Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 61
Keyptu Linguaphone námskeið fyrir starfsfólkið
Gunnar
Góöir stjórnendur hafa alltaf
opin augun fyrir því sem getur
komiö starfsmönnum þeirra aö
gagni, bæöi persónulega og í
starfi. Þónokkur fyrirtæki hafa
gert sér grein fyrir mikilvægi
tungumálakunnáttu og keypt
Linguaphone námskeiö sem
starfsfólkið hefur svo aögang að.
Meðal þessara aöila eru Vegagerð
ríkisinsog Eimskipafélag íslands.
,,Viö höfum keypt kúrsa í norsku
og sænsku, enda eru okkar sam-
skipti mest viö hin Norðurlöndin",
sagöi Gunnar Gunnarsson. starfs-
mannastjóri Vegagerðarinnar.
,.Viö geymum þetta á bókasafninu
okkar og þar geta þeir starfsmenn
sem vilja fengiö þaö lánað. Viö
viljum gjarnan aö sem flestir not-
færi sér þetta, ekki síst ef menn eru
aö fara erlendis.
Þetta er tiltölulega nýtilkomiö
hjá okkur, en það er greinilegt aö
áhuginn er mikill og ég reikna meö
aö viö bætum ensku og þýsku í
stafnið. Þótt flestir hafi einhvern-
tima lært þessi mál, hafa þeir ekki
æfingu í aö tala og því kemur þetta
sér vel."
Mikill áhugi
,,Viö erum nýbúnir aö fá
Linguaphone námskeið í ensku,
dönsku og þýsku, en þaö er þegar
komið í Ijós aö hér er mikill áhugi á
þessu", sagöi Sigurlaugur Þor-
kelsson, blaöafulltrúi Eimskipafé-
lagsins". Það hafa allir starfsmenn
Eimskipafélagsins aögang að
námskeiðunum.
Ég held aö þetta sé mjög gott og
gagnlegt. Ég tók sjálfur einn
kúrsus til aö prófa þetta og fannst
það mjög góö upprifjun. Það ligg-
ur í eðli Eimskipafélagsins að við
þurfum aö hafa mikið samband viö
erlenda aöila og því betur sem viö
erum inni í tungumálum þeim mun
auðveldari eru þau samskipti.
Skólalærdómur vill týnast niður
ef menn hafa ekki tækifæri til aö
halda honum viö. Endurhæfing af
þessu tagi er því hagkvæm bæöi
fyrir einstaklingana og fyrirtækið".
S3
Tveir kennarar fyrir hvern nemanda
Einn skólanna í Englandi sem
eru meö stutt námskeið fyrir menn
í ýmsum starfsgreinum er Rich-
mond Method, í London. Og einn
íslendinganna sem hefur sótt
hann er Ásgeir Gunnarsson, for-
stjóri Veltis.
,,Ég hef fariö þarna þrisvarsinn-
um og verið viku í senn, og haft
mikið gagn af. Þarna eru ellefu
kennarar sem taka aö sér mest
fjóra nemendur í viku. Hver nem-
andi hefur tvo kennara; formið-
dags og eftirmiödags svo þaö er
engin hætta á aö neinn verði af-
skiptur.
Kennslan hefst kl. 9 á morgnana
og þú byrjar að spjalla viö kennar-
ann um hvaö þú vilt leggja áherslu
á. Hann fer svo yfir það meö þér,
nóterar hjá sér og leiðréttir. Eftir-
miödagskennarinn tekur svo vió
eftir hádegi.
Daginn eftir er formiðdags-
kennarinn tilbúinn meö stíl, í fram-
haldi af því sem þiö fóruð yfir dag-
inn áður. Svona gengur þetta út
vikuna. Þetta er mjög efekktiv
kennsla enda talin gilda til jafns við
fjögurra vikna nám. Þetta er dýr
skóli, vikan kostar sexhundruö
sterlingspund, fyrir utan hótel, en
ég tel þeim þeningum vel varið.
Ég hef gefiö nokkrum deildar-
stjórum hérna kost á aö sækja
þessi námskeið og þeir hafa allir
veriö mjög hrifnir. Og náminu er
ekki lokið þótt þú sért kominn til
(slands.
Viku eða hálfum mánuöi eftir
heimkomuna færöu senda segul-
bandssnældu meö öllu sem ykk-
urkennurunum fórá milli. Þúgetur
því rifjaö upp námskeiðiö. Ég hef
þessa snældu alltaf í bílnum og
sþila hana þegar ég fer á milli". gg
61