Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Qupperneq 37

Frjáls verslun - 01.12.1980, Qupperneq 37
samvinnuhreyfingarinnar voru svo framsýnir, að hin upphaflegu markmið, sem þeir settu sam- vinnuhreyfingunni, halda fullu gildi sínu enn þann dag í dag, en við teljum mjög eðlilegt að skil- greina betur stefnuna og starf- semina á hinum ýmsu sviðum með því að gefa út sérstaka stefnuskrá. Það er ætlun okkar, að stefnu- skráin verði gefin út á 100 ára af- mæli samvinnuhreyfingarinnar á árinu 1982, en fram til þess tíma verður stefnuskráin til umræðu og í mótun hjá félagsfólkinu í kaupfé- lögunum. Stefnuskráin verður þannig til umræðu á deildarfund- um kaupfélaganna í vetur og einnig verður stofnað til sérstakra umræðuhópa í kaupfélögunum. Með þessu móti viljum við vinna að því, að félagsfólkið sjálft móti stefnuskrána, þannig að hún megi sem allra best endurspegla þarfir þess og óskir. Hvaða þættireru það í starfsemi Sambandsins, sem skila bestum arði og hverjir eru mestir vand- ræðaþættirnir? Það er erfitt að gera þessari spurningu nokkur viðhlítandi skil, því hlutirnir breytast svo fljótt í okkar síbreytilega þjóðfélagi. Þær starfsgreinar, sem ganga vel í ár, geta verið reknar með tapi á næsta ári og svo öfugt. Almennt vil ég hins vegar segja það, að rekstrarafkoman í hinum ýmsu starfsgreinum Sambandsins end- urspeglar fyrst og fremst þau skil- yrði, sem þjóðfélagið býr hinum ýmsu starfsgreinum. Afleiðingar verðbólgunnar setja mjög svip sinn á rekstur okkar og hávaxta- stefnan leggst með sívaxandi þunga á marga þætti starfseminn- ar, þannig að hún getur hugsan- lega sligast áður en langt um líður undan vaxtabyrðinni. Samvinnufélögin eru næsta einráð í verslun og vinnslu land- búnaðarafurða, þ.e. nautgripa- og sauðfjárafurða. Verslun og vinnsla svína- og hænsnaafurða er hins vegar nær alfarið í hönd- um einstaklinga. Hefur sam- vinnuhreyfingin vanmetið mark- aðsgildi þessarar framleiðslu eða er þetta tengt neikvæðri afstöðu samtaka bænda til þessara bú- greina? Ég veit ekki um það, hvort bændur almennt hafi neikvæða afstöðu til framleiðslu á hænsna- og svínaafurðum. Sé það svo, á það engan þátt í því, að sam- vinnuhreyfingin hefur ekki tengst meir en raun ber vitni framleiðslu þessara afurða. Bændurnir, sem eru ein megin uppistaða sam- vinnuhreyfingarinnar, hafa beitt hreyfingunni til vinnslu og sölu á „ Vorum komnir á lokastig í samn- ingum um 5% grunnkaups- hœkkun þegar aðrir vinnuveít- endur komu inn í myndina og samið var um 10-11%“ nautgripa- og saurfjárafurðum, enda er mjög traust og gott skipu- lag á þeim málum. Framleiðendur hænsna- og svínaafurða hafa hins vegar ekki séð sér henta að koma samvinnuskipulagi á vinnslu og sölu sinna afurða og afleiðingin er svo sú, að sölumál þeirra eru alls ekki í nægjanlega traustum far- vegi, þannig að ýmist ber á skorti eða offramboöi, sérstaklega að því er varðar hænsnaafurðir, og fram- leiðendum hættir þá til að níða skóinn hver niður af öðrum með undirboðum og taprekstri, sem engum þjónar þegar til lengdar lætur. í framtíðinni teldi ég per- sónulega mjög eðlilegt, að sam- vinnuhreyfingin tengdist meira vinnslu og sölu svína- og hænsnaafurða og þá jafnvel, að kaupfélögin eða Sambandið tækju þátt í því meö einstaklingum að byggja upp stærri reksturseining- ar í þessum greinum. Nú hefur í vaxandi mæli verið farið inn á þá braut að ráða í stjórnunarstörf innan Sambands- ingu á sviði viðskipta og hafa fremur verið tengdir einkarekstri en samvinnurekstri. Telur þú að þetta sé varhugaverð þróun sem gæti orðið til þess að Sambandið fórnaði hugsjónum sínum í vax- andi mæli fyrir viðskiptahags- muni? Hinn fjölþætti rekstur sam- vinnuhreyfingarinnar hefur í vax- andi mæli þörf fyrir sérþekkingu á hinum ýmsu sviðum. Samvinnu- hreyfingin hefur reyndar frá upp- hafi gert sér Ijósa þörfina fyrir góða menntun starfsfólksins og hefur í því sambandi rekið sér- stakan samvinnuskóla í marga áratugi. Samvinnuhreyfingin hefur einnig viðurkennt þörfina fyrir aukna sérmenntun m.a. með því að stofna sérstaka framhaldsdeild við Samvinnuskólann, sem út- skrifar stúdenta, en þar meö er búið að opna nemendum Sam- vinnuskólans braut til Háskólans. Að því er ég best veit, stunda nú a.m.k. 6 Samvinnuskólamenn nám í Viðskiptadeild Háskólans og vonandi koma sem flestir þeirra til starfa í samvinnuhreyfingunni í framtíðinni. Ég held að þetta sé mjög jákvæð þróun og um leið tel ég það mjög jákvætt fyrir sam- vinnuhreyfinguna að fá til starfa öfluga og vel menntaða unga menn, sem hafa öðlast vissa reynslu á öðrum sviðum, hvort sem það er í einkarekstri eða opinberum rekstri. Reynslan sýnir, að þeir tileinka sér mjög fljótlega hugsjónir samvinnumanna og við leggjum jú mikla áherslu á það, að í starfsmannahópi okkar fari sam- an hugsjónir, reynsla og sérþekk- ing. Hvert er hlutverk stjórnar Sam- bandsins og þá stjórnarfor- manns? Hlutverk Sambandsstjórnar er mjög hefðbundið miðað við stjórnir annarra fyrirtækja í land- inu. Hún fer með æðsta vald í málefnum Sambandsins milli aðalfunda og er stefnumótandi í öllum rekstri þess Hún tekur allar meiriháttar ákvarðanir um fram- kvæmdir Sambandsins, t.d. um fjárfestingar. Hún fylgist með rekstri Sambandsins í höfuðatrið- 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.