Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 61

Frjáls verslun - 01.12.1980, Page 61
Keyptu Linguaphone námskeið fyrir starfsfólkið Gunnar Góöir stjórnendur hafa alltaf opin augun fyrir því sem getur komiö starfsmönnum þeirra aö gagni, bæöi persónulega og í starfi. Þónokkur fyrirtæki hafa gert sér grein fyrir mikilvægi tungumálakunnáttu og keypt Linguaphone námskeiö sem starfsfólkið hefur svo aögang að. Meðal þessara aöila eru Vegagerð ríkisinsog Eimskipafélag íslands. ,,Viö höfum keypt kúrsa í norsku og sænsku, enda eru okkar sam- skipti mest viö hin Norðurlöndin", sagöi Gunnar Gunnarsson. starfs- mannastjóri Vegagerðarinnar. ,.Viö geymum þetta á bókasafninu okkar og þar geta þeir starfsmenn sem vilja fengiö þaö lánað. Viö viljum gjarnan aö sem flestir not- færi sér þetta, ekki síst ef menn eru aö fara erlendis. Þetta er tiltölulega nýtilkomiö hjá okkur, en það er greinilegt aö áhuginn er mikill og ég reikna meö aö viö bætum ensku og þýsku í stafnið. Þótt flestir hafi einhvern- tima lært þessi mál, hafa þeir ekki æfingu í aö tala og því kemur þetta sér vel." Mikill áhugi ,,Viö erum nýbúnir aö fá Linguaphone námskeið í ensku, dönsku og þýsku, en þaö er þegar komið í Ijós aö hér er mikill áhugi á þessu", sagöi Sigurlaugur Þor- kelsson, blaöafulltrúi Eimskipafé- lagsins". Það hafa allir starfsmenn Eimskipafélagsins aögang að námskeiðunum. Ég held aö þetta sé mjög gott og gagnlegt. Ég tók sjálfur einn kúrsus til aö prófa þetta og fannst það mjög góö upprifjun. Það ligg- ur í eðli Eimskipafélagsins að við þurfum aö hafa mikið samband viö erlenda aöila og því betur sem viö erum inni í tungumálum þeim mun auðveldari eru þau samskipti. Skólalærdómur vill týnast niður ef menn hafa ekki tækifæri til aö halda honum viö. Endurhæfing af þessu tagi er því hagkvæm bæöi fyrir einstaklingana og fyrirtækið". S3 Tveir kennarar fyrir hvern nemanda Einn skólanna í Englandi sem eru meö stutt námskeið fyrir menn í ýmsum starfsgreinum er Rich- mond Method, í London. Og einn íslendinganna sem hefur sótt hann er Ásgeir Gunnarsson, for- stjóri Veltis. ,,Ég hef fariö þarna þrisvarsinn- um og verið viku í senn, og haft mikið gagn af. Þarna eru ellefu kennarar sem taka aö sér mest fjóra nemendur í viku. Hver nem- andi hefur tvo kennara; formið- dags og eftirmiödags svo þaö er engin hætta á aö neinn verði af- skiptur. Kennslan hefst kl. 9 á morgnana og þú byrjar að spjalla viö kennar- ann um hvaö þú vilt leggja áherslu á. Hann fer svo yfir það meö þér, nóterar hjá sér og leiðréttir. Eftir- miödagskennarinn tekur svo vió eftir hádegi. Daginn eftir er formiðdags- kennarinn tilbúinn meö stíl, í fram- haldi af því sem þiö fóruð yfir dag- inn áður. Svona gengur þetta út vikuna. Þetta er mjög efekktiv kennsla enda talin gilda til jafns við fjögurra vikna nám. Þetta er dýr skóli, vikan kostar sexhundruö sterlingspund, fyrir utan hótel, en ég tel þeim þeningum vel varið. Ég hef gefiö nokkrum deildar- stjórum hérna kost á aö sækja þessi námskeið og þeir hafa allir veriö mjög hrifnir. Og náminu er ekki lokið þótt þú sért kominn til (slands. Viku eða hálfum mánuöi eftir heimkomuna færöu senda segul- bandssnældu meö öllu sem ykk- urkennurunum fórá milli. Þúgetur því rifjaö upp námskeiðiö. Ég hef þessa snældu alltaf í bílnum og sþila hana þegar ég fer á milli". gg 61

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.