Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 37
samvinnuhreyfingarinnar voru svo
framsýnir, að hin upphaflegu
markmið, sem þeir settu sam-
vinnuhreyfingunni, halda fullu
gildi sínu enn þann dag í dag, en
við teljum mjög eðlilegt að skil-
greina betur stefnuna og starf-
semina á hinum ýmsu sviðum með
því að gefa út sérstaka stefnuskrá.
Það er ætlun okkar, að stefnu-
skráin verði gefin út á 100 ára af-
mæli samvinnuhreyfingarinnar á
árinu 1982, en fram til þess tíma
verður stefnuskráin til umræðu og
í mótun hjá félagsfólkinu í kaupfé-
lögunum. Stefnuskráin verður
þannig til umræðu á deildarfund-
um kaupfélaganna í vetur og
einnig verður stofnað til sérstakra
umræðuhópa í kaupfélögunum.
Með þessu móti viljum við vinna að
því, að félagsfólkið sjálft móti
stefnuskrána, þannig að hún megi
sem allra best endurspegla þarfir
þess og óskir.
Hvaða þættireru það í starfsemi
Sambandsins, sem skila bestum
arði og hverjir eru mestir vand-
ræðaþættirnir?
Það er erfitt að gera þessari
spurningu nokkur viðhlítandi skil,
því hlutirnir breytast svo fljótt í
okkar síbreytilega þjóðfélagi. Þær
starfsgreinar, sem ganga vel í ár,
geta verið reknar með tapi
á næsta ári og svo öfugt. Almennt
vil ég hins vegar segja það, að
rekstrarafkoman í hinum ýmsu
starfsgreinum Sambandsins end-
urspeglar fyrst og fremst þau skil-
yrði, sem þjóðfélagið býr hinum
ýmsu starfsgreinum. Afleiðingar
verðbólgunnar setja mjög svip
sinn á rekstur okkar og hávaxta-
stefnan leggst með sívaxandi
þunga á marga þætti starfseminn-
ar, þannig að hún getur hugsan-
lega sligast áður en langt um líður
undan vaxtabyrðinni.
Samvinnufélögin eru næsta
einráð í verslun og vinnslu land-
búnaðarafurða, þ.e. nautgripa- og
sauðfjárafurða. Verslun og
vinnsla svína- og hænsnaafurða
er hins vegar nær alfarið í hönd-
um einstaklinga. Hefur sam-
vinnuhreyfingin vanmetið mark-
aðsgildi þessarar framleiðslu eða
er þetta tengt neikvæðri afstöðu
samtaka bænda til þessara bú-
greina?
Ég veit ekki um það, hvort
bændur almennt hafi neikvæða
afstöðu til framleiðslu á hænsna-
og svínaafurðum. Sé það svo, á
það engan þátt í því, að sam-
vinnuhreyfingin hefur ekki tengst
meir en raun ber vitni framleiðslu
þessara afurða. Bændurnir, sem
eru ein megin uppistaða sam-
vinnuhreyfingarinnar, hafa beitt
hreyfingunni til vinnslu og sölu á
„ Vorum komnir á
lokastig í samn-
ingum um 5%
grunnkaups-
hœkkun þegar
aðrir vinnuveít-
endur komu inn í
myndina og samið
var um 10-11%“
nautgripa- og saurfjárafurðum,
enda er mjög traust og gott skipu-
lag á þeim málum. Framleiðendur
hænsna- og svínaafurða hafa hins
vegar ekki séð sér henta að koma
samvinnuskipulagi á vinnslu og
sölu sinna afurða og afleiðingin er
svo sú, að sölumál þeirra eru alls
ekki í nægjanlega traustum far-
vegi, þannig að ýmist ber á skorti
eða offramboöi, sérstaklega að því
er varðar hænsnaafurðir, og fram-
leiðendum hættir þá til að níða
skóinn hver niður af öðrum með
undirboðum og taprekstri, sem
engum þjónar þegar til lengdar
lætur. í framtíðinni teldi ég per-
sónulega mjög eðlilegt, að sam-
vinnuhreyfingin tengdist meira
vinnslu og sölu svína- og
hænsnaafurða og þá jafnvel, að
kaupfélögin eða Sambandið tækju
þátt í því meö einstaklingum að
byggja upp stærri reksturseining-
ar í þessum greinum.
Nú hefur í vaxandi mæli verið
farið inn á þá braut að ráða í
stjórnunarstörf innan Sambands-
ingu á sviði viðskipta og hafa
fremur verið tengdir einkarekstri
en samvinnurekstri. Telur þú að
þetta sé varhugaverð þróun sem
gæti orðið til þess að Sambandið
fórnaði hugsjónum sínum í vax-
andi mæli fyrir viðskiptahags-
muni?
Hinn fjölþætti rekstur sam-
vinnuhreyfingarinnar hefur í vax-
andi mæli þörf fyrir sérþekkingu á
hinum ýmsu sviðum. Samvinnu-
hreyfingin hefur reyndar frá upp-
hafi gert sér Ijósa þörfina fyrir
góða menntun starfsfólksins og
hefur í því sambandi rekið sér-
stakan samvinnuskóla í marga
áratugi. Samvinnuhreyfingin hefur
einnig viðurkennt þörfina fyrir
aukna sérmenntun m.a. með því
að stofna sérstaka framhaldsdeild
við Samvinnuskólann, sem út-
skrifar stúdenta, en þar meö er
búið að opna nemendum Sam-
vinnuskólans braut til Háskólans.
Að því er ég best veit, stunda nú
a.m.k. 6 Samvinnuskólamenn nám
í Viðskiptadeild Háskólans og
vonandi koma sem flestir þeirra til
starfa í samvinnuhreyfingunni í
framtíðinni. Ég held að þetta sé
mjög jákvæð þróun og um leið tel
ég það mjög jákvætt fyrir sam-
vinnuhreyfinguna að fá til starfa
öfluga og vel menntaða unga
menn, sem hafa öðlast vissa
reynslu á öðrum sviðum, hvort
sem það er í einkarekstri eða
opinberum rekstri. Reynslan sýnir,
að þeir tileinka sér mjög fljótlega
hugsjónir samvinnumanna og við
leggjum jú mikla áherslu á það, að
í starfsmannahópi okkar fari sam-
an hugsjónir, reynsla og sérþekk-
ing.
Hvert er hlutverk stjórnar Sam-
bandsins og þá stjórnarfor-
manns?
Hlutverk Sambandsstjórnar er
mjög hefðbundið miðað við
stjórnir annarra fyrirtækja í land-
inu. Hún fer með æðsta vald í
málefnum Sambandsins milli
aðalfunda og er stefnumótandi í
öllum rekstri þess Hún tekur allar
meiriháttar ákvarðanir um fram-
kvæmdir Sambandsins, t.d. um
fjárfestingar. Hún fylgist með
rekstri Sambandsins í höfuðatrið-
37