Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 64

Frjáls verslun - 01.12.1980, Side 64
á kælikistum fyrir Sanitas vörurn- ar. Þá leggjum viö aukna áherzlu á gosvélarnar svonefndu en þær henta einkar vel á stórum sam- komustöðum og dansstöðum, þar sem tómar flöskur eru sífellt vandamál en t.d. einnota þaþpaílát henta vel." Neytandinn ..Neytandinn er aðalatriðið og öllu skiptir vitaskuld að hann vilji kaupa vörur okkar. Þau atriði sem ég hef nefnt áður miða að því að gera hann ánægðan. En ekki er nóg að framleiða 1. flokks vöru og veita góða þjónustu. Fólk verður að vita af vörum okkar. Því höfum viö gert stórátak í auglýsingamál- um okkar. Sjónvarpið er þar öfl- ugasti miðillinn. Einnig höfum við auglýst mikið í blöðum og tímarit- um. Þá höfum við verið með vöru- kynningar í stórverzlunum hér í Reykjavík, sem gefist hafa vel. Pepsíbíóin, sem við höfum haldið ókeypis fyrir krakkana í tilefni Sanitasafmælisins hafa slegið í gegn. I auglýsingum okkar höfum við reynt að höfða sem mest til krakka og táninga eða aldurs- hópsins á bilinu frá 10—20 ára, en á þessum aldri drekkur fólk líkleg- ast mest af gosdrykkjum og neyzluvenjur myndast að mestu; menn velja sér drykkjartegundir, sem þeir halda sig yfirleitt við upp frá þvi." Samkeppnin Við spurðum Ragnar að því hvort samkepþnin væri ekki hörð í þessum bransa. ,,Jú, svo sannar- lega. Heildarsala á gosdrykkjum hér á markaðnum hefur minnkað en þó hefur framleiðsla Sanitas aukist gífurlega. Sem dæmi má taka að i september s.l. vorum við búnir að framleiða og selja jafn- mikið og allt árið í fyrra. Ljóst er að þessi söluaukning okkar hlýtur að koma niður á hinum framleiðend- unum. Ég held að þetta bitni harð- ast á Coka Cola framleiðslunni. Kóksalan hefur stórminnkað. En þetta er ekkert einsdæmi á íslandi því að Kókið er í mikilli vörn gagn- vart Pepsi bæði í Evrópu og Bandaríkjunum /v FramleiOslan á leið á markað. Svipmynd frá verksmiðju Sanitas við Köllunarklettsveg. PEPSIátöppun í fullum gangi. 64

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.