Frjáls verslun - 01.12.1980, Qupperneq 18
Bílgreinasambandið
Sambandið hefur til þessa ekki
verið í eigin húsnæöi, heldur
starfað í samvinnu við Félag ís-
lenskra stórkaupmanna. Það
verður hinsvegar í sér húsnæði í
Húsi verslunarinnar.
Félag íslenskra
stórkaupmanna
Félagið hefur um árabil rekið
starfsemi sína að Tjarnargötu 14
og á þar þrjár hæðir, en nýtir tvær
þeirra til eigin þarfa. Þetta er mjög
skemmtilegur staður í borginni og
þegar farið að spyrja um hús-
næðið, að sögn Arnar Guð-
mundssonar, skrifstofustjóra. Alls
er húsnæðið um 300 fermetrar og
verður vafalaust dýrt, vegna stað-
setningar.
Kaupmannasamtökin
Kaupmannasamtökin eiga hús-
ið að Marargötu 2. Það er tvær
hæðir, ris og kjallari. Hvor hæð er
um 150 fermetrar og risið um 80
fermetrar. Skrifstofur samtakanna
eru á hæðunum tveimur og í risi er
baðstofa, sem notuð er til funda-
halda. Kjallarinn hefur í mörg ár
verið leigður Landakotsspítala
fyrir geymslur. Að sögn Magnúsar
Finnssonar, framkvæmdastjóra,
er ætlunin að selja húsið, þegar
flutt verður í Hús verslunarinnar,
en ekki er farið að huga að því enn.
Lífeyrissjóður
verslunarmanna
Lífeyrissjóðurinn starfar nú í eig-
in húsnæði á þriðju hæð hússins
Grensásvegi 13 sem er um 700
fermetra hæð og að hluta leigð
fyrir tannlæknastofu. Ætlunin er
að selja það húsnæði, þegar flutt
verður í Hús verslunarinnar, því að
það er ekki hlutverk lífeyrissjóða
að eiga fasteignir, eins og Pétur
Blöndal, framkvæmdastjóri sjóðs-
ins, komst að orði. Lífeyrissjóður
verslunarmanna verður á fjórðu
hæð í Húsi verslunarinnar og Pét-
ur býst við að öll starfsemi sjóðsins
verði þar. Sjóðurinn á einnig hús-
næði á jarðhæð, en ekki er talin
þörf fyrir sérstaka afgreiðslu þar,
sérstaklega eftir að afgreiöslu-
formi á lífeyrisgreiðslum var breytt.
Nú fá allir 350 lifeyrisþegar sjóðs-
ins sendar ávísanir og hefur um-
ferð á skrifstofu minnkað mjög við
það. Ekki er endanlega ákveðið
hvernig nýtingu húsnæðis í Húsi
verslunarinnar verður háttað, en
byrjað verður á að innrétta fjóröu
hæðina.
Verzlunarbanki
Islands
Verzlunarbankinn selur ekki
neitt af sínu húsnæði, þó að mikið
bætist við. Að sögn Kristjáns
Oddssonar, bankastjóra má búast
við að bankastjórnin verði áfram í
húsi bankans í Bankastræti. Kris-
tján sagði að margt mælti með að
18