Frjáls verslun - 01.01.1982, Blaðsíða 47
Bækur hafa alla tíð skipað veglegan sess í búðinni hjá V. S. P.
á ferð á Hvammstanga nýlega og
hitti þá Karl Sigurgeirsson og
rabbaði við hann litla stund. Hann
var fyrst spurður hvernig hann út-
skýrði að fyrirtækið hefði staðið
svo vel sem raun ber vitni i sam-
keppni við sterkt og vel rekið
kaupfélag á takmörkuðum mark-
aði.
,,Ég vil segja að það er fyrst og
fremst vegna þess að héraðsbúar
hafa treyst fyrirtækinu og metið
það svo, að það væri fært um að
skapa þá samkeppni, sem nauð-
synleg er. Án þess trausts væri
þetta fyrirtæki ekki til.
Það er rétt að kaupfélagið er
gott og mjög vel rekið fyrirtæki,
það held ég að allir viðurkenni.
Á því er enginn vafi að persónu-
eiginleikar Sigurðar Pálmasonar
áttu stærstan þátt í velgengni fyrir-
tækisins fyrr á árum og kannski ég
telji mér það til tekna líka að hafa
verið svo mannlegur að hafa getað
hjálpað mönnum, t. d. í sambandi
við framkvæmdir í uppbyggingu,
bæði hér á staðnum og út um
sveitir. Með því móti hafa skapast
bæði persónuleg sambönd og við-
skiptasambönd.“
- Bygging þessa húss bendir til
að rekstuiinn haii gengið vel. Er
það ekki rétt ályktun?
„Það er nú kannski önnur saga.
Þörfin var knýjandi og hana sáu
allir. En hvernig maður kemst frá
því að reisa svona hús, verður tím-
inn bara að leiða í Ijós. Við höfum
orðið að taka töluvert fé frá rekstr-
inum og við verðum að vona að
viðskiptavinir okkar treysti okkur
til að skila því aftur. Húsið var mjög
ódýrt í byggingu og ég efast ekki
um að þar átti stærstan hlut í að
það var allt unnið í tímavinnu og
við vorum mjög heppnir með
mannskap. Annað er það að húsið
er mjög einfalt, það er enginn
íburður í því.“
Rætur í sveit
- Vid skulum ræða svolítið um
sjálían þig. Pú ert sveitadrengur-
inn, sem náði í prinsessuna og
hálít konungsríkið?
,,Já, það er rétt, en þó er ég í
hjarta mínu alltaf sveitamaður.
Strákarnir mínir eru sveitamenn
líka og fara alltaf á sumrin fram í
sveit að hjálpa bróður mínum, sem
býr á Bjargi, við sauðburðinn og
heyskapinn og una sér vel. Ég var í
sveitinni þangað til ég var tuttugu
og eins árs, en söðlaði þá yfir og
fór í viðskiptin, með litla menntun
og litla reynslu."
- Og hefur gengið sæmilega?
„Ja þetta. Maður er búinn að
damla í þessu í sextán ár og fyrir-
tækið hefur heldur stækkað og ég
held að við höfum ekki brotið á
neinum.
En ég finn það, sérstaklega
þegar mest er um að vera og
stressið er mest, að ræturnar eru í
sveitinni og það getur vel verið að
maður söðli um aftur einhvern
daginn og fari í sveitina."
Steypuþjónustan hf.:
Hrærir steypu og framleiðir
hellur og
Þegar uppbyggingin á Hvamms-
tanga hófst, varð ekki hjá því
komist að setja steypustöð á
laggirnar þar, enda er það í fullu
samræmi við þróunina í bygg-
ingariðnaði síðasta áratugar.
Hvammstangahreppur, Rækt-
rór
unarsambandið, V. S. P., Kaup-
félagið, Meleyri og einstaklingar
mynduðu þá hlutafélag og komu
upp Steypuþjónustunni h. f.
Steypuþjónustan h. f. hrærir
steypu fyrir V-Húnavatnssýslu og
hefur til þess sjálfvirka steypustöð
ásamt tveim steypubílum. Áform-
að er nú að bæta einum nýjum
steypubíl í flotann.
Auk þess að hræra steypu, fram-
leiðir Steypuþjónustan h. f.
steypurör og hellur og selur um
allt Húnaflóasvæðið.
Starfsmenn eru minnst þrír, en
fjölgar upp í tíu, þegar annir eru
mestar.
47