Frjáls verslun - 01.01.1982, Qupperneq 43
Gamla húsið til vinstri og það nýja á miðri mynd, en til hægri sést gamla
pakkhúsið, sem var byggt um aldamót og lengra til hægri er hús
Meleyrar hf. og sláturhúsið á bak við það.
ekki að eina samgöngutæki þess
tíma á landi, hestinum.
Það var svo árið 1913, þegar
Sigurður var 29 ára gamall að
hann stofnar verslun á Hvamms-
tanga. ,,Það var hálfgerður kastar-
holu búskapur, til að byrja með,“
sagði Karl Sigurgeirsson, núver-
andi framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, þegar Frjáls verslun ræddi við
hann nýlega. Þá voru fá hús á
Hvammstanga, talið er að fyrstu
hús hafi verið byggð þar um alda-
mótin. Þó voru viðskipti hafin þar
áður en Sigurður stofnaði sína
verslun, því að Riis-verslun var þar
á fyrstu árum aldarinnar og Kaup-
félag V-Húnvetninga var stofnað
þar árið 1909, uppúr Slátrunarfé-
lagi Vestur-Húnavatnssýslu, sem
var stofnað árið áður og hafði
byggt þar slátrunarhús, 30x14
álnirað flatarmáli.
Þrír framkvæmdastjórar
Árið eftir að Sigurður stofnar
verslun sína, kaupir hann eina
steinhúsið á staðnum undir rekst-
urinn og árið 1923 kaupir hann
slátrunarhúsið af kaupfélaginu,
sem þá var að flytja um set og
byggja nýtt sláturhús. Síðan hefur
verið slátrað á vegum verslunar-
innar á hverju hausti og Karl telur
það vera forsendu fyrir rekstri fyr-
irtækis af þessu tagi, að það geti
tekið á móti gjaldmiðli bænda,
sem er búfjárafurðir.
Árið 1958 er fyrirtækinu breytt í
hlutafélag, þegar Sigurður gerir
börn sín að meðeigendum. Um
svipað leyti er ráðinn að því fram-
kvæmdastjóri, Sigurður Tryggva-
son, sem annast um reksturinn til
ársins 1965, að Karl tekur við.
Karl Sigurgeirsson er bónda-
sonur frá Bjargi í Miðfirði, fæddur
12. des. 1943. Hann lauk lands-
prófi frá Héraðsskólanum að
Reykjum í Hrútafirði. Síðan starf-
aði hann tvo vetursem farkennari í
sveitinni og aðra tvo við fyrirtækið.
Á sumrin vann hann á búi foreldra
sinna, hann hafði mestan hug áað
verða bóndi. En svo kom ástin í
spilið og gerði strik í reikninginn.
Hann kvæntist Anne Mary Pálma-
dóttur, sonardóttur Sigurðar
Pálmasonar, og tekur svo við
framkvæmdastjórn fyrirtækisins,
þá tuttugu og eins árs gamall.
Tvíþætt starf
Rekstur Verslunar Sigurðar
Pálmasonar h. f. er í stórum drátt-
um tvíþættur. í fyrsta lagi er smá-
söluverslunin, sem hefur verið
rekin frá stofnun fyrirtækisins. Þar
er verslað með flestar vörur sem
þarf til heimilis og búrekstrar, en
það vekur eftirtekt hvað bækur fá
mikið og gott rúm í versluninni,
enda segir Karl að svo hafi alla tíð
verið, allt frá stofnun. í þeim hluta
fyrirtækisins eru einnig rekin
nokkur umboð, svo sem fyrir Olíu-
verslun íslands, Álafoss og Bruna-
bótafélag íslands. Umboðið fyrir
Brunabótafélagið er reyndar rekið
á nafni Karls, persónulega, og er
þar farið að fordæmi Sigurðar
Pálmasonar, sem hafði þetta um-
boð alltaf á sínu nafni, en ekki
fyrirtækisins.
Hinn meginþáttur fyrirtækisins
er rekstur sláturhúss og frystihúss.
Á síðasta ári var slátrað þar um
Þessi mynd, sem Baltazar teiknaði af
Sigurði Pálmasyni, skreytir vegginn
andspænis Karli, þegar hann situr við
skrifborðið sitt.
43