Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 27
eyður, sem langtíma samningar
náðurekki til.
Það er allmenn trú að verðlag sé
almennt hærra á Rotterdam mark-
aði en annarsstaðar. Sannleikur-
inn er sá að fyrir kreppuna i iran
leituðu menn á Rotterdam markað
til að fá olíu með afslætti. Þar voru
seldar umframbirgðir. Mestan
hluta síðasta áratugs hefur verið
veruleg umframframleiðsla á olíu
og meiri afkastageta í oliuhreins-
unarstöðvum en hægt hefur verið
að nýta. Ef olíuhreinsunarstöð
hefði allan þann tíma selt á Rotter-
damverði, hefði hún farið á haus-
inn, þar sem verðið þar var að
staðaldri undir framleiðslukostn-
aði.
Áður en til stríðsins kom milli íran
og Irak var verð á Rotterdam mark-
aði svo lágt að mörg af stóru olíu-
félögunum spöruðu sérfé með því
að kaupa þar unnar olíuvörur,
frekar en að vinna þær í eigin
hreinsunarstöðvum. Þess eru
dæmi að menn hafi orðið ríkir á
fáum dögum á Rotterdam mark-
aði, en hinsvegar endast fyrirtæki
illa, sem versla þar. Af fyrirtækjum,
sem stofnuð voru fyrir 25 árum,
eru aðeins tvö eftir, sem máli
skipta og af verslunarfyrirtækjum,
sem þar versla, um 300 talsins, eru
ekki nema fá starfandi. Velta á
Rotterdam markaði er um 100
miljónir dollara á dag og tveir
þriðju þess fara um hendur sjö fyr-
irtækja og tólf til viðbótar sjá fyrir
fjórðungi í viðbót, þannig að lítið
ereftirhandaöllum hinum.
Þeir sem versla sjálfstætt eiga í
harðri samkeppni við stóru olíufé-
lögin. Áður fyrr náðu þau hagnaði
sínum á framleiðslu og létu aðra
um að versla með hana, en nú hafa
þau skipt um stefnu og vilja gjarn-
an ná þeim hagnaði, sem þar er að
fá, enda fellur þessi starfsemi vel
að þeirra viðskiptum. Exxon versl-
ar undir nafninu Impco, British
Petroleum sem Anro og Shell und-
ir nafninu Petra og þannig mætti
lengitelja. r*
Sendum viðskiptavinum, starfsfólki og
landsmönnum öllum beztu
JÓLA- OG NÝÁRSÓSKIR
með þökk fyrir samskipti og samstarf á liðnum
árum og áratugum
KAUPFÉLAG RANGÆINGA
Hvolsvelli
Óskum öllum félagsmönnum og starfsfólki okkar
GLEÐILEGRA JÓLA
OG NÝÁRS
Þökkum viðskiptin á liðnum árum
KAUPFÉLAG STRANDAMANNA
Norðurfirði
GLEÐILEG JÓL
FARSÆLT NÝTT ÁR
Þökkum gott samstarf og viðskipti á liðnum
árum
KAUPFÉLAG BITRUFJARDAR
Óspakseyri
GLEÐILEG JÓL
og farsœlt komandi ár
Þökkum viðskiptin á liðnum árum
KAUPFÉLAG KRÓKSFJARDAR
Króksfjarðarnesi
27