Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 83

Frjáls verslun - 01.12.1980, Síða 83
Hversvegna kaupa menn listaverk? Af ást á list eða peningum? Ef til vill er það merki um hversu listelskir vió íslendingar erum hversu margar mál- verkasýningar eru haldnar hér á landi. Vafalaust hefur enginn tekið saman hvað rpargar þaer eru á ári hverju, en þær skipta tugum og jafnvel hundruðum, ef allt er talið. Það merkilega við þær er það, að nær undantekningarlaust selst meirihluti myndanna. Eins og geta má nærri er myndlistin í meira lagi misjöfn. Um er að ræða allt frá meiri háttar snillingum í fólk, sem hefur farið í veturlangt námskeið og málar eða teiknar myndir, sem minna á myndskreytingar í dönsku blöðunum. Allt þetta selst. Verslun með málverk fer fram með ýmsu móti. Það sem mest ber á eru málverkasýn- ingar, en mikið er verslaó með myndlist á annan hátt. Algengt er að fólk fari heim til málara og versli við hann þar og vinsælustu málarar þurfa ekki að sýna opinberlega. Slík viðskipti hafa ýmsa kosti, svo sem þann, að skattayfirvöld komast ekki á snoöir um tekjur málarans og fjármuni kaupandans og geta illa gengið eftir söluskatti. Þá eru í Reykjavík tvær verslanir með listmuni og málverk. Listmunahúsið á Lækjartorgi, sem Knútur Bruun rekur og Klausturhólar á Laugavegi, sem Guðmundur Axelsson rekur og á Akureyri verslar Óli G. Jóhannsson með málverk. En hvers vegna kaupa menn málverk? Ein ástæða, sem verður sífellt algengari, er að kaupa málverk til gjafa á stórafmælum, bæði til einstaklinga og stofnana eða fyrirtækja. Það getur vissulega verið hefndargjöf, þar sem smekkur allra fer ekki saman, en venju- lega verða menn að hengja slíkar gjafir upp, til að særa ekki gefendur. Flestir einstaklingar kaupa málverk einfaldlega til að hengja þau upp heima hjá sér, en aðrir kaupa málverk til að safna þeim. Safnarar hafa tvennskonartilgang. Annars vegar eru þeir, sem safna verkum einstakra málara, eða verkum frá tilteknu tímabili og hinsvegar þeir sem kaupa málverk sem fjárfestingu. Knútur Bruun segir: „Sumir hafa takmarkaða þekkingu á málaralist og kaupa þá eingöngu verk eftir þekkta málara, en aðrir eru fagurkerar, sem safna skipu- lega og vilja ekki nema viss verk eftir hvern málara." En eru málverk fjárfesting? Það á aðallega við um verk eldri, viðurkenndra málara, að sögn Knúts, og þá fyrst og fremst ef menn kunna að velja verkin. Hæsta salan sem hann veit um í seinni tíð var frábært Kjarvalsmálverk, sem seldist á tíu milljónir króna. Erfitt er aö fá menn til að svara hverjir séu dýrustu málararnir. Þó mun ekki fjarri lagi að nefna efsta þá Kjarval, Ásgrím Jónsson og Jón Stefánsson. Fast á eftir koma Gunn- 83
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.