfirflugstjórinn færir þar ýmis rök fyrir því að hún sé algerlega óþörf, menn séu ekki öruggari í nokkru faratæki en flugvél. Á næstu síðu fyrir aftan er svo auglýsing frá Morgun- blaðinu, þar sem menn eru hvattir til að lesa það á hverjum degi. i auglýsing- unni er mynd af einni forsiðu Moggans. Og uppsláttar- fréttin þar er: ,,176 fórust þegar farþegaþotur rákust saman." 8

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.