Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 14

Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 14
séu oft vantryggð og fólk fái ekki eigur sínar bættar, þegar bruna ber að höndum. Auk hans hafa Héðinn Emilsson og Benedikt Sig- urðsson fjallað um þetta mál innan fyrirtækisins og þeir telja báðir að núverandi kerfi hafi gengið sér til húðar og ástandið sé sérlega slæmt utan Reykjavikur. Núverandi kerfi er í meginatrið- um þannig að lögum samkvæmt ákveður sveitarfélag hvar tryggja skal fasteignir í þess umdæmi, að undangegnu útþoði eða saman- burði á verði. Allir verða síðan að tryggja hjá þeim aðila, sem sveit- arfélagið velur. Hér á landi er það skylda að brunatryggja hús, en í mörgum Vestur Evrópulöndum er það ekki skylda, þar á meðal á Norðurlöndum. Flest eru þó brunatryggð, til að þau séu veð- hæf. Fyrirkomulag eins og hér tíðkast, er ekki að finna í neinu nálægu landi. Hvaða hagsmunir eru í veði? Þau viðskipti, sem þetta snýst um, eru iðgjöld að upphæð 16 til 17 hundruó milljónir króna á árinu 1979 og að sjálfsögðu mun hærri núna. Af þessu réðu Samvinnu- tryggingar yfir um hundrað mill- jónum en það sem eftir er skiptist lauslega áætlað til helminga á milli Brunabótafélagsins og Husa- trygginga Reykjavíkur. Hér er um einhverjar hagstæðustu trygging- ar að ræða, sem til eru, enda hefur brunahætta stórminnkað á íslandi, við yfirgnæfandi notkun stein- steypu sem byggingarefnis og sívaxandi notkun jarðvarma til upphitunar í stað eldstæöa, af einu eða öðru tagi. Af ástæðum, sem eru augljósar, er það Samvinnutryggingum þyrnir í augum að fá ekki að taka þátt í þessum viðskiptum á sam- keppnisgrundvelli. Félagið er mjög vel undir það búið að fást við sölu húsatrygginga á frjálsum markaði, en það er Brunabótafé- lagið vissulega líka. 24 kaupfélög eru umboðsmenn Samvinnu- trygginga, auk 10 útibúa Sam- vinnubankans. Þá eru til sérstakar umboðsskrifstofur og alls 60 til 70 virk umboð. Þá leikur enginn vafi á því að félagið fengi til trygginga allar eignir kaupfélaga, Sam- bandsins og trúlega fleiri sam- vinnufélaga, sem væru umtalsveró viðskipti. Þá gæti félagið einnig fengið að tryggja eigi húsnæði, en það verður að teljast skiljanlegt að tryggingafélögum þyki harkalegt að þurfa að tryggja eigin húsnæði hjá öðrum. Þá ber þess að gæta að Sam- vinnutryggingar hafa nú um 25 þúsund gild tryggingaskírteini fyrir brunatryggingar innbús, eða ná- lægt helmingi heimila í landinu. Það er því eðlileg ályktun að þeir gætu náð umtalsverðum hluta brunatrygginga húsa, ef þeir fengju að keppa um þær. Forystumenn félagsins telja það úrelt fyrirkomu- lag að fólk fái ekki að ráð hver tryggir hús, eins og það fær að ráða heimilistryggingu, vatnstrygg- ingu, bílatryggingu og svo fram- vegis. Samvinnutryggingar lækkuðu iðgjöldin Samvinnutryggingar leggja á það mikla áherslu að afskipti þeirra af brunatryggingum húsa hafi orðið til að lækka iðgjöld mjög verulega. í fyrsta sinn, sem Sam- vinnutryggingar fengu að taka þátt í slíku útboði, 1954, lækkuðu ið- gjöld um 50% og tvisvar síðar hafa tilboð félagsins orðið til þess að lækka iðgjöld, en þess ber að geta að Brunabótafélagið hefur einnig orðið til þess á sínum ferli og einnig eftir 1954. Þá hefur fyrirtækið tekið upp nýja tegund trygginga, á bústofni og fóðurbirgðum, sem framámenn fyrirtækisins telja að ætti að nota við tryggingu. Þaó felst í henni að skaði er greiddur til fulls, þó að verðmæti eignarinnar sé meira, þegar hún brennur, en þegar trygging var tekin. Sem dæmi má nefna að bóndi tryggir þúsund hestburði af heyi, en ári síðar á hann 15 hundruð hestburði vegna góðæris og þá brennur. Með þessum tryggingum fær hann skaðann allan greiddan en borg- ar næst iðgjald af 15 hundruð hestum. Sérstaða Reykjavíkur Reykjavík hefur alla tíð farið eigin leiðir í tryggingamálum. Á nítjándu öld samdi Reykjavík við dönsk tryggingafélög um bruna- tryggingar og hélst sú skipan lengi, en 1954 fékk borgin leyfi í lögum til að tryggja sjálf hús í borginni og stofnaði til þess Húsatryggingar Reykjavíkur, en borgarráð starfar sem stjórn þeirr- ar stofnunar. Iðgjöld af brunatryggingum í Reykjavík er nokkru hærra en hjá Samvinnutryggingum og Bruna- bótafélaginu. Öll fyrirtækin leggja til grundvallar 0,23 promille af verðmæti húseignar, en Húsa- tryggingar Reykjavíkur leggja á viðbótargjald til brunavarna 0,05 promille. Þess ber þó að gæta að útgöld Húsatrygginga til bruna- varna á næsta ári eru áætluð tæp 40% af öllum iðgjaldatekjum. Þar vegur þyngst að 248 milljóna framlag til reksturs brunavarna í borginni, auk 110 milljóna fram- lags til Vatnsveitu Reykjavíkur, til að endurnýja og fjölga brunahön- um, sérstaklega í eldri borgar- hverfum. Þá hefur nú verið tekið upp nýtt ákvæði í iðgjaldaskrá, sem heímilar að greiða trygginga- tökum bónus, ef afkoman verður sérlega hagstæð. Óhætt er að fullyrða að borgar- stjórn Reykjavíkur hefur engan hug á að hætta að sjá um bruna- tryggingar í borginni, þar sem Húsatryggingar Reykjavíkur hafa reynst traust tekjulind til greiða brunavarnir í borginni. Það fé yrði að fá með öðrum hætti, ef aðrir sæu um tryggingarnar. Erfitt að skipta um tryggingafélag í lögum um Brunabótafélag ís- lands, sem er ríkisstofnun, er svo mælt fyrir aó skylt sé að tryggja allar húseignir utan Reykjavíkur hjá félaginu. Hinsvegar segir í lög- 14
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.