Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 33

Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 33
Afkoma fæstra kaupfélaga hef- ur verið ákjósanleg síðustu ár. Sérstaklega hefur gengið illa í verslunargreinum og þá einkum landsbyggðarverslun. Munu kaupfélögin skipa sér við hlið einkaverslunar varðandi auknar kröfur um frjálsara verðlagskerfi? „Afkomubrestur í smásöluverslun er stœrsta sameigin- legt vandamál kaupfélaganna “ Það er rétt, að afkoma margra kaupfélaga hefur alls ekki verið svo góð á undanförnum árum, sem æskilegt mætti teljast. Sér- staklega hefur afkoman verið slæm í smásöluversluninni, svo slæm, að við höfum talað um af- komubrest í smásöluversluninni. Þessi slæma afkoma smásöluversl- unarinnar hefur fyrst og fremst stafað af alltof lágum sölulaun- um fyrir landbúnaðarvörur, kjöt og mjólk, svo og af fjármagnsbruna á verðbólgubálinu með tilheyrandi vaxtaþunga. Samvinnuhreyfingin tekur reglubundið saman mjög ít- arlegar skýrslur um afkomu smá- söluverslunarinnar og hefur á grundvelli þeirra gert yfirvöldum grein fyrir réttmætri kröfu smá- söluverslunarinnar um bættan rekstrargrundvöll. í því sambandi höfum við ítrekað látið það álit okkar í Ijós, að frjálsara verðlags- kerfi myndi verða til hagsbóta fyrir alla aðila og þá ekki eingöngu smásöluverslunina, heldur einnig fyrir neytendur i landinu. Einnig höfum við margítrekað sett fram þá réttlætiskröfu, að endurmeta megi vörubirgðir til raunvirðis á hverjum tíma. Við fyrir okkar leyti erum sannfæröir um, að frjálsara verðlagskerfi myndi tryggja hag- stæðara vöruverð í landinu og það er skoðun okkar, að rekstur sam- vinnuverslunar í landinu sé útaf fyrir sig alveg nægjanlegt verð- lagseftirlit fyrir neytendur. Hér áður fyrr sögðu samvinnu- menn að kaupfélögin hlypust ekki á brott frá sínum atvinnurekstri þegar hallaði undan fæti, líkt og einkareksturinn. Nú hefur orðið samdráttur á sumum sviðum at- vinnurekstrar Sambandsins m.a. hér á Akureyri, og víða er mikill taprekstur hjá kaupfélögum. Kemur ekki að því fyrr eða síðar að mikill taprekstur t.d. hjá kaup- félögunum leiði til þess að óarð- bær starfsemi verði lögð niður? Það er mjög þýðingarmikið að fólk átti sig á þeirri staðreynd, að það fjármagn, sem samvinnu- rekstur hefur skapað í hinum ýmsu byggðarlögum, verður lögum samkvæmt alls ekki flutt í burtu frá viðkomandi byggðarlögum. Legg- ist kaupfélag niður eiga yfirvöld í viðkomandi byggðarlagi að varð- veita eignir þess þar til nýtt sarri- vinnufélag er sett á laggirnar. Það er hins vegar alveg Ijóst, að lang- varandi taprekstur getur leitt til þess, að atvinnurekstur sam- vinnufélaga, eða jafnvel heil kaupfélög, leggist niður. Kaupfé- lögin búa ekki yfir neinum töfra- meðulum, sem gera þeim kleift að halda áfram taprekstri umfram það, sem önnur rekstrarform geta. Hins vegar sanna fjölmörg dæmi það, að samvinnufélögin gefast ekki upp viö einstakar rekstrar- greinar fyrr en í fulla hnefana, þótt um taprekstur sé að ræða í við- komandi greinum. Samvinnufélög-. in njóta gjarnan þess, að þau eru fjölþætt og þau geta því stundum látið eina grein í rekstrinum styðja aðra, meðan hún á við tímabundinn rekstrarhalla aö etja. Með þessu móti hafa sam- vinnufélögin í mjög mörgum tilfell- um getað komið í veg fyrir það, að atvinnustarfsemi leggðist niður, þegar hins vegar önnur rekstrar- form hefðu orðiö að gefast upp. Einnig eru til dæmi um það, að samvinnufélögin hafa tekið að sér rekstur á þýðingarmiklum at- vinnugreinum, þar sem einkaað- ilar höfðu hætt rekstri. Ég skal ekki ræða þetta frekar að sinni en vil að lokum aðeins ítreka það, að vitanlega getur langvarandi tap- rekstur innan samvinnuifélaga- anna leitt til þess, að einstakar greinar verði lagðar niður, eða jafnvel að heil kaupfélög hætti starfsemi sinni. Afkoma flestra kaupfélaga er slæm eða a.m.k. ekki sú sem kaupfélagsstjórar myndu óska sér. Hver eru helstu sameiginleg vandamál kaupfélaganna? Ég hef þegar rætt um slæma af- komu í smásöluversluninni og það má segja, að afkomubresturinn í smásöluversluninni sé stærsta sameiginlegt vandamál kaupfé- laganna. Annað mjög áberandi sameiginlegt vandamál kaupfé- laganna er rekstrarfjárskortur. Rekstur kaupfélaganna er í eðli sínu mjög fjármagnsfrekur og fjár- magn þeirra hefur brunnið upp á verðbólgubálinu á undanförnum árum. í dag er því rekstrarfjár- skorturinn eitt helsta sameiginlegt vandamál kaupfélaganna. Samvinnuhreyfingin er að miklu leyti byggð á hugsjón. Er ekki stöðugt erfiðara að samræma samvinnuhugsjónina og hreina viðskiptahagsmuni Sambandsins og kaupfélaganna sem fyrirtækja, sérstaklega með tilliti til versn- andi afkomu? Ég vil leggja á það áherslu, að hinn fjölþætti rekstur samvinnu- hreyfingarinnar í dag felur það í sér, að hugsjónir frumkvöðlanna hafa að verulegu leyti ræst. Þeir áttu einmitt þær hugsjónir og settu sér þau markmið, að rekstur samvinnuhreyfingarinnar mætti verða sem fjölbreytilegastur og að hann mætti ná til sem flestra sviða atvinnustarfseminnar í þjóðfélag- inu. Það eru einnig hugsjónir samvinnumanna að efla og við- halda byggð i kringum landið og það fer ekki á milli mála, að þær hugsjónir hafa ræst m.a. með öfl- ugum samvinnurekstri í hinum dreifðu byggðum. Það verður hins vegar að viðurkennast, að erfiður rekstrargrundvöllur á ýmsum sviðum gerir okkur ókleift að halda uppi atvinnustarfsemi og veita ýmsa þá þjónustu, sem við gjarnan vildum hafa með höndum fyrir fé- lagsfólk samvinnuhreyfingarinnar. Eru tengsl samvinnuhreyfingar- innar við Framsóknarflokkinn þau sömu og áður eða hafa þau minnkað? Hefur samvinnuhreyf- ingin sömu þörf fyrir stuðning Framsóknarflokksins nú og áður? 33

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.