Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 6
■
=STIKLAD Á ST0RU
Góður markaður í Arabalöndum
en dýrt að komast inn á hann
,,Það er álíka hlægilegt að
íslendingar selji appelsínu-
djús til Arabalanda og að
Danir geri það. En hver
hlær, þegar hann fær að
vita, að Danir seldu djús til
Saudi-Arabíu fyrir 83 millj-
ónir í fyrra?", spurði Úlfur
Sigurmundsson, þegar rætt
var við hann um hugsanleg
útflutningstækifæri íslend-
inga til Arabalanda í kjölfar
matvælasýningar í Bahrain,
sem íslenzk matvælafyrir-
tæki tóku þátt í 11.-14.
janúar sl. Þeirra á meðal var
Sól hf., sem kynnti Tropi-
cana- ávaxtasafa og í tilefni
af umræðum um íslenzkan
appelsínudjús sem útflutn-
ings vöru á Arabíuskaga lét
Úlfur þessi orð falla.
Úlfur, sem var í hópi 15
forystumanna í íslenzkum
útflutningi á þessari sýn-
ingu, sagði að þarna suður
frá væri markaður fyrir
margs konar matvæli, mikill
fyrir niðursuðuvörur, fyrir
meðalalýsi og einnig fyrir
kjöt, en það væri flókið mál
og ekki aðgengilegt að
koma kjöti á þennan mark-
að. íslenzku fyrirtækin, sem
þarna voru mest áberandi
voru búvörudeild Sam-
bandsins, Sölustofnun
lagmetis, Lýsi hf. og Sól hf.
Einnig var dótturfyrirtæki
SH í Bandaríkjunum, Cold-
water Seafood Corp. meðal
sýnenda. Tvær flugfreyjur
frá Flugleiðum unnu að al-
mennri íslandskynningu á
sýningunni, vöktu mikla at-
hygli og stóðu sig mjög vel,
að sögn Úlfs.
Þessi alþjóðlega mat-
vælasýning í Bahrain er
haldin annað hvert ár og
voru þátttakendur víðs veg-
ar að.
Gargolux annaðist flutning
á íslenzku sýningunni til
Dubai á Arabíuskaga. Þátt-
taka í þessari sýningu er dýr
og nefndi Úlfur sem dæmi
að hótelherbergi kostaði
110 dollara fyrir manninn á
sólarhring í Bahrain.
„Markaður er þarna fyrir
hendi," sagði Úlfur, ,,en það
er dýrt að sækja inn á hann
og framhaldið er undir því
komið hvort menn treysta
sértil þess."
Janúartölublað tímarits-
ins Arab Business Report,
sem gefið er út á ensku og
arabísku, er að verulegu
leyti helgað Islandi og ísl-
enzkum útflutningsvörum.
Ritstjóri þess kom hingað til
lands fyrir skömmu og afl-
aði efnis.
Minna byggt í
Reykjavík
í Reykjavík voru í smíðum
942 íbúðir um sl. áramót,
þar af um 340 fokheldar eða
meira. Á árinu 1981 var haf-
in bygging á 631 nýrri íbúð.
Sé litið fimm ár aftur í tím-
ann til samanburðar, til árs-
ins 1976, þá voru íbúðir í
smíðum við lok þess árs
1509 talsins og 1250 í árslok
1977. í fyrra var lokið 334
færri íbúðum í Reykjavík en
1980, en hafin bygging á
152 fleiri íbúðum 1981 en
1980.
Meðalstærð nýbyggðra
íbúða er u. þ. b. 502 rúmm.
eða 108 rúmm. stærri en
1980. Á árinu 1981 var lokið
við íbúðarhús samtals að
flatarmáli 37 þús. fermetrar,
þjónustu, félagsheimili og
elliheimili alls 1700 fermetr-
ar, verzlunar- og skrifstofu-
húsnæði samtals 3.300 fer-
metrar, iðnaðar- og verzl-
unarhús 16 þús. fermetrar
en geymslur og hesthús
14.300 fermetrar.
Hillur á frystikistum verzlana
Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkurborgar hefur sent út
bréf til matvöruverzlana,
þar sem lagt er bann við því
að viðkvæm matvæli, sem
eiga að vera í kæligeymslu,
séu höfð á hillum ofan á
frystikistum verzlana eins
og algengt hefur verið und-
anfarið.
Tilefnið er það, að starfs-
menn heilbrigðiseftirlitsins
hafa orðið þess varir í æ
vaxandi mæli undanfarin
2-3 ár að margir kaupmenn
í borginni hafa gripið til
þess ráðs að setja bretti eða
hillur ofan á frystikisturnar
og geyma á þeim kælivörur
eins og t. d. pizzur, en þær
munu vera langalgengasta
vörutegundin, sem um ræð-
ir. Hitinn á hillunum er afar
mismunandi, getur verið
um frostmark en engu má
muna að hann sé ekki kom-
inn upp í 10 stiga hita og
jafnvel hafa mælzt um 20
gráður á þessum hillum.
Upphaflega hafði heilbrigð-
iseftirlitið í hyggju að fara
einhvern milliveg, láta það
afskiptalaust ef varan væri
þarna aðeins til skamms
tíma, eins og t. d. í mestu
önnum á föstudögum. At-
6